Share

cover art for 23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða

Silfrið

23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða

Þróun gervigreindar verður sífellt hraðari og áhrif hennar á samfélagið og vinnumarkaðinn að verða greinilegri. Vitum við hvert stefnir og erum við tilbúin?

Gestir:

Andri Snær Magnason rithöfundur

Anna Sigríður Islind, prófessor í tölvunarfræði við HR

Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

More episodes

View all episodes

  • 30. þáttur: Dökk mynd dregin upp af sjávarútvegi

    45:31|
    Gestir Silfursins eru Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vg. Umfjöllun Berlinske um íslenskan sjávarútveg vakti mikla athygli um helgina. Þar dregin upp dökk mynd af greininni og pólitískum ítökum útgerðarinnar. Það styttist í sveitastjórnarkosningar, en ekki er örgrant um að þær hafi fallið í skuggann af áformum um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í sumarlok.
  • 29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin

    46:47|
    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála.Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík.Gestir:Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur ÍslandsIngimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðiðSigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar.
  • 28. þáttur: Bjarni Benediktsson kallar eftir þjóðarsátt

    46:29|
    Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, er nýráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann fer yfir stöðuna í efnahagsmálum, forsendur kjarasamninga, og hvað þurfi að gerast að hans mati til að kveða niður verðbólgu og stýrivexti. Efnahagsmálin eru áfram til umræðu í vettvangi dagsins. Gestir eru Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Katla DMI, og Guðmundur Steingrímsson, auðlinda og umhverfisfræðingur.
  • 27. þáttur: Vextir hækka á ný og oddvitar ræða borgarmálin

    55:03|
    Seðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kemur til að ræða ákvörðunina og hvert stefnir í efnahagsmálunum. Síðari hluti þáttarins er helgaður borgarpólitíkinni með oddvitunum Ara Edwald frá Miðflokki, Einari Þorsteinsson frá Framsóknarflokki, Kristni Jóni Ólafssyni Pírata og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Vinstrinu. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
  • 26. þáttur: Oddvitar í borgarstjórnarkosningum og uppgangur atNorth á Íslandi

    44:45|
    Í dag eru tveir mánuðir í sveitarstjórnarkosningar og í þætti kvöldsins er rætt við oddvita þriggja framboða í Reykjavík.Björg Magnúsdóttir oddviti ViðreisnarHildur Björnsdóttir oddviti SjálfstæðisflokksinsPétur H. Marteinsson oddviti SamfylkingarinnarÍ seinni hluta þáttarins er rætt við Eyjólf Magnús Kristinsson forstjóra atNorth. Fyrirtækið rekur gagnaver hér á landi og á Norðurlöndunum og var nýlega selt fyrir 485 milljarða króna.
  • 25. þáttur: Stefnt að kosningu um ESB í sumar

    54:06|
    Ríkisstjórnin stefnir á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB í sumarlok. Reikna má með að Evrópumál verði fyrirferðarmikil þangað til en hart var tekist um þau á Alþingi í dag. Fulltrúar allra flokka á þingi koma í Silfrið að þessu sinni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
  • 24.þáttur: Stríð í Miðausturlöndum

    45:36|
    Stríð er hafið í Miðausturlöndum eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Hverjar eru ástæðurnar, og hverjar gætu afleiðingarnar orðið?
  • 22. þáttur: Tvöfaldi lásinn og staðan í efnahagsmálum

    45:43|
    Silfrið er helgað efnahagsmálum í kvöld. Gestir okkar eru Gestir þáttarins eru Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við HR. Tekist er á um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á þingi, Það ætlar að reynast erfitt að koma verðbólgunni niður og stýrivextir eru háir og. Almenningur situr uppi með hærri lán og vöruverð, en bankarnir og risar á matvörumarkaði mala gull. Festi sem á Krónuna hagnaðist til að mynda um 6,2 milljarða í fyrra, mun meira en spáð hafði verið. Við förum yfir þessi mál og fleiri.