Share

cover art for 29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin

Silfrið

29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin

•

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála.


Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík.


Gestir:

Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands

Ingimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðið

Sigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar.

More episodes

View all episodes

  • 12. Aðför að landsbyggðinni?

    45:07||Season 2, Ep. 12
    Hallar á landsbyggðina í verkum ríkisstjórnarinnar? Borið hefur á óánægju á landsbyggðunum með ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og jafnvel talað um aðför í því sambandi. Sem dæmi eru nefnd breytingar á Loftbrú, hækkun veiði- og kílómetragjalds, náttúru- og vinnviðagjald, sameining lögregluembætta og fleira. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, Dagur B. Eggertsson, varaformaður fjárlaganefndar, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði, fara yfir stöðuna í Silfrinu í kvöld.
  • 11. Heilbrigð þjóð í hraustum líkama

    46:31||Season 2, Ep. 11
    Silfrið í kvöld verður helgað heilbrigðismálunum. Landspítalinn sér sig knúinn til að skera niður um tvo milljarða miðað við fjárlagafrumvarpið, heimilislæknar gagnrýna niðurskurð til heilsugæslunnar, og uppi eru nýjar hugmyndir um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Hvernig er best að skipuleggja og fjármagna það svo það þjóni þörfum þjóðarinnar? Gestir þáttarins eru Alma Möller heilbrigðisráðherra, Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri Orkuhússins, Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 10. Samtal við forsetann

    46:53||Season 2, Ep. 10
    Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er gestur Silfursins. Um helgina stóð hún fyrir viðburðinum Tölum saman, þar sem ungt fólk ræddi hvernig samfélag það sér fyrir sér og hvernig við nýtum gervigreind til góðs. Þá átti hún fund með alþjóðlegum leiðtogum í Höfða í gær, í tilefni af því að 40 ár voru liðin frá Höfðafundinum. Í síðari hluta þáttar erum við á vettvangi dagsins með þeim Hallgrími Helgasyni, rithöfundi, Ásthildi Sturludóttur, fyrrverandi bæjarstjóra, og Höllu Hrund Logadóttur, alþingismanni.
  • 9. Atvinnuleysi á tímum gervigreindar og Anne Applebaum

    43:44||Season 2, Ep. 9
    Meira en 180 manns misstu vinnuna í hópuppsögnum í september. Stór hluti þeirra eru forritarar og tölvunarfræðingar; auk þess sem bankastarfsmenn og opinberir starfsmenn, t.d. lögfræðingar hafa verið að missa vinnuna í smærri uppsagnarlotum. Er áhrifa fjórðu iðnbyltingarinnar, gervigreindarbyltingarinnar, farið að gæta á íslenskum vinnumarkaði? Hvernig er best að bregðast við þeim nýju kröfum sem gervigreindin gerir á vinnustöðum landsins? Gestir þáttarins eru Ásta Ásgeirsdóttir deildarstjóri greiningardeildar Vinnumálastofnunar, Hjálmar Gíslason formaður starfshóps um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku stéttarfélags og Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi félagsmálaráðherra. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Ísland í dag. Í seinni hluta þáttarins verður rætt við einn þekktasta stjórnmálagreinanda samtímans, bandaríska sagnfræðinginn og blaðamanninn Anne Applebaum, um breytta utanríkismálastefnu Bandaríkjanna, uppgang og aukið samstarf einræðisstjórna í heiminum, og stöðu Íslands.
  • 8. Siðferðislegt hugleysi og heimurinn í dag

    49:43||Season 2, Ep. 8
    Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna vakti heimsathygli um helgina, þar sem hún sneri ásökunum Benjamíns Netanyahus um siðferðislegt hugleysi upp á hann sjálfan, og gagnrýndi þá þjóðarleiðtoga sem stunda stríðsrekstur og brot á alþjóðalögum. Silfrið verður helgað umræðu um framtíð alþjóðakerfisins, friðsamlegs samstarfs þjóða heims og stöðu Íslands í heiminum. Rætt verður við Þorgerði Katrínu, auk þess sem Friðjón Friðjónsson almannatengill, Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Helgi Steinar Gunnlaugsson blaðamaður og Jón Ólafsson heimspekingur ræða stöðuna í alþjóðamálum. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 7. Trumpískar vindmyllur og tjóðruð gervigreind

    45:31||Season 2, Ep. 7
    Eftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar nokkurra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróuninni. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og orkuöflun fyrir hana orðnar mikilvægur drifkraftur hagvaxtar í Bandaríkjunum og Kína. Hvaða áhrif hefði það á heimsbúskapinn - og Ísland - ef hægt yrði á kapphlaupinu? Og hversu mikla orkuöflun á kostnað náttúruauðlinda er hægt að réttlæta? Andri Snær Magnason rithöfundur, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, og Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri hjá Deloitte, fóru yfir stöðuna. Bjartsýni var ríkjandi á Vesturlöndum um aldamótin og útbreidd trú á sigurför frjálslynds lýðræðis, kapítalisma og hnattvæðingar. Fáir hefðu spáð að aldarfjórðungi síðar einkenndist heimsmyndin af átökum, uppgangi þjóðernishyggju og alþjóðakerfi sem ætti undir högg að sækja. Hvað gerðist – og hvert stefnir heimurinn? Guðmundur Jónsson, sagnfræðingur og prófessor emeritus, fer yfir sviðið í síðari hluta þáttar.
  • 6. Þessi þungu högg - sleggjan og hallalaus fjárlög

    47:26||Season 2, Ep. 6
    Fjárlagafrumvarpið og þingmálaskrá vetrarins verða efst á baugi í Silfrinu í kvöld. Eru hallalaus fjárlög lykillinn að lægri verðbólgu eða eru skatta- og gjaldskrárhækkanir olía á eldinn? Þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Sigurjón Þórðarson og Þórarinn Ingi Pétursson fara yfir stöðuna
  • 5. Ísland - hvað nú? Verkefnalistinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna

    58:36||Season 2, Ep. 5
    Þjóðin hefur svarað spurningunni um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Svarið var neitandi, en þó standa eftir margar spurningar sem þarf að svara á næstu misserum. Silfrið verður helgað þeim verkefnum sem framundan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn, m.a. í gegnum EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið.Gestir verða Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Björn Bjarnason, fv. dómsmálaráðherra, Sigríður Mogensen, sviðstjóri hugverka og iðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins.Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 4. Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu

    56:30||Season 2, Ep. 4
    Meirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu.