Silfrið

  • 6. Þessi þungu högg - sleggjan og hallalaus fjárlög

    47:26||Season 2, Ep. 6
    Fjárlagafrumvarpið og þingmálaskrá vetrarins verða efst á baugi í Silfrinu í kvöld. Eru hallalaus fjárlög lykillinn að lægri verðbólgu eða eru skatta- og gjaldskrárhækkanir olía á eldinn? Þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Sigurjón Þórðarson og Þórarinn Ingi Pétursson fara yfir stöðuna
  • 5. Ísland - hvað nú? Verkefnalistinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna

    58:36||Season 2, Ep. 5
    Þjóðin hefur svarað spurningunni um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Svarið var neitandi, en þó standa eftir margar spurningar sem þarf að svara á næstu misserum. Silfrið verður helgað þeim verkefnum sem framundan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn, m.a. í gegnum EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið.Gestir verða Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Björn Bjarnason, fv. dómsmálaráðherra, Sigríður Mogensen, sviðstjóri hugverka og iðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins.Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 4. Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu

    56:30||Season 2, Ep. 4
    Meirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu.
  • 3. Kjör almennings og viðsjár í veröldinni

    52:24||Season 2, Ep. 3
    Kjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi. Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga, hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Helgi Egilsson, og Sóley Kaldal sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum.Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 2. Atvinnulífið, fullveldið og Evrópusambandið

    01:03:28||Season 2, Ep. 2
    Fólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn. Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðingur, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf., Halla Gunnarsdóttir formaður VR stéttarfélags og Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical/Össurar.Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 1. Formenn takast á um aðildarviðræður

    01:00:44||Season 2, Ep. 1
    Silfrið hefur göngu sína á ný að loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi -  Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir - mætast í beinni útsendingu.
  • 36. þáttur: Um hvað yrði samið í nýjum aðildarviðræðum?

    58:00|
    Hvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst? Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu. Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdóttir prófessor í Evrópurétti við HR, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða helstu málefni sem þyrfti að semja um í aðildarviðræðunum. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 35. þáttur: Hvað myndi það þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið

    50:16|
    Í þætti kvöldsins verður rætt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga  í Evrópusambandið.Gestir þáttarins:Dagur B. Eggertsson þingmaður SamfylkingarinnarHanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úr ViðreisnLilja D. Alfreðsdóttir formaður FramsóknarflokksinsSigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins
  • 34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar

    57:48|
    Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga.Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir.
loading...