Share

cover art for 19. þáttur: Aðildarviðræður að ESB á dagskrá

Silfrið

19. þáttur: Aðildarviðræður að ESB á dagskrá

Dagur B. Eggertsson, Jens Garðar Helgason, María Rut Kristinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson eru gestir Silfursins.


Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum, atvinnuleysi hefur aukist, það er spáð hækkandi verðbólgu, verkalýðshreyfingin varar við að forsendur kjarasamninga gætu brostið í hausti og órói í alþjóðamálum bætir gráu ofan á svart. Forsætisráðherra segir að nú sé réttur tími til að huga að aðildarviðræðum við ESB á ný. Stjórnarandstaðan telur það vera kolranga forgangsröðun.

More episodes

View all episodes

  • 21. þáttur: Epstein-skjölin og framtíð Framsóknarflokksins

    49:41|
    Epstein-skjölin hafa afhjúpað tengsl auðjöfra, stjórnmálamanna og frægðarfólks víða um heim við bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, og margir valdsmenn riða til falls, einkum í Bretlandi og Noregi. Hversu víðfeðm voru tengslin, og ná þau alla leið til Íslands? Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðiprófessor, Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur og Jón Trausti Reynisson blaðamaður ræða um Epstein-skjölin í Silfrinu í kvöld. Í síðari hluta þáttarins er rætt við Ingibjörgu Isaksen og Lilju Alfreðsdóttur, sem báðar sækjast eftir því að verða formaður Framsóknarflokksins.
  • 20. þáttur: Kristrún Frostadóttir: Geigaði sleggjan? Og hvert stefnir í Evrópumálum?

    44:37|
    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir verðbólguskot og blikur á lofti í efnahagsmálum. Síðari hluti þáttarins er helgaður umræðu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðnanna, en hlé var gert á þeim árið 2013. Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur og rektor HR, sem átti sæti í samninganefnd Íslands, og Sigurður Kári Kristjánsson, lögfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, rifja upp gang viðræðnanna og spá í spilin um framhaldið.Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Þórunn Guðjónsdóttir.
  • 18. þáttur: Harðnandi deila um Grænland

    44:36|
    Deilan um Grænland, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og hagsmunir Íslands eru til umræðu í þætti kvöldsins.Í fyrri hluta þáttarins er viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og stjórnarformann Hringborðs norðurslóða.Í seinni hlutanum koma þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir, Sigríður Á. Andersen, Dagbjört Hákonardóttir og Pawel Bartoszek í pallborð.
  • 17. þáttur: Prófkjörsslagur í Samfylkingunni og nýr ráðherra situr fyrir svörum

    44:47|
    Í fyrri hluta þáttarins koma Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Pétur H. Marteinsson rekstrarstjóri. Þau berjast um oddvitasætið í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Í seinni hlutanum er viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson sem er glænýr félags- og húsnæðismálaráðherra.
  • 16. þáttur: Varnir Íslands og Venesúela

    44:22|
    Aðgerðir Bandaríkjastjórnar í Venesúela hafa valdið uppnámi, þótt viðbrögð flestra ríkja hafi einkennst af varkárni. Nú óttast margir að Trump auki ásælni sína á Grænlandi. Hvar stendur Ísland í þessum veruleika, og hvernig gæti varnarsamningur okkar við Bandaríkin virkað við slíkar aðstæður?
  • 15. þáttur: Formenn flokkanna pústa í hálfleik

    56:25|
    Þetta er síðasta Silfur fyrir jól og þingið er á lokametrunum fyrir þinghlé. Formenn flokkanna á Alþingi koma og fara yfir stöðuna eins og hún horfir við þeim á miðjum þingvetri.
  • 14. þáttur: Staða Íslands í nýrri heimsmynd og umdeild samgönguáætlun

    45:13|
    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræðir stöðu Íslands í breyttri heimsmynd eftir að Hvíta húsið birti nýja þjóðaröryggisstefnu fyrir helgi. Í síðari hluta þáttarins koma þau Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri Flokks fólksins, Hildur Þórisdóttir bæjarfulltrúi í Múlaþingi og Stefán Pálsson sagnfræðingur til að ræða stjórnmálaumræðu undanfarinna daga, meðal annars um samgöngumálin.
  • 13.þáttur: Fullveldi Íslands

    42:26|
    Mál sem varða fullveldi Íslands hafa verið nokkuð til umræðu að undanförnu. Evrópusamvinna Íslendinga, varnarsamstarf, stafrænt fullveldi og tungumálið er meðal þess. Leggja allir sama skilning í hugtakið fullveldi? Halldór Benjamín Þorbergsson stjórnarformaður Almannaróms, Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor í sagnfræði við HÍ, Ragnhildur Helgadóttir rektor HR og Lóa Björk Björnsdóttir dagskrárgerðarmaður á Rás 1 eru gestir.