Share

Silfrið
18. þáttur: Harðnandi deila um Grænland
•
Deilan um Grænland, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og hagsmunir Íslands eru til umræðu í þætti kvöldsins.
Í fyrri hluta þáttarins er viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og stjórnarformann Hringborðs norðurslóða.
Í seinni hlutanum koma þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir, Sigríður Á. Andersen, Dagbjört Hákonardóttir og Pawel Bartoszek í pallborð.
More episodes
View all episodes

24.þáttur: Stríð í Miðausturlöndum
45:36|Stríð er hafið í Miðausturlöndum eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Hverjar eru ástæðurnar, og hverjar gætu afleiðingarnar orðið?
23. þáttur: Gervigreind þróast á áður óþekktum hraða
44:35|Þróun gervigreindar verður sífellt hraðari og áhrif hennar á samfélagið og vinnumarkaðinn að verða greinilegri. Vitum við hvert stefnir og erum við tilbúin? Gestir:Andri Snær Magnason rithöfundur Anna Sigríður Islind, prófessor í tölvunarfræði við HRLilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
22. þáttur: Tvöfaldi lásinn og staðan í efnahagsmálum
45:43|Silfrið er helgað efnahagsmálum í kvöld. Gestir okkar eru Gestir þáttarins eru Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við HR. Tekist er á um tengingu almannatrygginga við launavísitölu á þingi, Það ætlar að reynast erfitt að koma verðbólgunni niður og stýrivextir eru háir og. Almenningur situr uppi með hærri lán og vöruverð, en bankarnir og risar á matvörumarkaði mala gull. Festi sem á Krónuna hagnaðist til að mynda um 6,2 milljarða í fyrra, mun meira en spáð hafði verið. Við förum yfir þessi mál og fleiri.
21. þáttur: Epstein-skjölin og framtíð Framsóknarflokksins
49:41|Epstein-skjölin hafa afhjúpað tengsl auðjöfra, stjórnmálamanna og frægðarfólks víða um heim við bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, og margir valdsmenn riða til falls, einkum í Bretlandi og Noregi. Hversu víðfeðm voru tengslin, og ná þau alla leið til Íslands? Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðiprófessor, Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur og Jón Trausti Reynisson blaðamaður ræða um Epstein-skjölin í Silfrinu í kvöld. Í síðari hluta þáttarins er rætt við Ingibjörgu Isaksen og Lilju Alfreðsdóttur, sem báðar sækjast eftir því að verða formaður Framsóknarflokksins.
20. þáttur: Kristrún Frostadóttir: Geigaði sleggjan? Og hvert stefnir í Evrópumálum?
44:37|Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræðir verðbólguskot og blikur á lofti í efnahagsmálum. Síðari hluti þáttarins er helgaður umræðu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðnanna, en hlé var gert á þeim árið 2013. Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur og rektor HR, sem átti sæti í samninganefnd Íslands, og Sigurður Kári Kristjánsson, lögfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, rifja upp gang viðræðnanna og spá í spilin um framhaldið.Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Þórunn Guðjónsdóttir.
19. þáttur: Aðildarviðræður að ESB á dagskrá
46:41|Dagur B. Eggertsson, Jens Garðar Helgason, María Rut Kristinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson eru gestir Silfursins.Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum, atvinnuleysi hefur aukist, það er spáð hækkandi verðbólgu, verkalýðshreyfingin varar við að forsendur kjarasamninga gætu brostið í hausti og órói í alþjóðamálum bætir gráu ofan á svart. Forsætisráðherra segir að nú sé réttur tími til að huga að aðildarviðræðum við ESB á ný. Stjórnarandstaðan telur það vera kolranga forgangsröðun.
17. þáttur: Prófkjörsslagur í Samfylkingunni og nýr ráðherra situr fyrir svörum
44:47|Í fyrri hluta þáttarins koma Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Pétur H. Marteinsson rekstrarstjóri. Þau berjast um oddvitasætið í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Í seinni hlutanum er viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson sem er glænýr félags- og húsnæðismálaráðherra.
16. þáttur: Varnir Íslands og Venesúela
44:22|Aðgerðir Bandaríkjastjórnar í Venesúela hafa valdið uppnámi, þótt viðbrögð flestra ríkja hafi einkennst af varkárni. Nú óttast margir að Trump auki ásælni sína á Grænlandi. Hvar stendur Ísland í þessum veruleika, og hvernig gæti varnarsamningur okkar við Bandaríkin virkað við slíkar aðstæður?