Share

cover art for Meðal fólks

Meðal fólks


Latest episode

  • 13. Tilraunastöðin

    56:35||Ep. 13
    Sumarexem, sýklalyfjaónæmi, smitsjúkdómar í fiskeldum. Í dag heimsækjum við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og kynnum okkur rannsóknirnar sem fara þar fram.

More episodes

View all episodes

  • 12. Veiruheimur

    52:49||Ep. 12
    „Þetta er veiruheimur sem við búum í, ekki öfugt,“ segir Zarko Urosevic, náttúrufræðingur sem starfar við veirurannsóknir á Landspítala. Í dag fræðumst við um veirur og komumst að því hvort veirur geti verið góðar, hvaða áhrif Covid hafði á veirurannsóknir og hvort við séum tilbúin undir næsta veirufaraldur.
  • 11. Allra meina bót

    55:13||Ep. 11
    Ættu læknar að skrifa upp á list til að lækna sjúkdóma? Erum við ekki að horfa nógu lengi á hlutina í kringum okkur? Þetta er spurningar sem fyrstu útskriftarnemar af námsbrautinni Listir og velferð við Listaháskóla Íslands varpa fram í sínum lokaverkefnum. Í maí eru haldnir fjölmargir viðburðir þar sem útskrifarnemar verja og kynna lokaverkefnin sín, og við mætum á einn þeirra til að læra meira um samband listar og samfélags.
  • 10. Þar sem sólin skín ekki

    56:07||Ep. 10
    Dagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi
  • 9. Labbið

    54:51||Ep. 9
    Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum.
  • 8. Kokteilar og barmenning

    58:28||Ep. 8
    Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum. Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón.
  • 7. Íslandsmeistaramót barþjóna

    56:35||Ep. 7
    Á hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori. Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbýr sig og keppir á sinni fyrstu barþjónakeppni.Viðmælendur:Björg Elva FriðfinnsdóttirTeitur Riddermann SchiöthLeó Snæfeld PálssonRóbert Aron Garðarsson ProppéPétur Hafsteinn Kolka ÚlfssonVictoría Lazar SorinsdóttirÓlíver Goði Dýrfjörð