Share

Meðal fólks
Labbið
Ep. 9
•
Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum.
More episodes
View all episodes

10. Þar sem sólin skín ekki
56:07||Ep. 10Dagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi
8. Kokteilar og barmenning
58:28||Ep. 8Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum. Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón.
7. Íslandsmeistaramót barþjóna
56:35||Ep. 7Á hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori. Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbýr sig og keppir á sinni fyrstu barþjónakeppni.Viðmælendur:Björg Elva FriðfinnsdóttirTeitur Riddermann SchiöthLeó Snæfeld PálssonRóbert Aron Garðarsson ProppéPétur Hafsteinn Kolka ÚlfssonVictoría Lazar SorinsdóttirÓlíver Goði Dýrfjörð
6. Arkítektúrkennararnir
53:44||Ep. 6Við erum ennþá í arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands. Í síðasta þætti vörðum tíma með nemendum. Í dag heyrum við í kennurunum. Hvernig takast kennarar í eina arkítektúrskóla landsins á við ábyrgðina að kenna arkítektum framtíðinnar að hugsa um arkítektúr. Eru tengsl milli akademíunnar og raunheimsins? Er LHÍ búbbla?Viðmælendur eru:Auður AtladóttirElísabet Auður GuðnadóttirÞuríður Guðrún PétursdóttirÞórdís Lind JónsdóttirArnbjörg Guðný AtladóttirAnna Sigríður JóhannsdóttirSahar G. Kvaran
5. Arkítektúrnemarnir
56:04||Ep. 5Er byggða umhverfið okkar ljótt? Hvernig lætur það okkur líða? Hvers vegna virðist fólk svona ósátt með nýbyggingar? Til að svara þessum spurningum leitum við á stað þar sem fólk hugsar mikið og gagnrýnið um arkítektúr: Arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands.Við verjum deginum með fimm fimmta árs nemum í arkítektúr sem eru að keppast við að klára meistaraverkefnið sitt. Við ræðum við Evu Lind Elíasdóttur, Svövu Ragnarsdóttur, Kristrúnu Lárusdóttir Hunter, Unu Haraldsdóttur og Joan Tolentino.Aðrir viðmælendur:Þórdís DaðadóttirÍsabella ArnarsdóttirUrður Ýr ÞorsteinsdóttirEmilía ArnarsdóttirKaren Ósk MagnúsdóttirSaule Viktoría TyschenkoGuja Dögg Hauksdóttir
4. Dragfjölskyldutengsl
56:56||Ep. 4Í þættinum verjum við tíma með dragdrottningunum Lolu von Heart og Chardonnay Bublée á meðan þær undirbúa dragsýninguna House of Heart á skemmtistaðnum Kiki, fræðumst um þetta áhugaverða listform og kynnumst dragsenunni í Reykjavík.
3. Bílaumboð og geópólitík
57:00||Ep. 3Af hverju myndu alþjóðleg glæpasamtök gera stórfellda tölvuárás á íslenskt bílaumboð? Til að svara þessari spurningu heimsækjum við Brimborg, framkvæmum ferilsrannsókn á tölvuárás á ónefnt íslenskt fyrirtæki og fræðumst um hópana sem standa að baki aðferðunum sem eru að gjörbreyta hinu geópólitíska landslagi.
2. Frúin
54:41||Ep. 2Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar nota vímuefni í æð, sumir eru heimilislausir, allir í mjög viðkvæmri stöðu. Við förum á vakt í Frúnni, bíl Frú Ragnheiðar sem keyrir um höfuðborgarsvæðið og veitir heilbrigðisþjónustu, nálaskipti og sálfélagslegan stuðning, og ræðum við sjálfboðaliðana og fólkið sem leitar í Frúnna.