Share

cover art for Þar sem sólin skín ekki

Meðal fólks

Þar sem sólin skín ekki

Ep. 10

Dagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi

More episodes

View all episodes

  • 13. Tilraunastöðin

    56:35||Ep. 13
    Sumarexem, sýklalyfjaónæmi, smitsjúkdómar í fiskeldum. Í dag heimsækjum við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og kynnum okkur rannsóknirnar sem fara þar fram.
  • 12. Veiruheimur

    52:49||Ep. 12
    „Þetta er veiruheimur sem við búum í, ekki öfugt,“ segir Zarko Urosevic, náttúrufræðingur sem starfar við veirurannsóknir á Landspítala. Í dag fræðumst við um veirur og komumst að því hvort veirur geti verið góðar, hvaða áhrif Covid hafði á veirurannsóknir og hvort við séum tilbúin undir næsta veirufaraldur.
  • 11. Allra meina bót

    55:13||Ep. 11
    Ættu læknar að skrifa upp á list til að lækna sjúkdóma? Erum við ekki að horfa nógu lengi á hlutina í kringum okkur? Þetta er spurningar sem fyrstu útskriftarnemar af námsbrautinni Listir og velferð við Listaháskóla Íslands varpa fram í sínum lokaverkefnum. Í maí eru haldnir fjölmargir viðburðir þar sem útskrifarnemar verja og kynna lokaverkefnin sín, og við mætum á einn þeirra til að læra meira um samband listar og samfélags.
  • 9. Labbið

    54:51||Ep. 9
    Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum.
  • 8. Kokteilar og barmenning

    58:28||Ep. 8
    Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum. Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón.
  • 7. Íslandsmeistaramót barþjóna

    56:35||Ep. 7
    Á hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori. Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbýr sig og keppir á sinni fyrstu barþjónakeppni.Viðmælendur:Björg Elva FriðfinnsdóttirTeitur Riddermann SchiöthLeó Snæfeld PálssonRóbert Aron Garðarsson ProppéPétur Hafsteinn Kolka ÚlfssonVictoría Lazar SorinsdóttirÓlíver Goði Dýrfjörð
  • 6. Arkítektúrkennararnir

    53:44||Ep. 6
    Við erum ennþá í arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands. Í síðasta þætti vörðum tíma með nemendum. Í dag heyrum við í kennurunum. Hvernig takast kennarar í eina arkítektúrskóla landsins á við ábyrgðina að kenna arkítektum framtíðinnar að hugsa um arkítektúr. Eru tengsl milli akademíunnar og raunheimsins? Er LHÍ búbbla?Viðmælendur eru:Auður AtladóttirElísabet Auður GuðnadóttirÞuríður Guðrún PétursdóttirÞórdís Lind JónsdóttirArnbjörg Guðný AtladóttirAnna Sigríður JóhannsdóttirSahar G. Kvaran
  • 5. Arkítektúrnemarnir

    56:04||Ep. 5
    Er byggða umhverfið okkar ljótt? Hvernig lætur það okkur líða? Hvers vegna virðist fólk svona ósátt með nýbyggingar? Til að svara þessum spurningum leitum við á stað þar sem fólk hugsar mikið og gagnrýnið um arkítektúr: Arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands.Við verjum deginum með fimm fimmta árs nemum í arkítektúr sem eru að keppast við að klára meistaraverkefnið sitt. Við ræðum við Evu Lind Elíasdóttur, Svövu Ragnarsdóttur, Kristrúnu Lárusdóttir Hunter, Unu Haraldsdóttur og Joan Tolentino.Aðrir viðmælendur:Þórdís DaðadóttirÍsabella ArnarsdóttirUrður Ýr ÞorsteinsdóttirEmilía ArnarsdóttirKaren Ósk MagnúsdóttirSaule Viktoría TyschenkoGuja Dögg Hauksdóttir