Share

Krakkaheimskviður
Allt um ramadan
Ep. 64
•
Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðist Karitas um ramadan með fréttamanninum Ólöfu Ragnarsdóttur og Embla Bachmann kíkir í Stórmoskuna í Reykjavík og ræðir við unga múslima um hátíðina.
More episodes
View all episodes

68. Hvað er sumartími og hvers vegna breyta Íslendingar ekki klukkunni?
15:09||Ep. 68Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar svefnvana Karitas hvers vegna klukkunum er breytt tvisvar á ári víðsvegar um heiminn - og hvers vegna það er ekki gert á Íslandi.
67. Hvað er að gerast í Íran?
16:43||Ep. 67Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur hvað er að gerast í Íran. Mið-Austurlandafræðingurinn Magnús Þorkell Bernharðsson er gestur þáttarins og segir okkur frá landinu, sögu þess og atburðum síðustu vikna.
66. Apinn Punch og metár hjá LEGO
15:08||Ep. 66Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um ofurkrúttið Punch, lítinn apa unga sem vann hug og hjörtu fólks um allan heim fyrr í mánuðinum. Í seinni hluta þáttarins skoðar Karitas sögu LEGO og metárið þeirra 2025.
65. 150 ár frá fyrsta símtalinu
15:03||Ep. 65Í þessum þætti Krakkaheimskviða höldum við upp á 150 ára afmæli talsímans með sögulegri yfirferð. Góðir gestir segja frá fyrstu símunum sem þeir muna eftir og við komumst að því hvernig við fórum frá því að geta bara hringt í næsta herbergi í litlu lófatölvuna sem við þekkjum í dag.
63. Pöndupólitík
14:58||Ep. 63Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas pöndupólitík, eða pöndudiplómasíu og sögu risapöndunnar. Útvarpskonan Vera Illugadóttir og doktorsneminn Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir eru gestir þáttarins.
62. Bad Bunny og Ofurskálin
15:57||Ep. 62Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas Ofurskálina sem fór fram síðustu helgi, tónlistaratriði Púertó Ríkó-mannsins Bad Bunny og hvernig það tengist stjórnmálum í Bandaríkjunum. Fréttamaðurinn Ingunn Lára Kristjánsdóttir er gestur þáttarins.
61. Vetrarólympíuleikarnar
14:54||Ep. 61Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Vetrarólympíuleikana sem hófust á föstudaginn. Karitas rekur sögu leikanna og ræðir um keppnisgreinarnar við íþróttafréttamanninn Gunnar Birgisson.
60. EM og saga handboltans
14:16||Ep. 60Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas þjóðaríþróttina handbolta. Hvaðan kemur hún og hvers vegna er handbolti svona vinsæll á Íslandi? Íþróttafréttamaðurinn Helga Margrét Höskuldsdóttir er gestur þáttarins.