Share

Krakkaheimskviður
Artemis II og menn á tunglinu
Ep. 70
•
Í þessum þætti Krakkaheimskviða beinum við sjónum okkar að Artemis II, leiðangrinum sem farinn var á tunglið fyrr í mánuðinum. Sævar Helgi Bragason er gestur þáttarins og veit allt um málið.
More episodes
View all episodes

73. Eurovision og Attenborough
15:37||Ep. 73Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við í heimi sjónvarpsins. Gísli Marteinn Baldursson er gestur þáttarins og ræðir við Karitas um Eurovision sem hefst á þriðjudaginn. Í seinni hluta þáttarins kynnumst við fjölmiðlamanninum David Attenborough sem varð 100 ára á föstudaginn.
72. Hvað er Evrópusambandið?
15:07||Ep. 72Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðum við Evrópusambandið, ESB. Það hefur verið mikið til umræðu, bæði í fyrri þáttum Krakkaheimskviða og meðal Íslendinga. Hvers vegna? Og hvað gerir þetta samband eiginlega? Fréttamaðurinn Þorgils Jónsson er gestur þáttarins.
71. Sögulegar kosningar í Ungverjalandi
12:49||Ep. 71Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við til Ungverjalands og kynnum okkar nýafstaðnar og sögulegar þingkosningar þar. Hverjir eru Viktor Orbán og Péter Magyar? Hvernig tengist Evrópusambandið kosningunum? Fréttamaðurinn Björn Malmquist veit allt um málið og er gestur þáttarins.
69. Kosningar í Danmörku og Færeyjum
15:01||Ep. 69Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur þingkosningar sem nýlega fóru fram í Danmörku og Færeyjum. Stjórnmálafræðingurinn Sara Þöll Finnbogadóttir býr í Danmörku og fylgdist vel með kosningunum.
68. Hvað er sumartími og hvers vegna breyta Íslendingar ekki klukkunni?
15:09||Ep. 68Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar svefnvana Karitas hvers vegna klukkunum er breytt tvisvar á ári víðsvegar um heiminn - og hvers vegna það er ekki gert á Íslandi.
67. Hvað er að gerast í Íran?
16:43||Ep. 67Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur hvað er að gerast í Íran. Mið-Austurlandafræðingurinn Magnús Þorkell Bernharðsson er gestur þáttarins og segir okkur frá landinu, sögu þess og atburðum síðustu vikna.
66. Apinn Punch og metár hjá LEGO
15:08||Ep. 66Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um ofurkrúttið Punch, lítinn apa unga sem vann hug og hjörtu fólks um allan heim fyrr í mánuðinum. Í seinni hluta þáttarins skoðar Karitas sögu LEGO og metárið þeirra 2025.
65. 150 ár frá fyrsta símtalinu
15:03||Ep. 65Í þessum þætti Krakkaheimskviða höldum við upp á 150 ára afmæli talsímans með sögulegri yfirferð. Góðir gestir segja frá fyrstu símunum sem þeir muna eftir og við komumst að því hvernig við fórum frá því að geta bara hringt í næsta herbergi í litlu lófatölvuna sem við þekkjum í dag.