Share

Gull og grænir skógar
Litur í lífið: Haustlaukar, haustlitir og garðhúsið
Ep. 20
•
Í þættinum er fjallað um úrval litríkra haustlauka og gróðursetningu þeirra sem fer fram í september og október og jafnvel lengur. Rætt er um mismunandi tegundir haustlauka og eiginlega þeirra. Vikið er að haustlitunum sem skarta sínu fegursta um þessar mundir. Að lokum er kastljósinu bent að garðhúsunum sem hafa sprottið upp að undanförnu, eins konar notaleg gróðurhús í garðinum til að njóta hans lengur en ella.
Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Bryndís Björk Reynisdóttir
More episodes
View all episodes

19. Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar
50:15||Ep. 19Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk eins og sögufrægar rósblaðarigningar. Í seinni hluta þáttarins er kastljósinu beint sérstaklega að rósaættinni sem er fjölbreytt og finnst meðal annars í íslensku flórunni. Rætt er um runnamururnar sem skarta sínum oftast gulu blómum langt fram eftir hausti sem og þjóðarblómið holtasóley, maríustakk, fjalldalafífil, Ulleungreynir/Pálmareynir ‘Dodong’, hindber, brómber, hegg og fleira úr rósaætt. Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.
18. Rósarækt og hinn harðgerustu yrki fyrir íslenskar aðstæður
51:58||Season 1, Ep. 18Í þættinum er fjallað um þá tegund blóma sem hefur heillað okkur mannfólkið hvað mest og lengst – rósir. Rætt er um táknfræðilegt hlutverk þeirra en þó allra mest um rósarækt á Íslandi og þau yrki rósa sem þykja hvað harðgerðust. Slíkar rósir má sjá á umferðartorgum víða og nálægt sjávarsíðunni enda eru margar þeirra vind- og saltþolnar. Minnst er á brautryðjendastarf Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra. Einnig er fjallað um rósir sem notaðar eru í skreytingar og muninn á þeim og garðrósum. Rætt er við rósaræktendur og meðlimi í Rósaklúbbnum. Viðmælendur: Hjörtur Þorbjörnsson og Steinar Björgvinsson.
17. Ísland á tertíer og ísöld: Gróðurvendingar og nýtt upphaf íslensku flórunnar.
46:36||Season 1, Ep. 17Í þættinum er fjallað um gróður á Íslandi á öldunum fyrir ísöld þegar loftlag var hlýrra eða á hinu svokallaða tertíer-tímabili jarðsögunnar. Ýmsar minjar frá þeim tíma sýna að hér á landi uxu á tegundir sem garðeigendur dagsins í dag leitast við að koma á legg. Rætt er um hvaða afleiðingar kólnunin rétt fyrir ísöld hafði og þær breytingar sem verða þegar siglt er inn í kvarter-tímabil jarðsögunnar sem einkennist af hitasveiflum og tilkomu mannsins. Fjallað er um hvaðan tegundirnar komu eftir ísöld og mögulega hvernig þær námi land – sem og hvaða tegund hefði mögulega geta lifað af ísöld á jökulskerjum ef það var raunin. Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.
16. Vesturbæjarvíðir, Schierbeck–reynirinn og garðfuglagróður.
54:17||Season 1, Ep. 16Í lokaþætti þáttaraðarinnar er fjallað um sögufræg tré en einnig gróður sem garðfuglar geta notið góðs af. Rætt er sérstaklega um hlíðaramal í samhengi við fuglafóðrun en runninn hefur einnig notið vinsælda hjá mönnum. Meginþorri þáttarins fjallar um sögufræ tré en staldrað er við Schierbeck-reyninn sem er silfurreynir og finna má í Fógetagarðinum við Aðalstræti. Þá er einnig rætt um gljámispil sem stóð þar og er einnig kenndur við Schierbeck landlækni. Að lokum er kastljósinu beint að vesturbæjarvíði og sögu hans sem er hvergi nærri lokið. Viðmælendur: Ragna Árnadóttir, Magnús Björnsson, Steinar Björgvinsson og Þráinn Hauksson.
15. Garðurinn, skipulag og limgerðin stór og smá
55:10||Season 1, Ep. 15Í þættinum er fjallað um hlutverk og skipulag limgerða. Limgerði hafa lengi verið nýtt til að skipta upp landi, stýra umferð, fela svæði og prýða. Rætt er um limgerði í sögulegu samhengi, völundarhús og svo hinn fallegustu og eftirsóknarverðustu limgerði. Fjallað er um tegundir sem henta í limgerði hér á landi. Í þættinum er einnig rætt um stefnur og strauma úr garðlistasögunni í samhengi við skipulag garða og þá stíla sem hafa haft áhrif á hvoru tveggja heimsfræga garða og hinn almenna garðyrkjumann. Viðmælendur: Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.
14. Gróður gerir meira en að þekja: Ilmur, angan, lykt, áferð og skógarbað
55:46||Season 1, Ep. 14
13. Garðagróður frá Kína: Fjölbreyttar kínverskar plöntur, fræsöfnun Joseph Rock og framtíðarhljómur
54:41||Season 1, Ep. 13Í þættinum er haldið í ferðalag til Kína út frá vel þekktum garðagróðri á Íslandi. Kastljósinu er beint sérstaklega að fjölæringum, gulbambus, reynitegundum og runnum frá Kína. Fjallað er um fræsöfnunarleiðangra Joseph Rock sem varði 27 árum í að ferðast um Kína og safna fræjum og gögnum en reynir ‘Joseph Rock’ ber heiti hans. Rætt er um stærsta skógrækta- og uppgræðslurverkefni heims, „The great green wall of China“. Einnig kemur næsthæsta tré í heimi við sögu og hið sögufræga musteristré – Ginkgo biloba. Að lokum er leitast við að spá fyrir um framtíðina út frá kínverskum tækninýjungum. Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson og Steinar Björgvinsson.
12. Skjól og ætur garðagróður
54:11||Season 1, Ep. 12Í þættinum er fjallað um um skjól, skjólbelti og skjólveggi – en einnig um fjölbreyttar tegundir garðagróðurs sem má leggja sér til munns. Gefin eru ráð varðandi skjólbeltagerð og rætt við sérfræðinga sem þekkja ætan garðagróður það vel að þeir geta tínt upp í sig mismunandi tegundir eftir þörfum. Rætt er um brautryðjendur í útiræktun, flautur úr hvönn, æt sumarblóm, æta fjölæringa svo og runna og tré sem gefa uppskeru sem ýmist má tína beint upp í sig, steikja í orly-deigi, sulta eða nýta sem skraut á kökur eða í salat. Viðmælendur eru Auður I. Ottesen, Auður Kjartansdóttir og Steinar Björgvinsson. Flautuleikur: Eyjólfur Eyjólfsson.