Share

cover art for Gróður og yfirnáttúran í náttúrunni í Hafnarfirði.

Gull og grænir skógar

Gróður og yfirnáttúran í náttúrunni í Hafnarfirði.

Season 1, Ep. 22
•

Í þættinum er ráfað í kringum Hamarinn í Hafnarfirði og staldrað sérstaklega við Brekkugötu og Austurgötu. Rætt er um yfirnáttúru og þær umgengnisreglur og bannhelgi sem hvílir á vissum stöðum á þessu svæði. Í senn er staldrað við álfakonungshöllina sjálfa, svartálfabyggðir, Fríkirkjuna í Hafnarfirði og síðast en ekki síst merkan gróður, eins og Bogsýrenu ‘Mjallhvít’ og gráöspina frægu sem valin var tré ársins 2006 og er í eigu Hvals hf. Viðmælendur: Halldóra Pálmarsdóttir, Steinar Björgvinsson, Símon Jón Jóhannsson og Jónatan Garðarsson.

More episodes

View all episodes

  • 27. Tré sem mótuðu mannkynssöguna

    50:12||Season 1, Ep. 27
    Í þættinum eru einstaka tré eða vissar tegundir trjáa skoðuð í ljósi sögunnar; tré sem hafa mótað söguna og jafnvel haft mikil áhrif á framvindu hennar. Rætt er um Karl II Englandskonung sem átti eik einni líf sitt að launa. Rýnt er í útþenslu Rómaveldis til norðurs og velt upp hvernig sú ásókn tengist timburnytjum. Einnig er sagt frá gróðursetningum Napóleons á súlu-svartöspum frá Langbarðalandi. Þá er rætt um draugaskipið Jamestown sem strandaði utan við Hafnir og þann mikla eikarfarm sem það hafði að geyma. Eikurnar úr Jamestown höfðu mikil áhrif á húsa- og brúarsmíði á Íslandi sem enn má njóta góðs af í dag. Þá kemur einnig Möðrufellsreynirinn við sögu. Viðmælendur: Stefán Pálsson, Guðmundur Árland Hannesson og Steinar Björgvinsson.
  • 26. Þingholt: Merkur gróður, saga og brautryðjendastarf Einars Helgasonar

    50:05||Season 1, Ep. 26
    Gengið er um Þingholtin og sunnan við Þingholt þar sem gróðrarstöð Einars Helgassonar stóð. Rætt er um merkilegan gróður við Laufásveg, Fjölnisveg, Urðarstíg og víðar. Fjallað er sérstaklega um bergfléttur eins og þá sem kennd hefur verið við bæði Hringbraut 10 og Sóleyjargötu 37 – sem er í raun og veru sama húsið. Beyki og askur við Laufásveg eru heimsótt en askurinn var stærsta tré Reykjavíkur um tíma. Smakkað er á kirsuberjum af fuglakirsi við Urðarstíg. Gengið er um með Samson Bjarnari Harðarssyni garðyrkjufræðingi og langslagsarkitekt. Sveighyrnir, svartelri og umhirða á öldnum ilmreyni koma einnig við sögu. Viðmælandi: Samson Bjarnar Harðarson.
  • 25. Hrekkjavaka, uppskerulok og óhugnanlegur gróður

    51:39||Season 1, Ep. 25
    Gróðurríkið spilar stórt hlutverk í hrekkjavöku og ýmissi hjátrú og hefðum sem henni tengjast. Í þættinum er hrekkjavaka sett í samhengi við uppskerulok, trúarsiði, Allra heilagra messu, leiki, nornir og galdrajurtir. Rætt er við Vilmund Hansen og Steinar Björgvinsson um alrúnu, gaddepli, eitraðar plöntur af náttskuggaætt, grasker, vofuleg tré eins og alaskasýpris og þallir, sem og kjötætuplöntur og sníkjuplöntur úr íslensku flórunni. Viðmælendur: Vilmundur Hansen og Steinar Björgvinsson.
  • 24. Miklabraut, Hlíðar og Holt: Einkenni, gróður og brautryðjendur

    54:16||Season 1, Ep. 24
    Í þættinum er dvalið við Miklubraut og Hringbraut þar sem linditré og hin sögufræga Hringbrautarrós koma við sögu. Staldrað er við Klambratún og Skaftahlíð þar sem fyrsti landslagsarkitekt landsins, Jón H. Björnsson, átti heima. Rætt er við sérfræðinga um einkenni Hlíða og Holts. Staldrað er við funkish-stíl Norðurmýrar og litið er inn í vel lukkaða garða Búsetaíbúðanna við Einholt, Þverholt og Háteigsveg þar sem 150 plöntutegundir njóta sín. Húsin þykja vel heppnuð en arkitektarnir voru Guðrún Ingvarsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. Rætt er hvorutveggja um gróin hverfi og nýstárlegri verkefni sem setja má í samhengi við þéttingu byggðar á gömlum iðnaðarreitum. Viðmælendur: Anna Dröfn Ágústsdóttir, Þráinn Hauksson og Hermann Georg Gunnlaugsson.
  • 23. Hellisgerði: Gróður og saga

    52:02||Season 1, Ep. 23
    Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs. Staldrað er við klifurhortensíu og gráösp. Óvænt saga af samskiptum manna og álfa við jaðar garðsins er opinberuð. Viðmælendur: Jónatan Garðarsson, Anton Helgi Jónsson og Steinar Björgvinsson.
  • 21. Göngutúrar langir og stuttir

    49:25||Season 1, Ep. 21
    Í þættinum er fjallað sérstaklega um göngutúra, rölt og labb. Göngutúrar eru skoðaðir sem ferðamáti og lífsstíll – en líka sem hversdagslegt fyrirbæri. Rætt er um áhrif labbs á umhverfi og menningu. Dæmi eru tekin um heimspekinga og rithöfunda sem nýttu sér göngutúra til innblásturs og þekkingarsköpunar en einnig er rætt við fólk sem fer í göngutúra vegna vinnu, til dæmis við fræsöfnun eða söfnun græðlinga. Viðmælendur nýta sér sumir hverjir göngutúra til kennslu og aðrir hafa farið í göngutúr daglega í áraraðir – og aldrei misst úr dag. Viðmælendur: Steinar Björgvinsson, Rósa Bjarnadóttir, Jón Ásgeir Kalmansson og Gunndís Ýr Finnbogadóttir.
  • 20. Litur í lífið: Haustlaukar, haustlitir og garðhúsið

    51:24||Season 1, Ep. 20
    Í þættinum er fjallað um úrval litríkra haustlauka og gróðursetningu þeirra sem fer fram í september og október og jafnvel lengur. Rætt er um mismunandi tegundir haustlauka og eiginlega þeirra. Vikið er að haustlitunum sem skarta sínu fegursta um þessar mundir. Að lokum er kastljósinu bent að garðhúsunum sem hafa sprottið upp að undanförnu, eins konar notaleg gróðurhús í garðinum til að njóta hans lengur en ella. Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Bryndís Björk Reynisdóttir
  • 19. Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar

    50:15||Season 1, Ep. 19
    Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk eins og sögufrægar rósblaðarigningar. Í seinni hluta þáttarins er kastljósinu beint sérstaklega að rósaættinni sem er fjölbreytt og finnst meðal annars í íslensku flórunni. Rætt er um runnamururnar sem skarta sínum oftast gulu blómum langt fram eftir hausti sem og þjóðarblómið holtasóley, maríustakk, fjalldalafífil, Ulleungreynir/Pálmareynir ‘Dodong’, hindber, brómber, hegg og fleira úr rósaætt.  Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.