Share

Gull og grænir skógar
Göngutúrar langir og stuttir
Season 1, Ep. 21
•
Í þættinum er fjallað sérstaklega um göngutúra, rölt og labb. Göngutúrar eru skoðaðir sem ferðamáti og lífsstíll – en líka sem hversdagslegt fyrirbæri. Rætt er um áhrif labbs á umhverfi og menningu. Dæmi eru tekin um heimspekinga og rithöfunda sem nýttu sér göngutúra til innblásturs og þekkingarsköpunar en einnig er rætt við fólk sem fer í göngutúra vegna vinnu, til dæmis við fræsöfnun eða söfnun græðlinga. Viðmælendur nýta sér sumir hverjir göngutúra til kennslu og aðrir hafa farið í göngutúr daglega í áraraðir – og aldrei misst úr dag. Viðmælendur: Steinar Björgvinsson, Rósa Bjarnadóttir, Jón Ásgeir Kalmansson og Gunndís Ýr Finnbogadóttir.
More episodes
View all episodes

24. Miklabraut, Hlíðar og Holt: Einkenni, gróður og brautryðjendur
54:16||Season 1, Ep. 24Í þættinum er dvalið við Miklubraut og Hringbraut þar sem linditré og hin sögufræga Hringbrautarrós koma við sögu. Staldrað er við Klambratún og Skaftahlíð þar sem fyrsti landslagsarkitekt landsins, Jón H. Björnsson, átti heima. Rætt er við sérfræðinga um einkenni Hlíða og Holts. Staldrað er við funkish-stíl Norðurmýrar og litið er inn í vel lukkaða garða Búsetaíbúðanna við Einholt, Þverholt og Háteigsveg þar sem 150 plöntutegundir njóta sín. Húsin þykja vel heppnuð en arkitektarnir voru Guðrún Ingvarsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. Rætt er hvorutveggja um gróin hverfi og nýstárlegri verkefni sem setja má í samhengi við þéttingu byggðar á gömlum iðnaðarreitum. Viðmælendur: Anna Dröfn Ágústsdóttir, Þráinn Hauksson og Hermann Georg Gunnlaugsson.
23. Hellisgerði: Gróður og saga
52:02||Season 1, Ep. 23Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs. Staldrað er við klifurhortensíu og gráösp. Óvænt saga af samskiptum manna og álfa við jaðar garðsins er opinberuð. Viðmælendur: Jónatan Garðarsson, Anton Helgi Jónsson og Steinar Björgvinsson.
22. Gróður og yfirnáttúran í náttúrunni í Hafnarfirði.
49:42||Season 1, Ep. 22Í þættinum er ráfað í kringum Hamarinn í Hafnarfirði og staldrað sérstaklega við Brekkugötu og Austurgötu. Rætt er um yfirnáttúru og þær umgengnisreglur og bannhelgi sem hvílir á vissum stöðum á þessu svæði. Í senn er staldrað við álfakonungshöllina sjálfa, svartálfabyggðir, Fríkirkjuna í Hafnarfirði og síðast en ekki síst merkan gróður, eins og Bogsýrenu ‘Mjallhvít’ og gráöspina frægu sem valin var tré ársins 2006 og er í eigu Hvals hf. Viðmælendur: Halldóra Pálmarsdóttir, Steinar Björgvinsson, Símon Jón Jóhannsson og Jónatan Garðarsson.
20. Litur í lífið: Haustlaukar, haustlitir og garðhúsið
51:24||Season 1, Ep. 20Í þættinum er fjallað um úrval litríkra haustlauka og gróðursetningu þeirra sem fer fram í september og október og jafnvel lengur. Rætt er um mismunandi tegundir haustlauka og eiginlega þeirra. Vikið er að haustlitunum sem skarta sínu fegursta um þessar mundir. Að lokum er kastljósinu bent að garðhúsunum sem hafa sprottið upp að undanförnu, eins konar notaleg gróðurhús í garðinum til að njóta hans lengur en ella. Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Bryndís Björk Reynisdóttir
19. Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar
50:15||Season 1, Ep. 19Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk eins og sögufrægar rósblaðarigningar. Í seinni hluta þáttarins er kastljósinu beint sérstaklega að rósaættinni sem er fjölbreytt og finnst meðal annars í íslensku flórunni. Rætt er um runnamururnar sem skarta sínum oftast gulu blómum langt fram eftir hausti sem og þjóðarblómið holtasóley, maríustakk, fjalldalafífil, Ulleungreynir/Pálmareynir ‘Dodong’, hindber, brómber, hegg og fleira úr rósaætt. Viðmælendur: Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.
18. Rósarækt og hinn harðgerustu yrki fyrir íslenskar aðstæður
51:58||Season 1, Ep. 18Í þættinum er fjallað um þá tegund blóma sem hefur heillað okkur mannfólkið hvað mest og lengst – rósir. Rætt er um táknfræðilegt hlutverk þeirra en þó allra mest um rósarækt á Íslandi og þau yrki rósa sem þykja hvað harðgerðust. Slíkar rósir má sjá á umferðartorgum víða og nálægt sjávarsíðunni enda eru margar þeirra vind- og saltþolnar. Minnst er á brautryðjendastarf Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra. Einnig er fjallað um rósir sem notaðar eru í skreytingar og muninn á þeim og garðrósum. Rætt er við rósaræktendur og meðlimi í Rósaklúbbnum. Viðmælendur: Hjörtur Þorbjörnsson og Steinar Björgvinsson.
17. Ísland á tertíer og ísöld: Gróðurvendingar og nýtt upphaf íslensku flórunnar.
46:36||Season 1, Ep. 17Í þættinum er fjallað um gróður á Íslandi á öldunum fyrir ísöld þegar loftlag var hlýrra eða á hinu svokallaða tertíer-tímabili jarðsögunnar. Ýmsar minjar frá þeim tíma sýna að hér á landi uxu á tegundir sem garðeigendur dagsins í dag leitast við að koma á legg. Rætt er um hvaða afleiðingar kólnunin rétt fyrir ísöld hafði og þær breytingar sem verða þegar siglt er inn í kvarter-tímabil jarðsögunnar sem einkennist af hitasveiflum og tilkomu mannsins. Fjallað er um hvaðan tegundirnar komu eftir ísöld og mögulega hvernig þær námi land – sem og hvaða tegund hefði mögulega geta lifað af ísöld á jökulskerjum ef það var raunin. Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.
16. Vesturbæjarvíðir, Schierbeck–reynirinn og garðfuglagróður.
54:17||Season 1, Ep. 16Í lokaþætti þáttaraðarinnar er fjallað um sögufræg tré en einnig gróður sem garðfuglar geta notið góðs af. Rætt er sérstaklega um hlíðaramal í samhengi við fuglafóðrun en runninn hefur einnig notið vinsælda hjá mönnum. Meginþorri þáttarins fjallar um sögufræ tré en staldrað er við Schierbeck-reyninn sem er silfurreynir og finna má í Fógetagarðinum við Aðalstræti. Þá er einnig rætt um gljámispil sem stóð þar og er einnig kenndur við Schierbeck landlækni. Að lokum er kastljósinu beint að vesturbæjarvíði og sögu hans sem er hvergi nærri lokið. Viðmælendur: Ragna Árnadóttir, Magnús Björnsson, Steinar Björgvinsson og Þráinn Hauksson.