Share

cover art for Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga

Víðsvegar

Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga

Season 1, Ep. 10

Þátturinn er að þessu sinni helgaður undirbúningi og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga, en að því verkefni koma mörg hundruð manns.


Spjallað verður við þrjá formenn kjörstjórna, á mismunandi tímapunktum í ferlinu. Þannig fáum við innsýn í verkefni kjörstjórna í ólíkum sveitarfélögum á mismunandi tímum við undirbúning kosninga. Við endum síðan þáttinn á skrifstofu landskjörstjórnar og forvitnumst um þeirra aðkomu að ferlinu.


Viðmælendur: Sveinn Gestsson í Dalabyggð, Helga Eymundsdóttir á Akureyri, Sveinbjörn Eyjólfsson í Borgarbyggð og Skorradalshreppi, og Ástríður Jóhannesdóttir hjá landskjörstjórn.


Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

More episodes

View all episodes

  • 14. Litið yfir farinn veg

    50:17||Season 1, Ep. 14
    Þessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
  • 13. Tvö verðlaunabú í Eyjafirði og framkvæmdastjóri á tímamótum

    53:24||Season 1, Ep. 13
    Í þetta skipti erum við komin í Eyjafjörð þar sem ætlunin er að forvitnast aðeins um landbúnað í firðinum. Við heimsækjum kúabúið á Espihóli og svínabúið á Sölvastöðum. Bæði þessi bú eru í Eyjafjarðarsveit en eiga það líka sameiginlegt að hafa nýlega fengið verðlaun frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Nautgriparæktarverðlaun ársins fóru á Espihól og svínabúinu á Sölvastöðum var veitt Hvatningarverðlaun sambandsins. Einnig er rætt við framvkæmdastjóra Búnaðarsambands Eyjafjarðar sem stendur á tímamótum. Viðmælendur: Sigurgeir B. Hreinsson, Ástþór Örn Árnason, Svana Ósk Rúnarsdóttir og Ingvi Stefánsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 12. Flakkað um Ólafsfjörð

    49:59||Season 1, Ep. 12
    Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði. Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræðum við harðduglegan verslunareiganda sem rekur verslun sem opin er allan sólarhringinn, forvitnumst um hvað er að gerast á hafnarsvæðinu og heyrum þar af nýrri samfélagsmiðstöð og listarými. Viðmælendur: Þröstur Ólafsson, Björk Óladóttir, Kristín Karlsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson, Alina Streza, Gauti Már Rúnarsson og Ida Semey.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 11. Menning og ferðaþjónusta á Akureyri

    47:42||Season 1, Ep. 11
    Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Samtaka ferðaþjónustunnar.Viðmælendur: Guðrún Dröfn Whitehead, Vera Vilhjálmsdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Helga Nína Helgadóttir, Halldór Óli Kjartansson, Katrín Harðardóttir, Steinunn María Sveinsdóttir, Haraldur Þór Egilsson og Jóhannes Þór Skúlason.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 9. Fjöruferð og þörungarannsóknir

    51:03||Season 1, Ep. 9
    Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar. Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Við slógumst í för með þeim. Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason og Valtýr Sigurðason.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 8. Flakkað á milli þriggja almenningsbókasafna

    53:53||Season 1, Ep. 8
    Í þetta skipti verður þátturinn helgaður almenningsbókasöfnum. Við flökkum á milli þriggja sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Mosfellsbæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar - og kynnumst bókasafninu á hverjum stað fyrir sig. Viðmælendur: Auður Halldórsdóttir og Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir á Bókasafni Mosfellsbæjar, Lísa Zachrison Valdimarsdóttir og Eyrún Ósk Jónsdóttir á Bókasafni Kópavogs, og Sigrún Guðnadóttir og Hugrún Margrét Óladóttir á Bókasafni Hafnarfjarðar.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 7. Áherslur eldri borgara fyrir kosningar

    52:49||Season 1, Ep. 7
    Í dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land. Viðmælendur: Björn Snæbjörnsson, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Magnús J. Magnússon og Ragnheiður Hjálmarsdóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 6. Hvernig blóð er unnið og sent um allt land

    54:25||Season 1, Ep. 6
    Í dag fræðumst við um hvernig blóð, sem safnað er af Blóðbankankanum, er unnið og svo flutt um allt land - en starfsemi Blóðbankans er mikilvægur hluti heilbrigðiskerfisins svo hægt sé að framkvæma margar algengar og lífsnauðsynlegar aðgerðir og læknismeðferðir. Viðmælendur:Hanna Vigdís Jóhannesdóttir og Stefán Rafn Stefánsson hjúkrunarfræðingar við Blóðbankann á Akureyri. Monica og Árni Jökull Gunnarsson blóðgjafar. Ína Björg Hjálmarsdóttir deildarstjóri Blóðbankans. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.