Share

cover art for Þekking að hverfa: Spjallað um torfhús í Skagafirði

Víðsvegar

Þekking að hverfa: Spjallað um torfhús í Skagafirði

Season 2, Ep. 5
•

Sífellt færri kunna að gera við torfhús og hvað gerist ef sú þekking hverfur alveg? Í dag kynnumst við systkinunum Sigríði Sigurðardóttur og Helga Sigurðssyni, sem ólust upp á bænum Stóru-Ökrum í Skagafirði. Þau hafa bæði lagt mikið af mörkum til varðveislu og viðhalds torfbæja. Helgi ferðast um allt land og hefur sérhæft sig í viðgerðum á torfbæjum. Sigríður var í tæp 32 ár safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga, og í hennar starfstíð átti mikil uppbygging sér stað í Glaumbæ sem og hjá Byggðasafninu öllu. Sigríður hlaut á nýjársdag 2026 heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir varðveislu torfbæja og annarra menningarminja.


Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

More episodes

View all episodes

  • 11. Hvernig nýtum við skógana okkar?

    49:35||Season 2, Ep. 11
    Skógar á Íslandi hafa vaxið mikið á undanförnum árum og innan skamms gæti farið að myndast öflugur iðnaður í kringum þá. En hvernig nýtum við skógana í dag og hvað ber framtíðin í skauti sér?Viðmælendur: Hreinn Óskarsson, sviðstjóri hjá Landi og skógum.Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga.Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandrabretta.Magnús Þorsteinsson, sölu- og innkaupastjóri Tandrabretta og skógarbóndi.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
  • 10. Öskjuhlíðartimbrið: Saga þess og örlög

    49:26||Season 2, Ep. 10
    Byrjað var að fella tré á afmörkuðu svæði í Öskjuhlíð í byrjun árs 2025 til að tryggja flugöryggi. Málið átti sér langan aðdraganda og margir fylltust söknuði þegar þeir sáu skóginn hverfa. En hver urðu örlög þessara trjáa í Öskjuhlíð? Og hver er saga skógræktar í hlíðinni?Viðmælendur:Hallgrímur Jón Hallgrímsson, yfirverkstjóri Borgarskóga hjá Reykjavíkurborg.Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandrabretta.Kári Gylfason, verkefna- og ritstjóri hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur.Hörður Guðmundsson og Jón Helgason, smiðir í Fljótsdal.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir - Rás 1.
  • 9. Hvað eru barnvæn sveitarfélög?

    50:34||Season 2, Ep. 9
    Við kíkjum inn á Áhrifadaga ungmenna, ráðstefnu sem haldin var í Hofi á Akureyri í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. UNICEF á Íslandi hefur unnið að verkefninu í samstarfi við íslensk sveitarfélög. En hvað nákvæmlega eru barnvæn sveitarfélög? Og hvenær byrjaði þetta verkefni?Viðmælendur:Marín Rós Eyjólfsdóttir verkefnastjóri Barnvænna sveitarfélaga hjá UNICEF. Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir ungmennaráðsfulltrúi hjá Akureyrarbæ.Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagastrandar.Auk þess heyrast stutt hljóðbrot og viðtöl við ungmenni úr ólíkum ungmennaráðum sveitarfélaganna.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 8. Vegurinn yfir Öxi

    49:29||Season 2, Ep. 8
    Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur Öxi, leiðinni á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif þessi holótti og gamli malarvegur á líf ungs fólks á Djúpavogi og fjölskyldur þeirra.Við rifjum meðal annars upp þegar nemendur í 10. bekk Djúpavogsskóla lögðu af stað fótgangandi yfir Öxi einn laugardagsmorgun í apríl 2026. Flest nemendanna stefndu á framhaldsnám við Menntaskólann á Egilsstöðum og þurfa því að ferðast reglulega á milli. Með göngunni vildu þau meðal annars vekja athygli á bágu ástandi Axarvegar. En hvernig er hljóðið í þeim nú þegar þau eru byrjuð framhaldsskóla?Viðmælendur: Bergþóra Thea Birgisdóttir, Kolfinna Ásta Jónsdóttir, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, Ásdís Hafrún Benediktsdóttir, Hafdís Reynisdóttir, Þuríður Elísa Harðardóttir og Oddný Anna Björnsdóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 7. Flakkað um Þjóðarbókhlöðuna

    51:41||Season 2, Ep. 7
    Víðsvegar flakkar um Þjóðarbókhlöðuna, þessa merkilegu byggingu sem margir þekkja frá námsárum sínum. Í þættinum er spjallað við starfsfólk og gesti sem hafa alls konar sögur að segja.Umsjón Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 6. Litið yfir farinn veg II

    52:36||Season 2, Ep. 6
    Rifjum upp valin brot úr ferðum Víðsvegar um landið frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 4. Matarmenning á Akureyri

    51:13||Season 2, Ep. 4
    Í þætti dagsins flökkum við um Akureyri og spjöllum um matarmenningu staðarins, að fornu og nýju. Allt frá hefðbundnum heimilismat, að bernaissósu og frönskum á milli, yfir í fínni veitingastaði.Viðmælendur: Inga Þöll Þórgnýsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Rakel Elín Garðarsdóttir, Þorgerður Jóhanna Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Bergmann, Snæbjörn Bergmann og Reynir Gretarsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 3. Vopnafjörður: Breskir veiðimenn, sláturhús og ferðaþjónusta

    50:12||Season 2, Ep. 3
    Víðsvegar er enn á ferðalagi um Vopnafjörð, þennan nyrsta fjörð Austfjarða. Nú er ætlunin að forvitnast um sögu breskra veiðimanna í Hofsá, nýlegt sláturhús og ferðaþjónustu í uppsveitum fjarðarins. Þetta er þriðji og síðasti þátturinn í þessari Vopnafjarðarseríu, sem varð til eftir flakk um fjörðinn mánudaginn 31. ágúst.Viðmælendur: Sigríður Dóra Sverrisdóttir, Skúli Þórðarson, Gíslína Skúladóttir, Karen Hlín Halldórsdóttir og Sölvi Krisinn Jónsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.