Share

Víðsvegar
Tónlistarlífið í Austur-Húnavatnssýslu
Season 1, Ep. 2
•
Í þetta skiptið liggur leiðin í Austur-Húnavatnssýslu, svæði sem nú samanstendur af tveimur sveitarfélögum: Húnabyggð og Sveitarfélaginu Skagaströnd. Þar ætlum við að kynna okkur tónlistarlífið. Hvað einkennir það? Hvernig hefur það þróast á undanförnum árum? Hvernig er aðgengi að tónlistarmenntun?
Viðmælendur: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Eyþór Franzson Wechner.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
More episodes
View all episodes

14. Litið yfir farinn veg
50:17||Season 1, Ep. 14Þessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
13. Tvö verðlaunabú í Eyjafirði og framkvæmdastjóri á tímamótum
53:24||Season 1, Ep. 13Í þetta skipti erum við komin í Eyjafjörð þar sem ætlunin er að forvitnast aðeins um landbúnað í firðinum. Við heimsækjum kúabúið á Espihóli og svínabúið á Sölvastöðum. Bæði þessi bú eru í Eyjafjarðarsveit en eiga það líka sameiginlegt að hafa nýlega fengið verðlaun frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Nautgriparæktarverðlaun ársins fóru á Espihól og svínabúinu á Sölvastöðum var veitt Hvatningarverðlaun sambandsins. Einnig er rætt við framvkæmdastjóra Búnaðarsambands Eyjafjarðar sem stendur á tímamótum. Viðmælendur: Sigurgeir B. Hreinsson, Ástþór Örn Árnason, Svana Ósk Rúnarsdóttir og Ingvi Stefánsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
12. Flakkað um Ólafsfjörð
49:59||Season 1, Ep. 12Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði. Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræðum við harðduglegan verslunareiganda sem rekur verslun sem opin er allan sólarhringinn, forvitnumst um hvað er að gerast á hafnarsvæðinu og heyrum þar af nýrri samfélagsmiðstöð og listarými. Viðmælendur: Þröstur Ólafsson, Björk Óladóttir, Kristín Karlsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson, Alina Streza, Gauti Már Rúnarsson og Ida Semey.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
11. Menning og ferðaþjónusta á Akureyri
47:42||Season 1, Ep. 11Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Samtaka ferðaþjónustunnar.Viðmælendur: Guðrún Dröfn Whitehead, Vera Vilhjálmsdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Helga Nína Helgadóttir, Halldór Óli Kjartansson, Katrín Harðardóttir, Steinunn María Sveinsdóttir, Haraldur Þór Egilsson og Jóhannes Þór Skúlason.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
10. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga
48:24||Season 1, Ep. 10Þátturinn er að þessu sinni helgaður undirbúningi og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga, en að því verkefni koma mörg hundruð manns.Spjallað verður við þrjá formenn kjörstjórna, á mismunandi tímapunktum í ferlinu. Þannig fáum við innsýn í verkefni kjörstjórna í ólíkum sveitarfélögum á mismunandi tímum við undirbúning kosninga. Við endum síðan þáttinn á skrifstofu landskjörstjórnar og forvitnumst um þeirra aðkomu að ferlinu.Viðmælendur: Sveinn Gestsson í Dalabyggð, Helga Eymundsdóttir á Akureyri, Sveinbjörn Eyjólfsson í Borgarbyggð og Skorradalshreppi, og Ástríður Jóhannesdóttir hjá landskjörstjórn.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
9. Fjöruferð og þörungarannsóknir
51:03||Season 1, Ep. 9Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar. Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Við slógumst í för með þeim. Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason og Valtýr Sigurðason.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
8. Flakkað á milli þriggja almenningsbókasafna
53:53||Season 1, Ep. 8Í þetta skipti verður þátturinn helgaður almenningsbókasöfnum. Við flökkum á milli þriggja sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Mosfellsbæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar - og kynnumst bókasafninu á hverjum stað fyrir sig. Viðmælendur: Auður Halldórsdóttir og Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir á Bókasafni Mosfellsbæjar, Lísa Zachrison Valdimarsdóttir og Eyrún Ósk Jónsdóttir á Bókasafni Kópavogs, og Sigrún Guðnadóttir og Hugrún Margrét Óladóttir á Bókasafni Hafnarfjarðar.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
7. Áherslur eldri borgara fyrir kosningar
52:49||Season 1, Ep. 7Í dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land. Viðmælendur: Björn Snæbjörnsson, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Magnús J. Magnússon og Ragnheiður Hjálmarsdóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
6. Hvernig blóð er unnið og sent um allt land
54:25||Season 1, Ep. 6Í dag fræðumst við um hvernig blóð, sem safnað er af Blóðbankankanum, er unnið og svo flutt um allt land - en starfsemi Blóðbankans er mikilvægur hluti heilbrigðiskerfisins svo hægt sé að framkvæma margar algengar og lífsnauðsynlegar aðgerðir og læknismeðferðir. Viðmælendur:Hanna Vigdís Jóhannesdóttir og Stefán Rafn Stefánsson hjúkrunarfræðingar við Blóðbankann á Akureyri. Monica og Árni Jökull Gunnarsson blóðgjafar. Ína Björg Hjálmarsdóttir deildarstjóri Blóðbankans. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.