Share

cover art for Litið yfir farinn veg

Víðsvegar

Litið yfir farinn veg

Season 1, Ep. 14
•

Þessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.


Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

More episodes

View all episodes

  • 8. Vegurinn yfir Öxi

    49:29||Season 2, Ep. 8
    Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur Öxi, leiðinni á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif þessi holótti og gamli malarvegur á líf ungs fólks á Djúpavogi og fjölskyldur þeirra.Við rifjum meðal annars upp þegar nemendur í 10. bekk Djúpavogsskóla lögðu af stað fótgangandi yfir Öxi einn laugardagsmorgun í apríl 2026. Flest nemendanna stefndu á framhaldsnám við Menntaskólann á Egilsstöðum og þurfa því að ferðast reglulega á milli. Með göngunni vildu þau meðal annars vekja athygli á bágu ástandi Axarvegar. En hvernig er hljóðið í þeim nú þegar þau eru byrjuð framhaldsskóla?Viðmælendur: Bergþóra Thea Birgisdóttir, Kolfinna Ásta Jónsdóttir, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, Ásdís Hafrún Benediktsdóttir, Hafdís Reynisdóttir, Þuríður Elísa Harðardóttir og Oddný Anna Björnsdóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 7. Flakkað um Þjóðarbókhlöðuna

    51:41||Season 2, Ep. 7
    Víðsvegar flakkar um Þjóðarbókhlöðuna, þessa merkilegu byggingu sem margir þekkja frá námsárum sínum. Í þættinum er spjallað við starfsfólk og gesti sem hafa alls konar sögur að segja.Umsjón Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 6. Litið yfir farinn veg II

    52:36||Season 2, Ep. 6
    Rifjum upp valin brot úr ferðum Víðsvegar um landið frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 5. Þekking að hverfa: Spjallað um torfhús í Skagafirði

    51:20||Season 2, Ep. 5
    Sífellt færri kunna að gera við torfhús og hvað gerist ef sú þekking hverfur alveg? Í dag kynnumst við systkinunum Sigríði Sigurðardóttur og Helga Sigurðssyni, sem ólust upp á bænum Stóru-Ökrum í Skagafirði. Þau hafa bæði lagt mikið af mörkum til varðveislu og viðhalds torfbæja. Helgi ferðast um allt land og hefur sérhæft sig í viðgerðum á torfbæjum. Sigríður var í tæp 32 ár safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga, og í hennar starfstíð átti mikil uppbygging sér stað í Glaumbæ sem og hjá Byggðasafninu öllu. Sigríður hlaut á nýjársdag 2026 heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir varðveislu torfbæja og annarra menningarminja.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 4. Matarmenning á Akureyri

    51:13||Season 2, Ep. 4
    Í þætti dagsins flökkum við um Akureyri og spjöllum um matarmenningu staðarins, að fornu og nýju. Allt frá hefðbundnum heimilismat, að bernaissósu og frönskum á milli, yfir í fínni veitingastaði.Viðmælendur: Inga Þöll Þórgnýsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Rakel Elín Garðarsdóttir, Þorgerður Jóhanna Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Bergmann, Snæbjörn Bergmann og Reynir Gretarsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 3. Vopnafjörður: Breskir veiðimenn, sláturhús og ferðaþjónusta

    50:12||Season 2, Ep. 3
    Víðsvegar er enn á ferðalagi um Vopnafjörð, þennan nyrsta fjörð Austfjarða. Nú er ætlunin að forvitnast um sögu breskra veiðimanna í Hofsá, nýlegt sláturhús og ferðaþjónustu í uppsveitum fjarðarins. Þetta er þriðji og síðasti þátturinn í þessari Vopnafjarðarseríu, sem varð til eftir flakk um fjörðinn mánudaginn 31. ágúst.Viðmælendur: Sigríður Dóra Sverrisdóttir, Skúli Þórðarson, Gíslína Skúladóttir, Karen Hlín Halldórsdóttir og Sölvi Krisinn Jónsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 2. Vopnafjörður: Lífið við höfnina, fótbolti og sýn sveitarstjóra á framtíðina

    50:53||Season 2, Ep. 2
    Víðsvegar heldur enn til á Vopnafirði, þar sem við kynnumst staðnum og veltum fyrir okkur hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu þar að finna.Viðmælendur: Kristinn Ágústsson, Sara Líf Magnúsdóttir, Íris Edda Jónsdóttir, áhöfnin á Indriða Kristins BA 751 og Heiðar Kristbergsson.Í þættinum er spilað brot þætti Berglindar Häsler „Frá Vopnafirði til vesturheims“ frá 2009. Þar ræddi hún við Ágústu Þorkelsdóttur. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 1. Vopnafjörður: Daglegt líf íbúa og spjall um tækifærin í framtíðinni

    49:24||Season 2, Ep. 1
    Ferðinni er heitið á norðausturhorn landsins, nánar tiltekið til Vopnafjarðar. Kynnumst staðnum og spjöllum við fólk á förnum vegi – og spyrjum hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu að finna í Vopnafirði.Viðmælendur: Stefán Guðnason, Thorberg Einarsson, Berglind Ósk Wiium, Þórhildur Sigurðardóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir og Kristinn Ágústsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
  • 15. Flakkað um Hrísey

    52:02||Season 1, Ep. 15
    Í dag liggur leiðin út í Hrísey í Eyjafirði. Þangað fór þáttastjórnandi Víðsvegar mánudaginn 8. júní, flakkaði um og spjallaði við fólk á förnum vegi.Viðmælendur: Peter ferðamaður frá Hollandi, Björgvin L. Pálsson, Aron Trausti Sigurbjörnsson, Dröfn Teitsdóttir, Theódóra Kristjánsdóttir, Þórunn Björk Arnórsdóttir, Ásrún Ýr Gestsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir.Þetta var síðasti þáttur Víðsvegar, í bili. Þátturinn fer nú í sumarfrí en snýr aftur í september og þá byrjar flakk okkar aftur. Og ef þið eruð með ábendingar um skemmtilega viðmælendur, sögur eða staði má alltaf senda línu á netfang þáttarins, vidsvegar@ruv.is.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.