Share

Víðsvegar
Byggðamál og byggðarannsóknir
Season 1, Ep. 3
•
Í þætti dagsins kynnum við okkur í byggðamál og byggðarannsóknir – málefni sem snýr að því hvernig fólk býr, vinnur og þróar samfélög sín á mismunandi svæðum. Það er einnig viðeigandi að í þessum þætti eru viðmælendur á þremur stöðum: Í Borgarnesi, Stokkhólmi og Skagafirði.
Viðmælendur: Arnar Már Elíasson, Sigríður Elín Þórðardóttir, Vífill Karlsson og Sæunn Gísladóttir.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
More episodes
View all episodes

11. Menning og ferðaþjónusta á Akureyri
47:42||Season 1, Ep. 11Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Samtaka ferðaþjónustunnar.Viðmælendur: Guðrún Dröfn Whitehead, Vera Vilhjálmsdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Helga Nína Helgadóttir, Halldór Óli Kjartansson, Katrín Harðardóttir, Steinunn María Sveinsdóttir, Haraldur Þór Egilsson og Jóhannes Þór Skúlason.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
10. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga
48:24||Season 1, Ep. 10Þátturinn er að þessu sinni helgaður undirbúningi og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga, en að því verkefni koma mörg hundruð manns.Spjallað verður við þrjá formenn kjörstjórna, á mismunandi tímapunktum í ferlinu. Þannig fáum við innsýn í verkefni kjörstjórna í ólíkum sveitarfélögum á mismunandi tímum við undirbúning kosninga. Við endum síðan þáttinn á skrifstofu landskjörstjórnar og forvitnumst um þeirra aðkomu að ferlinu.Viðmælendur: Sveinn Gestsson í Dalabyggð, Helga Eymundsdóttir á Akureyri, Sveinbjörn Eyjólfsson í Borgarbyggð og Skorradalshreppi, og Ástríður Jóhannesdóttir hjá landskjörstjórn.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
9. Fjöruferð og þörungarannsóknir
51:03||Season 1, Ep. 9Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar. Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Við slógumst í för með þeim. Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason og Valtýr Sigurðason.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
8. Flakkað á milli þriggja almenningsbókasafna
53:53||Season 1, Ep. 8Í þetta skipti verður þátturinn helgaður almenningsbókasöfnum. Við flökkum á milli þriggja sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Mosfellsbæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar - og kynnumst bókasafninu á hverjum stað fyrir sig. Viðmælendur: Auður Halldórsdóttir og Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir á Bókasafni Mosfellsbæjar, Lísa Zachrison Valdimarsdóttir og Eyrún Ósk Jónsdóttir á Bókasafni Kópavogs, og Sigrún Guðnadóttir og Hugrún Margrét Óladóttir á Bókasafni Hafnarfjarðar.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
7. Áherslur eldri borgara fyrir kosningar
52:49||Season 1, Ep. 7Í dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land. Viðmælendur: Björn Snæbjörnsson, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Magnús J. Magnússon og Ragnheiður Hjálmarsdóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
6. Hvernig blóð er unnið og sent um allt land
54:25||Season 1, Ep. 6Í dag fræðumst við um hvernig blóð, sem safnað er af Blóðbankankanum, er unnið og svo flutt um allt land - en starfsemi Blóðbankans er mikilvægur hluti heilbrigðiskerfisins svo hægt sé að framkvæma margar algengar og lífsnauðsynlegar aðgerðir og læknismeðferðir. Viðmælendur:Hanna Vigdís Jóhannesdóttir og Stefán Rafn Stefánsson hjúkrunarfræðingar við Blóðbankann á Akureyri. Monica og Árni Jökull Gunnarsson blóðgjafar. Ína Björg Hjálmarsdóttir deildarstjóri Blóðbankans. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
5. Þjóðminjasafnið: Starfsemin og áskoranir
52:39||Season 1, Ep. 5Í þessum þætti verður farið í Þjóðminjasafn Íslands við Suðurgötu í Reykjavík, þar sem við ræðum við fjóra sérfræðinga safnsins, kynnumst starfseminni í gegnum þeirra verkefni og heyrum um helstu áskoranir sem fylgja varðveislu og miðlun á þjóðminjum landsins. Viðmælendur: Atli Freyr Kristófersson, Ágústa Kristófersdóttir, Helga Vollertsen og Karólína Stefánsdóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
4. Atvinnulífið á Grenivík
54:41||Season 1, Ep. 4Í dag er ferðinni heitið til Grenivíkur - þéttbýliskjarnans í Grýtubakkahreppi við austanverðan Eyjafjörð - og þar ætlum við að kynnast atvinnulífinu. Viðmælendur:Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson, Ingvar Þór Ingvarsson, Hermann Gunnar Jónsson og Ingólfur Björnsson hjá smíða- og afþreyingarfyrirtækinu Fjallhamri.Erica Patricia Rivera og Karol Brynja í Jónsabúð. Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps og Fjóla Valborg Stefánsdóttir, forstöðumaður á hjúkrunarheimilinu Grenilundi. Sigurbjörn Þór Jakobsson, framkvæmdastjóri Pharmartica. Ægir Jóhannsson, vinnslustjóri, og Óðinn Valsson verk- og gæðastjóri hjá fiskvinnslu Gjögurs á Grenivík. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.