Share

cover art for Atvinnulífið, fullveldið og Evrópusambandið

Silfrið

Atvinnulífið, fullveldið og Evrópusambandið

Season 2, Ep. 2

Fólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn.

Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðingur, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf., Halla Gunnarsdóttir formaður VR stéttarfélags og Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical/Össurar.

Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.

More episodes

View all episodes

  • 4. Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu

    56:30||Season 2, Ep. 4
    Meirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu.
  • 3. Kjör almennings og viðsjár í veröldinni

    52:24||Season 2, Ep. 3
    Kjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi. Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga, hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Helgi Egilsson, og Sóley Kaldal sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum.Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 1. Formenn takast á um aðildarviðræður

    01:00:44||Season 2, Ep. 1
    Silfrið hefur göngu sína á ný að loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi -  Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir - mætast í beinni útsendingu.
  • 36. þáttur: Um hvað yrði samið í nýjum aðildarviðræðum?

    58:00|
    Hvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst? Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu. Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdóttir prófessor í Evrópurétti við HR, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða helstu málefni sem þyrfti að semja um í aðildarviðræðunum. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 35. þáttur: Hvað myndi það þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið

    50:16|
    Í þætti kvöldsins verður rætt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga  í Evrópusambandið.Gestir þáttarins:Dagur B. Eggertsson þingmaður SamfylkingarinnarHanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úr ViðreisnLilja D. Alfreðsdóttir formaður FramsóknarflokksinsSigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins
  • 34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar

    57:48|
    Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga.Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir.
  • 33. þáttur: Um hvað er kosið? Sveitarstjórnarmálin í fókus

    45:20|
    Þjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum.
  • 32. þáttur: Kosningabaráttan á fullu

    49:19|
    Í fyrri hlutanum rýnum við sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir tæpar tvær vikur. Gestir:Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri á fréttastofu SýnarEva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚVBryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafiÍ seinni hlutanum er rætt við blaðamanninn og rithöfundinn Evan Osnos um stöðuna í bandarískum stjórnmálum.