Share

cover art for Silfrið

Silfrið


Latest episode

  • 34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar

    57:48|
    Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga.Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir.

More episodes

View all episodes

  • 33. þáttur: Um hvað er kosið? Sveitarstjórnarmálin í fókus

    45:20|
    Þjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum.
  • 32. þáttur: Kosningabaráttan á fullu

    49:19|
    Í fyrri hlutanum rýnum við sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir tæpar tvær vikur. Gestir:Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri á fréttastofu SýnarEva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚVBryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafiÍ seinni hlutanum er rætt við blaðamanninn og rithöfundinn Evan Osnos um stöðuna í bandarískum stjórnmálum.
  • 31. þáttur: Umhverfisumræðan sem hvarf

    46:47|
    Um 2500 manns eru talin hafa tekið þátt í Grænu göngunni 2026 á sumardaginn fyrsta. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir áherslur sínar í umhverfis- og orkumálum, og fyrir að standa ekki vörð um íslenska náttúru. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mætir í Silfrið ásamt Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur formanni Landverndar, Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi orkumálastjóra, og Finni Beck framkvæmdastjóra Samorku. Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
  • 30. þáttur: Dökk mynd dregin upp af sjávarútvegi

    45:31|
    Gestir Silfursins eru Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vg. Umfjöllun Berlinske um íslenskan sjávarútveg vakti mikla athygli um helgina. Þar dregin upp dökk mynd af greininni og pólitískum ítökum útgerðarinnar. Það styttist í sveitastjórnarkosningar, en ekki er örgrant um að þær hafi fallið í skuggann af áformum um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í sumarlok.
  • 29. þáttur: Forsætisráðherra ræðir efnahagsmálin

    46:47|
    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála.Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík.Gestir:Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur ÍslandsIngimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðiðSigfús Aðalsteinsson, Borgin okkar.
  • 28. þáttur: Bjarni Benediktsson kallar eftir þjóðarsátt

    46:29|
    Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, er nýráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann fer yfir stöðuna í efnahagsmálum, forsendur kjarasamninga, og hvað þurfi að gerast að hans mati til að kveða niður verðbólgu og stýrivexti. Efnahagsmálin eru áfram til umræðu í vettvangi dagsins. Gestir eru Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Katla DMI, og Guðmundur Steingrímsson, auðlinda og umhverfisfræðingur.