Share

cover art for Menningarpúlsinn

Menningarpúlsinn


Latest episode

  • Föðurlandið, jólabækur og notalegar bíóferðir

    50:59|
    Gestir Erlu Bjargar eru Dorothee Kirch markaðs- og þróunarstjóri Listasafns Íslands, Grímur Hákonarson kvikmyndagerðarmaður og Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins. Rætt er um myndina Fatherland eða Föðurlandið ásamt spjalli um jólabókaflóðið, helgarrúnt á listasöfn og nýja kvikmynd Gríms sem gerist í Kópavogi upp úr miðri síðustu öld.

More episodes

View all episodes

  • Högg, hlutverk menningar í mannlegum tengslum og bókasöfn

    53:56|
    Gestir Erlu Bjargar Gunnarsdóttur voru Vigdís Másdóttir kynningar- og markaðsstjóri Kópavogsbæjar, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Pétur Blöndal blaðamaður og ljóðagrúskari. Umræðan snerist meðal annars um Högg í Þjóðleikhúsinu og hlutverk bókasafna í samfélaginu.
  • Grasrótin, gjörningar, Fasteignamartröðin og Þjóðarópera

    50:30|
    Gestir Gígju Hólmgeirsdóttir í Menningarpúlsinum voru þau Pétur Guðjónsson leikstjóri, Sindri Swan leikari og Freyja Reynisdóttir myndlistarmaður. Þátturinn var sendur út frá Akureyri og umræðan snérist um menningarlífið fyrir norðan. Spjallað var um grasrótina sem er að eflast, Fasteignamartröðina hjá Leikfélagi Akureyrar auk frumsýningar Undir sömu stjörnu hjá Þjóðaróperunni.
  • Óli K. og Digger

    54:10|
    Gestir Fríðu Þorkelsdóttur eru Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari, Daníel Daníelsson, rithöfundur og Guðrún Elsa Bragadóttir, kvikmynda- og bókmenntafræðingur. Þau ræddu um ljósmyndasýningu Óla K. í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og kvikmyndina Digger.
  • Ný plata frá Alaska1867 og Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum

    50:21|
    Í menningarpúlsi vikunnar er rætt um 1867 nýja breiðskífu frá tónlistarkonunni Alaska1867, og sýninguna Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum. Umsjónarmaður er Kristján Guðjónsson og gestir eru Anna Dröfn Ágústsdóttir, Álfheiður Karlsdóttir og Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi Veira.
  • Bíó og kammer

    55:11|
    Bíómenning og kammertónlist er til umræðu í þætti vikunnar, gestir þáttarins sáu kvikmyndirnar Paper Tiger (Pappírstígur) og Club Kid (Partípabbi) á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) og fóru á upphafstónleika Kammermússíkklúbbsins í vetur sem fagnar 70 ára starfsafmæli um þessar mundir. Viðmælendur: Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndafræðingur og lektor, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður og Tumi Torfason tónlistarmaður.Umsjón: Pétur Eggertsson
  • Fjallaklifur, angist nútímamannsins í eldhúsinu og þráin eftir að eignast barn

    49:56|
    Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru þau Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona, Urður Hákonardóttir tónlistarkona og Valur Grettisson fjölmiðlamaður. Rætt var um Varkár, nýja sannsögulega skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur, Hinsta ferðin á K2 sem er opnunarmynd RIFF og Nýtt eldhús eftir máli eftir Friðgeir Einarsson sem er sýnt í Kassanum.