Share

Menningarpúlsinn
Grasrótin, gjörningar, Fasteignamartröðin og Þjóðarópera
•
Gestir Gígju Hólmgeirsdóttir í Menningarpúlsinum voru þau Pétur Guðjónsson leikstjóri, Sindri Swan leikari og Freyja Reynisdóttir myndlistarmaður. Þátturinn var sendur út frá Akureyri og umræðan snérist um menningarlífið fyrir norðan. Spjallað var um grasrótina sem er að eflast, Fasteignamartröðina hjá Leikfélagi Akureyrar auk frumsýningar Undir sömu stjörnu hjá Þjóðaróperunni.
More episodes
View all episodes

Óli K. og Digger
54:10|Gestir Fríðu Þorkelsdóttur eru Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari, Daníel Daníelsson, rithöfundur og Guðrún Elsa Bragadóttir, kvikmynda- og bókmenntafræðingur. Þau ræddu um ljósmyndasýningu Óla K. í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og kvikmyndina Digger.
Ný plata frá Alaska1867 og Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum
50:21|Í menningarpúlsi vikunnar er rætt um 1867 nýja breiðskífu frá tónlistarkonunni Alaska1867, og sýninguna Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum. Umsjónarmaður er Kristján Guðjónsson og gestir eru Anna Dröfn Ágústsdóttir, Álfheiður Karlsdóttir og Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi Veira.
Bíó og kammer
55:11|Bíómenning og kammertónlist er til umræðu í þætti vikunnar, gestir þáttarins sáu kvikmyndirnar Paper Tiger (Pappírstígur) og Club Kid (Partípabbi) á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) og fóru á upphafstónleika Kammermússíkklúbbsins í vetur sem fagnar 70 ára starfsafmæli um þessar mundir. Viðmælendur: Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndafræðingur og lektor, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður og Tumi Torfason tónlistarmaður.Umsjón: Pétur Eggertsson
Fjallaklifur, angist nútímamannsins í eldhúsinu og þráin eftir að eignast barn
49:56|Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru þau Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona, Urður Hákonardóttir tónlistarkona og Valur Grettisson fjölmiðlamaður. Rætt var um Varkár, nýja sannsögulega skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur, Hinsta ferðin á K2 sem er opnunarmynd RIFF og Nýtt eldhús eftir máli eftir Friðgeir Einarsson sem er sýnt í Kassanum.
Gervigreind, einmanaleiki, súrmæður, U2 og Bíó Paradís
50:00|Gestir Júlíu Margrétar að þessu sinni voru Sólveig Arnarsdóttir leikkonar, Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri og Sverrir Norland rithöfundur. Rætt var um Gunnellu í Tjarnarbíói, Öld ímyndunaraflsins eftir Berg Ebba, hljómsveitina U2 og 79 af stöðinni. Menningarstofnanirnar Tjarnarbíó og Bíó Paradís voru mærðar og nútímalist sett í samhengi við gervigreind og einmanaleikann sem faraldur.
Tyrfingur Tyrfingsson, ritskoðun á list, Ólafur Kárason og PISA
49:54|Viðmælendur Júlíu Margrétar voru þau Steinunn Sigurðardóttir skáld, Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur og Agnar Jón Egilsson leikari. Rætt var meðal annars um slaufunarmenningu, ritskoðun á list, ólíkindatólið Tyrfing Tyrfingsson, Heimsljós, nýja bók Steinunnar Sigurðardóttur og PISA könnunina.
Um tímann og vatnið, Breadcrumbs og Barbara Hannigan
51:27|Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur eru þau Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir rithöfundur og Árni Pétur Guðjónsson leikari. Rætt var meðal annars um kvikmyndina Um tímann og vatnið, leikritið Breadcrumbs í Tjarnarbíó, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Eiríksþing, til minningar um Eirík Guðmundsson. Fram fór ljóðalestur í beinni útsendingu auk þess sem Ormstunga í Þjóðleikhúsinu, trúnó við jöklasérfræðing og margt fleira bar á góma.
Radíusbræður, Dollywood, Jazzátíð og Vaka þjóðlistahátíð
48:56|Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru tónlistarfólkið Óttarr Proppé, Salóme Katrín og Ragnheiður Gröndal. Fjallað var um Stein Ármann Magnússon heitinn, íslenkan húmor, Alley Cats grínistans Ricky Gervais, Dolly Parton, Jazzhátíð í Reykjavík og margt fleira.