Share

Meining
Íslenskar nunnur II.
Seinni þáttur um íslenskar nunnur eftir siðaskipti. Clementia yngri (Svanlaug Guðmundsdóttir) var kennari við Landakotsskóla í 35 ár, vann náið með séra Georg og Margréti Müller og Riftún, sumarbúðir kaþólsku kirkjunnar, voru sérstakt hugðarefni hennar. „Þegar þú ert í kristinfræði þá er verið að tala um þetta góða og þetta fallega. Mér fannst hún akkúrat vera þetta fallega, af því ég var auðvitað í skólanum og það var misjafnt hvernig það var,“ segir Ása Ásgrímsdóttir um Clementiu. Ása er fyrrum nemandi hennar og ein þeirra sem á erfiða reynslu að baki.
Klæðaburður nunna, vistaverur Jósefssystra, samspil miðilsgáfu og kristinnar trúar, gamlar hljóðupptökur, og Landakotsskóla-málið er meðal þess sem kemur við sögu í þættinum.
Rætt er við skyldmenni systur Clementiu, þær Zítu Benediktsdóttur og Sigríði (Sirrý) Sigurðardóttur, og Ásu Ásgrímsdóttur, sem var nemandi í Landakotsskóla.
More episodes
View all episodes

3. Bakslagið III.
58:37||Season 2, Ep. 3„Viðbrögðin voru þau, að þegar þessi þáttur var sýndur þá skildist mér að það hefði mátt heyra saumnál detta. Fólk vissi ekkert af þessu. Þetta var nýtt fyrir þeim,“ segir Anna Kristjánsdóttir um viðtal sem var tekið við hana stuttu eftir að hún kom út sem trans árið 1994. Við rifjum upp sögu Önnu í þætti dagsins, og merkilegan þátt hennar í réttindabaráttu trans fólks hér á landi enda var hún fyrsti Íslendingurinn til að koma opinberlega út sem trans. Hlustað er á eldri viðtalsbrot þar sem tíðarandi 10. áratugarins skín í gegnum spurningar fjölmiðlafólks. „Þegar maður var ein að berjast fyrir þessu þá var enginn til að verja málstaðinn’’.Við sögu koma April Ashley, dönsk skipafélög, Tristan da Cunha, frímerki og ýmislegt fleira
2. Bakslagið II.
01:00:53||Season 2, Ep. 2,,Það sem er sárast er að horfa upp á það hatur, þann fjandskap og þá heimsku sem beinist að trans fólki á Íslandi,’’ segir Þorvaldur Kristinsson, rithöfundur og fyrrverandi formaður Samtakanna 78. Þorvaldur er einn þeirra sem tóku slaginn á fyrstu árum réttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi. Í þættinum er ferðast aftur í tímann. Spiluð eru brot úr útvarpsþætti frá 1983 þar sem hlustendum gafst kostur á að hringja inn og deila skoðunum sínum á málefnum „hómósexúal fólks“ eins og það var kallað á þeim tíma. Hljóðbrotin gefa innsýn í tíðarandann á níunda áratugnum og baráttu Samtakanna 78. Rúmum fjórum áratugum síðar setjumst við niður með baráttufólki fyrir réttindum hinsegin fólks frá upphafi, fólki sem man tímana tvenna. Við ræðum líðan og stöðu mála í dag því að orðræða samtímans minnir eldri kynslóðina á hið liðna, eða eins og Þorvaldur orðar það: ,,Þarna er verið að endurtaka í rauninni allan þann vonda áróður sem ég kynntist fyrir áratugum síðan. Það er sama orðræðan, sömu viðbrögð. Þetta óttablandna hatur við það sem við ekki þekkjum.’’ Í þættinum er rætt við Ragnhildi Sverrisdóttur, Þorvald Kristinsson og Þorstein Vilhjálmsson.
1. Bakslagið I.
56:23||Season 2, Ep. 1„Á endanum er það fólkið sem kýs að gera ekki neitt sem veitir öfgaöflum brautargengi,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, sem er meðal viðmælenda í fyrsta þætti nýrrar stuttþáttaraðar um bakslagið í málefnum hinsegin fólks hér á landi. Í fyrra kom út rannsóknarskýrsla, kortlagning á stöðu líðan og réttindum hinsegin fólks á Íslandi, þar sem í ljós kemur að líðan fólks virðist ekki í samræmi við þau lagalegu réttindi sem hafa náðst á síðustu áratugum. Þáttaröðin er og verður ferðalag þar sem leitast er eftir svörum við stórum spurningum á borð við: Hvað gerðist á síðustu árum og af hverju? Hvað veldur bakslagi? Lúmskum jafnt sem augljósum áhrifum bakslagsins á daglegt líf hinsegin fólks er velt upp og gamlir og nýir tímar bornir saman í samtali við fólk af ólíkum kynslóðum. Aðstæður og líðan fólks er skrásett, ólíkir pólar skoðaðir. Við sögu fyrsta þáttar koma tröppur Grafarvogskirkju, sagan um Loch Ness, samræður við gesti og gangandi í Spönginni, kærleikslögmál Jesú Krists og ýmislegt fleira.
20. Hryggsúlan IV.
42:11||Season 1, Ep. 20Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.Við sögu kemur raförvun útlima, spelkur, krónískir verkir, Frida Kahlo, hryggskekkja og ýmislegt fleira. Viðmælendur eru Pétur Helgason, stoðtæknafræðingur hjá Össi og Karen Helenudóttir, nemi. Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.
19. Hryggsúlan III.
42:42||Season 1, Ep. 19Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.Við sögu kemur orðasifjafræði, skartgripir úr hryggjaliðum, stólbök og ýmislegt fleira. Viðmælendur eru Jóhanna Methúsalemsdóttir, skartgripahönnuður, Jón G. Friðjónsson, prófessor emeritus og Jósep Ó. Blöndal, læknirÞáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.
18. Hryggsúlan II.
43:23||Season 1, Ep. 18Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólk sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.Í þessum þætti snúum við okkur að lasleika sem hrjáir marga einhvern tímann á lífsleiðinni: bakverkir, bakvandamál. Viðmælendur eru Þorvaldur Ingvarsson læknir, Edda Elísabet Magnúsdóttir, líffræðingur og Jósep Ó. Blöndal, læknirÞáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.
17. Hryggsúlan I.
41:13||Season 1, Ep. 17Í þessari þáttaröð er hryggsúlu mannsins gerð skil. Burðargrindin er skoðuð frá hinum ýmsu hliðum menningar- og þróunarsögunnar í gegnum persónulegar frásagnir fólks sem vinnur að einhverju leyti með hrygginn, fólks sem kljáist við verki tengda umræddri beinlengju og sömuleiðis fólks sem finnur alls ekki neitt fyrir sinni innri burðargrind.Í fyrsta þætti skoðum við líffærafræði og þróunarsögu hryggsúlunnar. Hvernig fór maðurinn að því að reisa sig upp? Rætt er við Þorvald Ingvarsson bæklunarskurðlækni, Sigurjón Jóhannsson skipulagsfræðing, Þórhall Auð Helgason tölvunarfræðinema og Eddu Elísabetu Magnúsdóttur, doktor í líffræði.Þáttaröðin var unnin og framleidd árið 2021.
16. Skammtafræði IV.
50:41||Season 1, Ep. 16Stærðfræðijöfnur og samspil trúar og vísinda er efniviður þáttarins. Hugleiðingar um fyrirbæri og tungumál stærðfræðinnar leiða okkur nefnilega með óvæntum hætti inn í tengsl trúar og vísinda, sem og jú andstæður og aðskilnað þessara tveggja heima. „Grundvallarspurningin er mögulega; Getum við afsannað ákveðnar trúarlegar kenningar með vísindalegri þekkingu? Þetta er eitthvað sem ég hef rannsakað sérstaklega í samhengi við heimsmyndarfræðina,“ segir danski sagnfræðingurinn Helge Kragh en hann er sérfróður um sögu trúarbragða og vísinda og hefur skrifað aragrúa af bókum um efnið. Rætt er við hann í þættinum sem og Birgi Ásgeirsson, Mars M. Proppé, Rögnvald Konráð Helgason og Kristian Joas. Við sögu kemur tungumál stærðfræðinnar, trú hinna ýmsu vísindamanna, heimsfastinn Λ, afstæðiskenning Einsteins, George Lemaitre og ýmislegt fleiraÞáttaröð skammtafræðinnar var unnin og framleidd árið 2023.
15. Skammtafræði III.
55:24||Season 1, Ep. 15„Hver spurning sem skammtafræðin svarar leiðir einfaldlega til annarrar spurningar því við köfum stanslaust dýpra og dýpra og dýpra og dýpra,“ sagði Rob Sutherland, sagnfræðingur við Niels Bohr Institute, í síðasta þætti. Haldið er áfram að kafa ofan í fjarlægan, og þó afar nálægan, og hulinn heim skammtafræðinnar í þætti dagsins. Við sögu kemur köttur Schrödingers, superposition, vangaveltur um orsök og afleiðingu, atómskraftsjár, skammtafræðilegar tilraunir í Háskóla Íslands, skammtatölvur, smættarhyggja og ýmislegt annað. Rætt er við Rögnvald Konráð Helgason, Viðar Guðmundsson, Kristján Leósson, Lárus Thorlacius, Unnar Arnalds. Þáttaröð skammtafræðinnar var unnin og framleidd árið 2023.