Share

cover art for Bakslagið IV.

Meining

Bakslagið IV.

Season 2, Ep. 4
•

Í þættinum heyrum við af stöðu mála meðal yngri kynslóðarinnar. Hrefna Þórarinsdóttir, forstöðukona hinsegin félagsmiðstöðvarinnar, segir frá líðan þeirra ungmenna sem leita til þeirra í hverri viku. „Ég hef aldrei upplifað ástandið eins krefjandi og erfitt og einmitt núna,“ segir hún. Í kjölfar óvæginnar umræðu, sem hefur blossað upp annað slagið í umræddu bakslagi, hefur málum tengdum sjálfsskaða fjölgað, greinir hún frá. 


Einnig kynnum við okkur trans teymi barna og unglinga. Rætt er við Björn Hjálmarsson, barnageðlækni og Ragnar Bjarnason, innkirtlalækni barna um starfsemi teymisins, algengar ranghugmyndir á samfélagsmiðlum og framsækna löggjöf sem tryggir tilverurétt trans fólks á Íslandi. „Það sem okkur dreymir um er að kynvitund barnsins fái að vaxa fram því það er lykillinn að farsæld og hamingju barnsins á fullorðinsaldri að það fái að vera það sjálft.“


More episodes

View all episodes

  • 2. Lýsislampar & næturverðir

    52:03||Season 3, Ep. 2
    Í þættinum er ráfað á milli þess gamla og nýja með hjálp gamalla hljóðbrota úr safnkistu Ríkisútvarpsins. Rætt er við samtímafólk þegar hægt er eða einhvern sem tengist upptökunum með einum eða öðrum hætti. „En í sama mund og glaðir borgarar sveiflast um í dansi eftir dillandi hljómsveit eru aðrir að hverfa til starfa.“ Svo hefst þáttur Sveins Skorra Höskuldssonar árið 1959 þar sem hann kynnir sér starf næturvarðar í byggingu Landsbankans í Austurstræti. Að gefnu tilefni berum við saman reynslu næturvarða fortíðarinnar og næturvarða nútímans. Einnig heyrum við brot úr gömlu viðtali við mann fæddan árið 1869, Gísla Jónsson fyrrverandi bónda á Hofi í Svarfaðardal, sem var níræður þegar upptakan var gerð. Gísli rifjar upp fyrstu minningar sínar og þær gríðarmiklu samfélags-, samgöngu- og tæknibreytingar sem hann varð vitni að á lífsleiðinni.Við sögu koma lýsislampar, þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar 1874, vofur og draugagangur, kvöldvökur nítjándu aldar og ýmislegt fleira. Myrkrið er óvæntur þráður sem læðist á milli þessara ólíku hljóðbrota fortíðarinnar. Vinnsla þáttar fór fram 2020. Rætt var við Stefán Elinbergsson, öryggisvörð og Ágúst Ólaf Georgsson, þjóðháttafræðing.
  • 1. Arnarhreiður Hitlers

    58:09||Season 3, Ep. 1
    „Hann lét mig alveg vita af því að hann hefði komið í þessa ferð til að komast upp í Arnarhreiðrið,“ segir Hólmfríður Bjarnadóttir, leiðsögukona hjá Bændaferðum, um íslenskan ferðamann sem deildi því með henni að hann aðhylltist nasisma og sóttist eftir ferð upp í Arnarhreiðrið á tíunda áratugnum í eins konar pílagrímstilgangi. Hún segir sömuleiðis frá ferðamönnum sem vildu ekki heimsækja svæðið.Í þættinum er fjallað um Khelsteinhaus, eða Arnarhreiðrið, með hliðsjón af nýafstöðnum eldsvoða. Illugi Jökulsson segir sögu þess, frá kostnaðarsömum og flóknum framkvæmdum og algengum misskilningi í tengslum við Arnarhreiðrið og Berghof, persónulegt sumarhús Hitlers. Hólmfríður Bjarnadóttir, leiðsögukona hjá Bændaferðum, rifjar upp eftirminnilegar ferðir í Arnarhreiðrið og segir frá stöðu mála eftir eldsvoðann.Árið 1946 fékk hópur íslenskra blaðamanna leyfi hernámsyfirvalda bandamanna til að vera viðstaddur réttarhöldin í Nurnberg og ferðast um stríðshrjáð svæði Þýskalands. Hlýtt er á hljóðbrot úr heimsókn þeirra í Berchtesgaden, suðurhöfuðstöðvum nasistaflokksins. Rústir Berghofs, sem og annarra bygginga nasistaforingja og -flokksins, voru fjarlægðar í upphafi sjötta áratugar síðustu aldar til þess að sporna gegn frekari dýrkun á nasisma. Íhugað var að eyða Arnarhreiðrinu en því leyft að standa vegna annarra sjónarmiða. Nú er það brunnið og þýsk yfirvöld hafa lýst yfir að húsið verði endurreist. Táknmynd Arnarhreiðursins er því aftur til umræðu; hvað þýðir það að endurreisa nasískt mannvirki 2026?Málið er skoðað nánar í þættinum. Við sögu kemur einnig samtal við 96 ára konu um ljósmyndir, persónulegt bókasafn og sögugrúsk Illuga Jökulssonar og ýmislegt fleira. Þörf mannsins fyrir að komast í návígi við sögufræga staði og muni er velt upp, sem og mismunandi afstöðu til varðveislu söguminja.Í þættinum er ráfað á milli þess gamla og nýja með hjálp gamalla hljóðbrota úr safnkistu Ríkisútvarpsins. Rætt er við samtímafólk þegar möguleiki er eða einhvern sem tengist umræddum upptökum á einhvern hátt. Því stóra í bland við það smáa er velt upp, rifjaðir upp misáhugaverðir atburðir og horfin og óhorfin æviskeið. Sögur sem snertu marga í einu, sem og persónulegar sögur sem snertu aðeins fáa, jafnvel aðeins einn. Hlustunarferðalög án upphafs og endis.
  • 8. Bakslagið VIII.

    30:41||Season 2, Ep. 8
    Síðasta þætti Bakslagsins lýkur með ráðum til valdeflingar og eldri viðtalsbrotum. Við sögu kemur gagnræða, lúmskir fordómar, stjörnufræði og ýmislegt fleira. Rætt er við móður þáttastjórnanda, Sigrúnu Eggertsdóttur kirkjuvörð í Grafarvogskirkju, Esjar Smára Gunnarsson, menntaskólanema, Bjarndísi Tómasdóttur formann Samtakanna 78 og Kára Garðarsson framkvæmdastjóra Samtakanna 78.Þetta er seinni þáttur af tveimur
  • 7. Bakslagið VII.

    55:32||Season 2, Ep. 7
    Í þættinum heyrum við í ungu fólki og menntakerfinu og skoðum hugmyndir úr nýjustu bók Judith Butler, Who’s Afraid of Gender? Í bókinni rýnir hán í kyn og kynvitund frá líffræðilegu og félagslegu sjónarmiði og skoðar þann samfélagslega ótta sem hefur orðið til í tengslum við kynjahugmyndafræði eða „gender ideology“. Esjar Smári Blær Gunnarsson menntaskólanemi segir frá reynslu sinni af því að koma út sem trans á unglingsárum. Við heyrum líka raddir ungs fólks úr hinsegin félagsmiðstöðinni. Íris Ellenberger, prófessor við deild faggreinakennslu í samfélagsgreinum, og Auður Magndís Auðardóttir, dósent í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, segja frá rannsókn sem unnin var í fyrra þar sem skoðuð voru áhrif bakslagsins á grunn- og framhaldsskólakennara. Þetta er fyrri þáttur af tveimur.
  • 6. Bakslagið VI.

    59:08||Season 2, Ep. 6
    Í þættinum er haldið áfram að fjalla um hatursorðræðu og inntak slíkrar tjáningar skoðað nánar með hjálp lögfróðra. Velt er upp tilvikum þar sem ólík réttindi mætast, það er tjáningarfrelsi annars vegar og friðhelgi einkalífs, persónu og heimilis hins vegar.Er markvissu eftirliti með hatursorðræðu sinnt? Rætt er við Gyðu Stefánsdóttur, aðstoðarsaksóknara hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, um það hvernig það lítur við lögreglunni. Hvers konar ummæli eru það alvarleg að þau heimila takmörkun á tjáningarfrelsi? Hvers konar orðræðu er leyfilegt að bera á borð? Og hvenær gengur hún of langt? Halldóra Þorsteinsdóttir, héraðsdómari og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, situr fyrir svörum. Þáttastjórnandi ber undir hana ummæli af netinu og fær hana til að rýna í með gleraugum laganna. Hilmar Hildar Magnúsarson, fyrrverandi formaður Samtakanna 78, og Björg Valgeirsdóttir, doktorsnemi við lagadeild í Lundi í Svíþjóð, segja einnig nánar frá niðurstöðu Mannréttindadómstóls í þýðingarmiklum dómi er varðar efnið.
  • 5. Bakslagið V.

    58:26||Season 2, Ep. 5
    Í fyrra var rannsókn birt sem greindi frá því að tíunda hver athugasemd sem látin er falla um hinseginleika í athugasemdakerfum íslenskra síðna er hatursfull. Í þættinum er leitað til fræðafólks og baráttufólks í von um að skilja betur hatursorðræðu, sem og áhrif hennar. Rýnt er í félagsfræðilegar rannsóknir sem benda til þess að fordómafull tjáning á netinu geti haft slæm áhrif í raunheimum. „Hvað gerist þegar fólk verður vart við að aðrir eru að tjá andúð? Þá myndast hætta á því að ómeðvitaðir fordómar fái lausan tauminn og brjótist út,“ segir Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við HÍ. Kannanir benda til að fólk sé líklegra til að tjá andúð á netinu sjái það fleiri tjá sig með slíkum hætti, það er hatursfull ummæli leiða af sér fleiri hatursfull ummæli.Rætt er einnig við Lönu Kolbrúnu Eddudóttur, fyrstu konuna sem varð formaður Samtakanna 78, Kára Garðarsson, núverandi framkvæmdastjóra Samtakanna 78, Hilmar Hildar Magnúsarson, fyrrum formann Samtakanna 78, og Björgu Valgeirsdóttur, doktorsnema við lagadeild Háskólans í Lundi. Einblínt er á a-lið 233. gr. almennra hegningarlaga.
  • 3. Bakslagið III.

    58:37||Season 2, Ep. 3
    „Viðbrögðin voru þau, að þegar þessi þáttur var sýndur þá skildist mér að það hefði mátt heyra saumnál detta. Fólk vissi ekkert af þessu. Þetta var nýtt fyrir þeim,“ segir Anna Kristjánsdóttir um viðtal sem var tekið við hana stuttu eftir að hún kom út sem trans árið 1994. Við rifjum upp sögu Önnu í þætti dagsins, og merkilegan þátt hennar í réttindabaráttu trans fólks hér á landi enda var hún fyrsti Íslendingurinn til að koma opinberlega út sem trans. Hlustað er á eldri viðtalsbrot þar sem tíðarandi 10. áratugarins skín í gegnum spurningar fjölmiðlafólks. „Þegar maður var ein að berjast fyrir þessu þá var enginn til að verja málstaðinn’’.Við sögu koma April Ashley, dönsk skipafélög, Tristan da Cunha, frímerki og ýmislegt fleira
  • 2. Bakslagið II.

    01:00:53||Season 2, Ep. 2
    ,,Það sem er sárast er að horfa upp á það hatur, þann fjandskap og þá heimsku sem beinist að trans fólki á Íslandi,’’ segir Þorvaldur Kristinsson, rithöfundur og fyrrverandi formaður Samtakanna 78. Þorvaldur er einn þeirra sem tóku slaginn á fyrstu árum réttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi. Í þættinum er ferðast aftur í tímann. Spiluð eru brot úr útvarpsþætti frá 1983 þar sem hlustendum gafst kostur á að hringja inn og deila skoðunum sínum á málefnum „hómósexúal fólks“ eins og það var kallað á þeim tíma. Hljóðbrotin gefa innsýn í tíðarandann á níunda áratugnum og baráttu Samtakanna 78. Rúmum fjórum áratugum síðar setjumst við niður með baráttufólki fyrir réttindum hinsegin fólks frá upphafi, fólki sem man tímana tvenna. Við ræðum líðan og stöðu mála í dag því að orðræða samtímans minnir eldri kynslóðina á hið liðna, eða eins og Þorvaldur orðar það: ,,Þarna er verið að endurtaka í rauninni allan þann vonda áróður sem ég kynntist fyrir áratugum síðan. Það er sama orðræðan, sömu viðbrögð. Þetta óttablandna hatur við það sem við ekki þekkjum.’’ Í þættinum er rætt við Ragnhildi Sverrisdóttur, Þorvald Kristinsson og Þorstein Vilhjálmsson.