Share

Kveikur
Lyfjaþoka á hjúkrunarheimili
•
Rúmur þriðjungur íbúa íslenskra hjúkrunarheimila fékk sterk geðlyf í fyrra, í mörgum tilvikum án greiningar á geðsjúkdómi. Aðstandendur lýsa ástvinum sem urðu svo sljóvgaðir að þeir héldu að um alvarleg veikindi væri að ræða.
Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Árni Þór Theódórsson
Hlaðvarpsritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Arnhildur Hálfdánardóttir.
More episodes
View all episodes

Níðingarnir á netinu
45:30|Barnaníðsefni hefur aldrei verið jafn útbreitt á netinu og það verður sífellt grófara. Lögreglan reynir að stöðva þá sem horfa en eftirspurnin vex hratt og fáir hljóta dóm. Það er ekki bara horft: á samfélagsmiðlum eiga fullorðnir karlar auðvelt með að nálgast börn. Þegar Kveikur stofnar aðgang í nafni fjórtán ára stúlku hrannast vinabeiðnir inn.Rétt er að vara við því að efni þáttarins getur vakið óhug.Ritstjórn og dagskrárgerð: Sunna Karen Sigurþórsdóttir, Árni Þór Theodórsson og Ragnhildur Þrastardóttir.Ristjórn hlaðvarps: Arnhildur Hálfdánardóttir og Anna Marsibil Clausen
Börnin og milljarðarnir
48:00|Börn með fjölþættan vanda hafa árum saman verið vistuð í einkareknum búsetuúrræðum. Velta úrræðanna hleypur á milljörðum árlega. Aðstandendur og fyrrverandi starfsmenn lýsa veruleika barna sem fá takmarkaða faglega aðstoð. Kveikur skoðar hvernig markaðurinn varð til og hver fylgist með honum.Ritstjórn og dagskrárgerð: Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Arnar Þórisson og Hákon Pálsson. Ristjórn hlaðvarps: Arnhildur Hálfdánardóttir og Anna Marsibil Clausen
Risinn á barnum
34:38|Hver ræður því hvað er í glasinu þínu? Keppinautar Ölgerðarinnar segjast útilokaðir frá viðskiptum við bari, veitingastaði, útihátíðir og jafnvel nemendafélög því samningar við Ölgerðina standi í veginum. Kveikur skoðar samninga og samskipti sem varpa ljósi á það hvernig einn risi getur mótað heilan markað. Ölgerðin hafnar því að útiloka keppinauta.Ritstjórn og dagskrárgerð: Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Ingvar Haukur GuðmundssonRistjórn hlaðvarps: Arnhildur Hálfdánardóttir og Anna Marsibil Clausen