Kveikur
All Episodes

Risinn á barnum
34:38|Hver ræður því hvað er í glasinu þínu? Keppinautar Ölgerðarinnar segjast útilokaðir frá viðskiptum við bari, veitingastaði, útihátíðir og jafnvel nemendafélög því samningar við Ölgerðina standi í veginum. Kveikur skoðar samninga og samskipti sem varpa ljósi á það hvernig einn risi getur mótað heilan markað. Ölgerðin hafnar því að útiloka keppinauta.Ritstjórn og dagskrárgerð: Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Ingvar Haukur GuðmundssonRistjórn hlaðvarps: Arnhildur Hálfdánardóttir og Anna Marsibil Clausen
Lyfjaþoka á hjúkrunarheimili
41:53|Rúmur þriðjungur íbúa íslenskra hjúkrunarheimila fékk sterk geðlyf í fyrra, í mörgum tilvikum án greiningar á geðsjúkdómi. Aðstandendur lýsa ástvinum sem urðu svo sljóvgaðir að þeir héldu að um alvarleg veikindi væri að ræða.Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Árni Þór TheódórssonHlaðvarpsritstjórn: Anna Marsibil Clausen.
loading...