Share

cover art for Sokkalabbarnir og heimsókn í Seljaskóla

Hvað ertu að lesa?

Sokkalabbarnir og heimsókn í Seljaskóla

Season 5, Ep. 10

Þáttur dagsins er stútfullur af snillingum!


Fyrst segir bókaormurinn Allan Magnús frá Sokkalöbbunum. Svo heimsækjum við Seljaskóla. Þar heyrum við í bókasafnsfræðingnum Dröfn segja frá dularfullri rannsókn á öskudaginn og lestrarátaki fyrir páskana. Að lokum keppa sex bókaormar úr skólanum í spurningaleikjum um barnabækur.

More episodes

View all episodes

  • 9. Risaland, furðulegur fjársjóður og að teygja sig í klósettpappírinn

    20:47||Season 5, Ep. 9
    Hverjir eru þessir risar? Hvað er Risaland? Af hverju eru hlutir svona hátt uppi eða langt í burtu?Birna Daníelsdóttir segir frá bókinni Ég bý í Risalandi sem byrjaði sem lokaverkefni í Myndlistarskólanum. Hún lærði líffræði en tók u-beygju og starfar sem listakona í dag.Bókaormurinn Gabríela Rós rýnir í bókina, boðskapinn og rúllar upp Tímaröðinni.
  • 8. Kötturinn og ég: myndasaga um hugarheim katta og samband þeirra við eiganda sinn

    22:07||Season 5, Ep. 8
    Hvað gerist þegar stelpa kemur með kött heim til sín? Geta manneskja og köttur orðið bestu vinir? Hvernig á að kveðja besta vin sinn?Brynhildur Jenný segir frá myndasögunni Kötturinn og ég. Hún uppljóstrar hvernig hún skipalagði söguna,. hvað henni fannst erfiðast að teikna og hvaða verkefni eru framundan.Bókaormurinn Sindri rýnir í söguna og spreytir sig í leiknum Hitt eða þetta þar sem hann velur sitt drauma gæludýr.
  • 7. Flóttinn á norðurhjarann

    18:34||Season 5, Ep. 7
    Hvað eru móðuharðindin? Af hverju þurfti fólk á Íslandi að flýja? Hvernig bregst 12 ára stelpa við í þessum aðstæðum?Nanna Rögnvaldardóttir segir frá bókinni sinni, Flóttinn á norðurhjarann. Hún lýsir móðuharðindunum, köldum vetrum og erfiðri lífsbaráttu fullorðins fólks og krakka.Bókaormurinn Hildur Sif segir hvað henni fannst um bókina og hvort hún haldi að hún hefði hagað sér eins og aðalpersónan í þessum aðstæðum en þær eru einmitt jafn gamlar. Í lok þáttar reynir hún að raða atburðum úr sögunni í rétta röð í Tímaröðinni.
  • 6. Velkomin í Voðagerði! Hér er allt að óttast ...

    20:58||Season 5, Ep. 6
    Af hverju heitir bærinn Voðagerði? Hvað er Lilja með inn í sér? Kemur önnur bók um bæinn?Höfundarnir Hilmar Örn og Blær svara þessum spurningum og fleirum ásamt því að segja frá því hvert þau sóttu innblástur og hvernig samstarfinu var háttað.Bókaormurinn Aría Valdís greinir bókina og spreytir sig í leiknum Hitt eða þetta þar sem hún endar á að velja voðalegasta hlutinn í bókinni.
  • 5. Sólgos: hvað gerist þegar rafmagnið fer af?

    20:39||Season 5, Ep. 5
    Sólgos er ungmennabók sem segir frá því þegar rafmagnið fer af. Aðalpersóna bókarinnar er unglingsstelpan Unnur sem þarf að takast á við breyttar aðstæður og vona að mamma sín komist heim frá útlöndum einn daginn.Arndís Þórarinsdóttir segir okkur hvernig hún fékk hugmyndina að bókinni og hvað kom henni á óvart við rannsóknarvinnuna. Bókaormarnir Edda Björk og Bjartur rýna í bókina.
  • 4. Fellihýsageymslan, pissandi eðlur og bréf frá forseta Íslands

    21:00||Season 5, Ep. 4
    Af hverju ákvað Marta Magnúsdóttir að skrifa um fellihýsageymslu? Af hverju koma eðlur við sögu og hvernig gekk henni að skrifa bréf frá Guðna Th. til aðalpersónanna í bókinni?Í þessum þætti fáum við svör við öllum þessum spurningum og fleirum. Bókaormurinn Friðmey Ósk rýnir í bókinni og spreytir sig í Tímaröðinni.
  • 3. Drottningin af Galapagos og fleira um Freyju og Frikka

    18:59||Season 5, Ep. 3
    Felix Bergsson segir frá ævintýrunum um Freyju og Frikka og þá aðallega bókinni Drottningin af Galapagos, sem kom út á prenti fyrir jól. Auk þess sviptir hann hulunni af næstu bók um tvíburana.Bókaormurinn Kristín María rýnir í Drottninguna af Galapagos og spreytir sig í leiknum Hver sagði hvað?
  • 2. Brandarabíllinn og fleiri ævintýri í Bjarkarey

    20:34||Season 5, Ep. 2
    Hvað gerist þegar Matti prófar bíl sem keyrir af stað þegar einhver segir brandara? Nær hann að stoppa með því að lesa fréttir um efnahagsmál?Sváfnir segir okkur frá bókinni sinni, Brandarabíllinn. Hann segir hvernig hugmyndin kviknaði út frá bílnum Chitty Chitty Bang Bang og hvernig honum gekk að myndlýsa bók í fyrsta skipti.Bókaormurinn Markús segir okkur frá bókinni og spreytir sig í leik sem gengur út á að raða atburðum úr bókinni í tímaröð.