Share

Hvað ertu að lesa?
Bless í bili!
Season 5, Ep. 19
•
Þessi síðasti þáttur fyrir sumarfrí er sannkölluð bókahátíð!
Við byrjum á að heyra í Eyrúnu og Grétu frá bókasafni Kópavogs. Þær segja okkur frá viðburðum bókasafnsins á næstunni og spá hvaða bækur verða vinsælar í sumar.
Svo mæli ég með nokkrum bókum og við heyrum hljóðbrot frá athöfn til heiðurs Sigrúnu Eldjárn.
Sævar Helgi og Elías Rúni segja frá bókinni sinni um sólmyrkvann sem mun einmitt eiga sér stað í ágúst.
Við ljúkum svo þættinum á bókaormum í Hlíðaskóla og kveðjustund. Bless í bili!
More episodes
View all episodes

18. Þýddar bækur frá A til Ö
22:16||Season 5, Ep. 18Í dag fræðumst við um ferlið á bak við þýddar bækur. Allt frá því að finna spennandi bækur á bókamessum, yfir í að þýða þær á íslensku og svo að sjálfsögðu að lesa þær!Við heyrum í hjónunum Ása og Elínu sem eru útgefendur og þýðendur hjá útgáfunni Drápu. Þau segja frá bókum eins og Fótboltistunum, Ísadóru Nótt og Handbók fyrir ofurhetjur. Auk þess uppljóstra þau hvaða bækur eru væntanlegar síðar á árinu.Svo spyrjum við Jón Stefán Kristjánsson út í þýðingar hans á Undrarútunni og fleiri barnabókum og teiknimyndum.Að lokum lýsir bókaormurinn Ylfa Dögg bókaflokknum Vinkonur og tekur þátt í leiknum Botnaðu bókatitilinn.
17. Miðbæjarrottan: rottan sem þekkir Reykjavík eins og handarbakið á sér!
21:41||Season 5, Ep. 17Vissir þú að rottur búa á víð og dreif um Reykjavík og þekkja borgina jafnvel betur en mannfólkið?Auður Þórhallsdóttir segir frá bókaflokknum Miðbæjarrottan þar sem Rannveig miðbæjarrotta skoðar ýmsa króka og kima Reykjavíkur. Hún kynnir sér styttur, byggingar, bókmenntir og lagnir.Bókaormurinn Amalía Eik segir frá bókum úr bókaflokknum og tekur þátt í leiknum Hitt eða þetta þar sem hún velur hvaða sögupersónur hún myndi vilja hitta.
16. Skólinn í Skrímslabæ
21:07||Season 5, Ep. 16Hvernig taka skrímslin í það þegar mannabarn kemur í Skólann í Skrímslabæ?Bergrún Íris segir frá því hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði og af hverju hún kom ekki út fyrr en nokkrum árum seinna. Hún lýsir ferlinu við gerð bókarinnar og talar fallega um myndlýsingar Tinds Lilju. Systkinin Jökla Katrín og Stefán Andri rýna í bókina og púsla saman sinni eigin stundarskrá ef þau fengju tækifæri til að gerast nýir nemendur Skólans í Skrímslabæ.
15. Árstíðarverur sem stjórna veðrinu
21:11||Season 5, Ep. 15Af hverju snjóar stundum á vorin og sólin gleymir að láta sjá sig á sumrin?Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen segja frá bókinni Árstíðarverur. Þær segja frá sínum uppáhalds barnabókum, hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði á kaffihúsi í Hafnarfirði og um hvað næsta bók þeirra fjallar.Bókaormurinn Ásberg Rafn rýnir í Árstíðarverur og tekur þátt í glænýjum leik sem kallast Fylltu í eyðurnar.
14. Hjartslátturinn hennar Lóu
17:19||Season 5, Ep. 14Hundurinn Lóa fær að gera öll sín uppáhalds prakkarastrik áður en hún deyr. Hvaða prakkarastrik ætli það séu?Mæðgurnar Kristín og Lilja Cardew segja frá bókinni Hjartslátturinn hennar Lóu sem fjallar um hund sem fær að gera sín uppáhalds prakkarastrik áður en hann deyr. Þær segja að heimilið þeirra hafi stundum verið eins og örkin hans Nóa því fjölskyldan átti svo mörg gæludýr og velta fyrir sér hvernig prakkarastrik önnur dýr framkvæma.Bókaormurinn Hrefna Rós rýnir í bókina og keppir í Tímaröðinni.
13. Kötturinn Emil sem allir vildu eiga
19:22||Season 5, Ep. 13Kötturinn Emil var týndur í sjö ár en rataði svo aftur til eiganda síns!Í bókinni Kötturinn Emil sem allir vildu eiga segir Helga Ólafs sögu kattarins og Gerður Steinars teiknar fallegar og skemmtilegar myndir sem prýða blaðsíðurnar. Þær segja frá ferlinu við gerð bókarinnar og segja okkur frá Emil.Bókaormurinn Davíð segir hvað honum finnst um bókina og tekur þátt í leiknum Hitt eða þetta þar sem hann velur besta kattanafnið að hans mati.
12. Hvað þýðir að vera VIÐ?
19:20||Season 5, Ep. 12Hvað þýðir að vera VIÐ og hvernig getum VIÐ orðið betri?Helen og Fanny segja frá bókinni VIÐ. Þær lýsa því hvernig er að flytja til Íslands frá öðru landi og hvernig við getum tekið vel á móti nýju fólki.Bókaormurinn Tara segir frá bókinni og raðar atriðum í rétta tímaröð.
11. Silfurgengið hennar Brynhildar
20:46||Season 5, Ep. 11Hvað gerist þegar Sirrýlei fer að grafa upp sögur um fjölskylduna sína? Hver er uppruni silfurnælunnar og af hverju heita svona margar sögupersónur Sigríður?Brynhildur Þórarinsdóttir uppljóstrar alls kyns leyndarmálum um gerð unglingabókarinnar Silfurgengið og bókaormurinn Kristín gefur bókinni góða dóma. Auk þess spreytir hún sig í leiknum Hver sagði hvað?