Share

cover art for Drottningin af Galapagos og fleira um Freyju og Frikka

Hvað ertu að lesa?

Drottningin af Galapagos og fleira um Freyju og Frikka

Season 5, Ep. 3

Felix Bergsson segir frá ævintýrunum um Freyju og Frikka og þá aðallega bókinni Drottningin af Galapagos, sem kom út á prenti fyrir jól. Auk þess sviptir hann hulunni af næstu bók um tvíburana.

Bókaormurinn Kristín María rýnir í Drottninguna af Galapagos og spreytir sig í leiknum Hver sagði hvað?

More episodes

View all episodes

  • 16. Skólinn í Skrímslabæ

    21:07||Season 5, Ep. 16
    Hvernig taka skrímslin í það þegar mannabarn kemur í Skólann í Skrímslabæ?Bergrún Íris segir frá því hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði og af hverju hún kom ekki út fyrr en nokkrum árum seinna. Hún lýsir ferlinu við gerð bókarinnar og talar fallega um myndlýsingar Tinds Lilju. Systkinin Jökla Katrín og Stefán Andri rýna í bókina og púsla saman sinni eigin stundarskrá ef þau fengju tækifæri til að gerast nýir nemendur Skólans í Skrímslabæ.
  • 15. Árstíðarverur sem stjórna veðrinu

    21:11||Season 5, Ep. 15
    Af hverju snjóar stundum á vorin og sólin gleymir að láta sjá sig á sumrin?Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen segja frá bókinni Árstíðarverur. Þær segja frá sínum uppáhalds barnabókum, hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði á kaffihúsi í Hafnarfirði og um hvað næsta bók þeirra fjallar.Bókaormurinn Ásberg Rafn rýnir í Árstíðarverur og tekur þátt í glænýjum leik sem kallast Fylltu í eyðurnar.
  • 14. Hjartslátturinn hennar Lóu

    17:19||Season 5, Ep. 14
    Hundurinn Lóa fær að gera öll sín uppáhalds prakkarastrik áður en hún deyr. Hvaða prakkarastrik ætli það séu?Mæðgurnar Kristín og Lilja Cardew segja frá bókinni Hjartslátturinn hennar Lóu sem fjallar um hund sem fær að gera sín uppáhalds prakkarastrik áður en hann deyr. Þær segja að heimilið þeirra hafi stundum verið eins og örkin hans Nóa því fjölskyldan átti svo mörg gæludýr og velta fyrir sér hvernig prakkarastrik önnur dýr framkvæma.Bókaormurinn Hrefna Rós rýnir í bókina og keppir í Tímaröðinni.
  • 13. Kötturinn Emil sem allir vildu eiga

    19:22||Season 5, Ep. 13
    Kötturinn Emil var týndur í sjö ár en rataði svo aftur til eiganda síns!Í bókinni Kötturinn Emil sem allir vildu eiga segir Helga Ólafs sögu kattarins og Gerður Steinars teiknar fallegar og skemmtilegar myndir sem prýða blaðsíðurnar. Þær segja frá ferlinu við gerð bókarinnar og segja okkur frá Emil.Bókaormurinn Davíð segir hvað honum finnst um bókina og tekur þátt í leiknum Hitt eða þetta þar sem hann velur besta kattanafnið að hans mati.
  • 12. Hvað þýðir að vera VIÐ?

    19:20||Season 5, Ep. 12
    Hvað þýðir að vera VIРog hvernig getum VIРorðið betri?Helen og Fanny segja frá bókinni VIÐ. Þær lýsa því hvernig er að flytja til Íslands frá öðru landi og hvernig við getum tekið vel á móti nýju fólki.Bókaormurinn Tara segir frá bókinni og raðar atriðum í rétta tímaröð.
  • 11. Silfurgengið hennar Brynhildar

    20:46||Season 5, Ep. 11
    Hvað gerist þegar Sirrýlei fer að grafa upp sögur um fjölskylduna sína? Hver er uppruni silfurnælunnar og af hverju heita svona margar sögupersónur Sigríður?Brynhildur Þórarinsdóttir uppljóstrar alls kyns leyndarmálum um gerð unglingabókarinnar Silfurgengið og bókaormurinn Kristín gefur bókinni góða dóma. Auk þess spreytir hún sig í leiknum Hver sagði hvað?
  • 10. Sokkalabbarnir og heimsókn í Seljaskóla

    19:34||Season 5, Ep. 10
    Þáttur dagsins er stútfullur af snillingum!Fyrst segir bókaormurinn Allan Magnús frá Sokkalöbbunum. Svo heimsækjum við Seljaskóla. Þar heyrum við í bókasafnsfræðingnum Dröfn segja frá dularfullri rannsókn á öskudaginn og lestrarátaki fyrir páskana. Að lokum keppa sex bókaormar úr skólanum í spurningaleikjum um barnabækur.
  • 9. Risaland, furðulegur fjársjóður og að teygja sig í klósettpappírinn

    20:47||Season 5, Ep. 9
    Hverjir eru þessir risar? Hvað er Risaland? Af hverju eru hlutir svona hátt uppi eða langt í burtu?Birna Daníelsdóttir segir frá bókinni Ég bý í Risalandi sem byrjaði sem lokaverkefni í Myndlistarskólanum. Hún lærði líffræði en tók u-beygju og starfar sem listakona í dag.Bókaormurinn Gabríela Rós rýnir í bókina, boðskapinn og rúllar upp Tímaröðinni.
  • 8. Kötturinn og ég: myndasaga um hugarheim katta og samband þeirra við eiganda sinn

    22:07||Season 5, Ep. 8
    Hvað gerist þegar stelpa kemur með kött heim til sín? Geta manneskja og köttur orðið bestu vinir? Hvernig á að kveðja besta vin sinn?Brynhildur Jenný segir frá myndasögunni Kötturinn og ég. Hún uppljóstrar hvernig hún skipalagði söguna,. hvað henni fannst erfiðast að teikna og hvaða verkefni eru framundan.Bókaormurinn Sindri rýnir í söguna og spreytir sig í leiknum Hitt eða þetta þar sem hann velur sitt drauma gæludýr.