Share

Fatlist
2. þáttur
Season 1, Ep. 2
•
Í þessum þætti er fjallað um birtingarmynd fötlunar í bókum og leikhúsi. Fatlaðar persónur eða fötlun er stundum notuð sem vending í söguframvindu eða nýtt sem tákn eða táknræn framsetning. En mega þá ófatlaðir ekki skrifa fatlaðar sögupersónur? Á leiksviðinusviði hafa ófatlaðir leikarar í gegnum tíðina farið með hlutverk fatlaðra en það er að breytast. Og þegar kemur að aðgengismálum er frekar gert ráð fyrir fötluðum sem þiggjendum menningar, ekki gerendum.
Viðmælendur þáttarins: Gunnar Helgason rithöfundur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Sjón rithöfundur, Karl Ágúst Þorbergsson sviðshöfundur, Embla Guðrúnar Ágústsdóttir félagsfræðingur og listamaður og Bjarni Snæbjörnsson leikari.
More episodes
View all episodes

4. 4. þáttur
43:04||Season 1, Ep. 4Geðheilbrigði og list á jaðrinum verður aðalefni þáttarins. Rætt er við Héðinn Unnsteinsson sem hefur verið framarlega í réttindabaráttu í þágu geðheilbrigðis og farið verður í heimsókn í Listvinnsluna og í danstíma í Kúnstpásu.Viðmælendur: Héðinn Unnsteinsson rithöfundur, Íris Stefanía Skúladóttir dansari og kennari, Þórir Gunnarsson listamaður, Elín Sigríður María Ólafsdóttir listamaður, Eiríkur Karl Ólafsson Smith frá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum.
3. 3. þáttur
40:44||Season 1, Ep. 3Í þessum þætti verður kveikt á sjónvarpinu og farið í bíó. Birtingarmyndir fötlunar í kvikmyndum og sjónvarpi hefur tekið breytingum í gegnum árin, þar eru fatlaðar persónur oft annað hvort hetjan eða skúrkurinn og í gegnum söguna hafa ófatlaðir leikarar sem leika fatlaða persónu gjarnan verið tilnefndir til verðlauna, og unnið. Og myndlistin verður líka skoðuð og hvernig fötlun birtist í listinni og hver tækifæri fatlaðra listamanna eru.Viðmælendur þáttarins: Kristín Björnsdóttir prófessor í fötlunarfræði menntunar við Háskóla Íslands, Kjartan Þór Ingason verkefnastjóri hjá ÖBÍ, Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona, Margrét Norðdahl myndlistarmanneskja og framkvæmdastýra Listvinnslunnar, Inga Björk Margrétar- Bjarnadóttir listfræðingur og doktorsnemi.
1. 1. þáttur
38:46||Season 1, Ep. 1Í fyrsta þætti er farið yfir skilgreiningar og nokkur algeng sjónarhorn á fötlun sem hafa breyst í gegnum söguna. Með tilkomu fötlunarfræð á háskólastigi upp úr aldamótum jókst skilningur og sýnileiki fötlunar til muna.Viðmælendur þáttarins: Kristín Björnsdóttir prófessor í fötlunarfræði menntunar við Háskóla Íslands, Eiríkur Karl Ólafsson Smith frá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum og Hanna Björg Sigurjónsdóttir prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands.