Share

cover art for 1. þáttur

Fatlist

1. þáttur

Season 1, Ep. 1

Í fyrsta þætti er farið yfir skilgreiningar og nokkur algeng sjónarhorn á fötlun sem hafa breyst í gegnum söguna. Með tilkomu fötlunarfræð á háskólastigi upp úr aldamótum jókst skilningur og sýnileiki fötlunar til muna.


Viðmælendur þáttarins: Kristín Björnsdóttir prófessor í fötlunarfræði menntunar við Háskóla Íslands, Eiríkur Karl Ólafsson Smith frá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum og Hanna Björg Sigurjónsdóttir prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands.

More episodes

View all episodes

  • 4. 4. þáttur

    43:04||Season 1, Ep. 4
    Geðheilbrigði og list á jaðrinum verður aðalefni þáttarins. Rætt er við Héðinn Unnsteinsson sem hefur verið framarlega í réttindabaráttu í þágu geðheilbrigðis og farið verður í heimsókn í Listvinnsluna og í danstíma í Kúnstpásu.Viðmælendur: Héðinn Unnsteinsson rithöfundur, Íris Stefanía Skúladóttir dansari og kennari, Þórir Gunnarsson listamaður, Elín Sigríður María Ólafsdóttir listamaður, Eiríkur Karl Ólafsson Smith frá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum.
  • 3. 3. þáttur

    40:44||Season 1, Ep. 3
    Í þessum þætti verður kveikt á sjónvarpinu og farið í bíó. Birtingarmyndir fötlunar í kvikmyndum og sjónvarpi hefur tekið breytingum í gegnum árin, þar eru fatlaðar persónur oft annað hvort hetjan eða skúrkurinn og í gegnum söguna hafa ófatlaðir leikarar sem leika fatlaða persónu gjarnan verið tilnefndir til verðlauna, og unnið. Og myndlistin verður líka skoðuð og hvernig fötlun birtist í listinni og hver tækifæri fatlaðra listamanna eru.Viðmælendur þáttarins: Kristín Björnsdóttir prófessor í fötlunarfræði menntunar við Háskóla Íslands, Kjartan Þór Ingason verkefnastjóri hjá ÖBÍ, Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona, Margrét Norðdahl myndlistarmanneskja og framkvæmdastýra Listvinnslunnar, Inga Björk Margrétar- Bjarnadóttir listfræðingur og doktorsnemi.
  • 2. 2. þáttur

    40:43||Season 1, Ep. 2
    Í þessum þætti er fjallað um birtingarmynd fötlunar í bókum og leikhúsi. Fatlaðar persónur eða fötlun er stundum notuð sem vending í söguframvindu eða nýtt sem tákn eða táknræn framsetning. En mega þá ófatlaðir ekki skrifa fatlaðar sögupersónur? Á leiksviðinusviði hafa ófatlaðir leikarar í gegnum tíðina farið með hlutverk fatlaðra en það er að breytast. Og þegar kemur að aðgengismálum er frekar gert ráð fyrir fötluðum sem þiggjendum menningar, ekki gerendum.Viðmælendur þáttarins: Gunnar Helgason rithöfundur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Sjón rithöfundur, Karl Ágúst Þorbergsson sviðshöfundur, Embla Guðrúnar Ágústsdóttir félagsfræðingur og listamaður og Bjarni Snæbjörnsson leikari.