Latest episode
Aukaþáttur: Tollararnir
39:41|Guðrún Hálfdánardóttir ræðir við Brynjólf Karlsson og Jónas Hall sem kynntust þegar þeir voru 12 ára og störfuðu sem tollverðir um árabil.Tónlist: Stolin stef - Gunnar GunnarssonSpeak softly - Haukur Heiðar Ingólfsson Catching Lightning - Alex Mastronardi.
More episodes
View all episodes
5. þáttur: Komu aldrei til hafnar
40:48|Birgir Þór Helgason var boðaður á fund í höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins haustið 1986 og fenginn til að stýra leiðangri hringinn í kringum jörðina; leynilegum siglingarleiðangri sem tók á annað ár í þeim tilgangi að flytja mikilvægan farm. Þessi farmur kom aldrei til hafnar samkvæmt opinberum gögnum. Samt, átti hann eftir að setja mark sitt á hernaðarsögu heimsins. Viðmælendur í þættinum eru: Albert Jónsson, Birgir Þór Helgason og Jón Ingi Þórarinsson.4. þáttur: Út í óvissuna
39:54|Haustið 1986 tók Birgir Þór Helgason vélstjóri að sér verkefni án þess að vita hvað það fól í sér. Næstu misserin sigldi hann, ásamt áhöfn, gömlu smyglskipi heimsálfa á milli. Það var ekki fyrr en seint og um síðir að upplýst var um hver förinni var heitið og hvað biði þeirra þar.3. þáttur: Baráttan við Bakkus
39:56|Íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason hefur tekist á við ýmislegt á sinni löngu ævi. Meðal annars leyniför hringinn í kringum jörðina. Baráttan við Bakkus er aldrei langt undan í fjölskyldu Birgis og sú barátta tekur toll sem enginn vill þurfa að greiða. Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason og Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingum í alþjóðamálum.Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.2. þáttur: Framtíðin ráðin
40:33|Birgir Þór Helgason vélstjóri var boðaður á leynilegan fund haustið 1986. Fund sem markaði upphaf háskafarar um heimsins höf. Birgir hefur reynt ýmislegt um ævina og í þessum þætti heyrum við meðal annars af smygli og sjóskaða.Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason, Brynjólfur Karlsson og Jónas Hall.Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.1. þáttur: Vandræðabarn frá byrjun
38:43|Haustið 1986 var íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason boðaður á leynilegan fund. Það var upphafið að mikilli háskaför hinum megin á hnettinum. En hver er þessi Birgir?Í þessum þætti fáum við að kynnast bakgrunni hans og hvað gerði hann að þeim manni sem hann er nú. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.