Share

Bein
Eldflaugaförin 5. þáttur: Komu aldrei til hafnar
Season 1, Ep. 5
•
Birgir Þór Helgason var boðaður á fund í höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins haustið 1986 og fenginn til að stýra leiðangri hringinn í kringum jörðina; leynilegum siglingarleiðangri sem tók á annað ár í þeim tilgangi að flytja mikilvægan farm. Þessi farmur kom aldrei til hafnar samkvæmt opinberum gögnum. Samt, átti hann eftir að setja mark sitt á hernaðarsögu heimsins.
Viðmælendur í þættinum eru: Albert Jónsson, Birgir Þór Helgason og Jón Ingi Þórarinsson.
More episodes
View all episodes

1. Eldflaugaförin 1. þáttur: Vandræðabarn frá byrjun
38:43||Season 1, Ep. 1Haustið 1986 var íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason boðaður á leynilegan fund. Það var upphafið að mikilli háskaför hinum megin á hnettinum. En hver er þessi Birgir?Í þessum þætti fáum við að kynnast bakgrunni hans og hvað gerði hann að þeim manni sem hann er nú. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
2. Eldflaugaförin 2. þáttur: Framtíðin ráðin
40:33||Season 1, Ep. 2Birgir Þór Helgason vélstjóri var boðaður á leynilegan fund haustið 1986. Fund sem markaði upphaf háskafarar um heimsins höf. Birgir hefur reynt ýmislegt um ævina og í þessum þætti heyrum við meðal annars af smygli og sjóskaða.Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason, Brynjólfur Karlsson og Jónas Hall.Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
3. Eldflaugaförin 3. þáttur: Baráttan við Bakkus
39:56||Season 1, Ep. 3Íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason hefur tekist á við ýmislegt á sinni löngu ævi. Meðal annars leyniför hringinn í kringum jörðina. Baráttan við Bakkus er aldrei langt undan í fjölskyldu Birgis og sú barátta tekur toll sem enginn vill þurfa að greiða. Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason og Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingum í alþjóðamálum.Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
4. Eldflaugaförin 4. þáttur: Út í óvissuna
39:54||Season 1, Ep. 4Haustið 1986 tók Birgir Þór Helgason vélstjóri að sér verkefni án þess að vita hvað það fól í sér. Næstu misserin sigldi hann, ásamt áhöfn, gömlu smyglskipi heimsálfa á milli. Það var ekki fyrr en seint og um síðir að upplýst var um hver förinni var heitið og hvað biði þeirra þar.
Aukaþáttur: Tollararnir
39:41||Season 1Guðrún Hálfdánardóttir ræðir við Brynjólf Karlsson og Jónas Hall sem kynntust þegar þeir voru 12 ára og störfuðu sem tollverðir um árabil.Tónlist: Stolin stef - Gunnar GunnarssonSpeak softly - Haukur Heiðar Ingólfsson Catching Lightning - Alex Mastronardi.
1. Bein 1/3: Lærleggurinn verndar okkur...
39:05||Season 2, Ep. 1Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að rannsaka það með tilkomu nútíma tækni?