Þetta nútímalíf
All Episodes

4. Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann
55:51||Ep. 4Hvernig er að vinna í gigghagkerfinu, harkhagkerfinu, nú eða úllen dúllen doff hagkerfinu? Hagkerfi þar sem ófyrirsjáanlegur algóriþmi ræður því hver fær verkefni og hver ekki? Getur algóriþmi verið sanngjarn? Hvað getur talist vinna og hvað er bara hangs? Í þættinum kynnumst við veruleika Wolt-sendla á Íslandi, sérstaklega honum Mani sem rúntar með okkur um götur Reykjavíkur, segir okkur frá starfi sínu fyrir Wolt, áhyggjum og framtíðardraumum, já og því hvers vegna sendlarnir hanga svona oft í Fellsmúlanum. Við ræðum við forsvarsmann Wolt á Íslandi og í Noregi, nýkjörinn talsmann Wolt-sendla á Íslandi, gervigreindarsérfræðing og sendla sem fylktu liði á skrifstofur Wolt í Ármúla þegar verktakar hjá Wolt fengu langþráðan fund með yfirmönnum fyrirtækisins í lok september.Viðmælendur í þættinum:Christian KamphaugKristinn ÞórissonGersónGheorghe Mihai CacaliceanuMani Shahidi
3. Verði þinn greiðsluvilji
57:14||Ep. 3Hvaða þýðingu hefur það fyrir neytendur og fyrirtæki að verð séu orðin sérsniðin? Hvers eiga unglingar og fólk í viðskiptaferðum að gjalda? Í þættinum skoðum við heim verðlagningar sem er að breytast hratt. Það er ekki lengur eitt verð, það eru mörg verð. Viðmælendur í þættinum: Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum.Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Rannsóknarseturs HR í markaðsfræði og neytendasálfræði.Þórarinn Stefánsson, framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum. ***Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.
2. Óreiðan sem gerir okkur brjáluð
55:27||Ep. 2Hvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við að henda einum hlut?Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu.Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk um mannlegt eðli og það að losa sig við hluti.Viðmælendur í þættinum:Arnrún Árnadóttir skipuleggjariMarkús Þórhallsson fréttamaður og sagnfræðingurRagna Benedikta Garðarsdóttir prófessor í félagssálfræðiSvala Fanney Snædahl áhrifavaldur og kennariÞórður Örn Arnarson doktorsnemi í sálfræði***Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.
1. Þegar búslóðin fuðrar upp
51:38||Ep. 1Hvers virði eru efnislegir hlutir? Afhjúpar það að missa alla búslóðina á einu bretti eitthvað um þýðinguna sem hlutir hafa fyrir okkur? Nær maður sér af slíku? Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk sem missti stóran hluta veraldlegra eigna sinna í stórbrunanum í Geymslum árið 2018 í þeim tilgangi að skilja betur mannlegt eðli og mikilvægi hlutanna.
loading...