Elsta land í heimi
All Episodes

2. Elsta land í heimi - 2. þáttur
56:21||Season 1, Ep. 2Elsta berg á yfirborði jarðar er að finna á Grænlandi og bergið hefur mótandi áhrif á samfélagið sem á því er byggt. Jarðfræði Grænlands hefur áhrif á innviði, efnahag og lífsskilyrði í landinu og við ætlum að reyna að skilja þessi fyrirbæri betur. Við veltum fyrir okkur blokkunum, heilbrigðiskerfinu, tónlistinni, leikhúsinu og þögninni.Viðmælendur voru:Jón Viðar SigurðssonEmbla KristjánsdóttirMette Marie JensenGlenn MøllerVivi SørensenLög sem notuð voru í þættinum:Uummatip tusaataa - UillutAkimut Ikaarneq - UillutInuuneq Nunaaq - UillutKalaallit Nunaat, Kalaallit Pigaat - Kalaallit
1. Elsta land í heimi - 1. þáttur
54:09||Season 2, Ep. 1Í janúar hvíldu augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti var með yfirlýsingar um að hann ætlaði sér að innlima Grænland inn í Bandaríkin. Um viku eftir að Trump lofaði að beita ekki hervaldi til þess að taka Grænland fórum við til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir Grænlensku þjóðina?Umsjónarmenn eru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir Viðmælendur voru Inga Dóra Guðmundsdóttir Lis Lindenhann Jokumsen Bent Jokumsen Aka Hansen Martin Zink Lög sem voru notuð í þættinum Uummatip tusaataa - UillutAqqusernit - Nive Nielsen and the Deer ChildrenTimmissat taartut - Nanook Tupilak - TarrakUummatima feat. Suspekt - Tarrak
5. Sölvadalur - 5. þáttur
39:30||Season 1, Ep. 5Bæir í Sölvadal í Eyjafirði voru aldrei tengdir rafmagni frá samveitunni. Í staðinn voru notaðar viðhaldsfrekar og ótryggar heimavirkjanir. En hvernig lítur framtíð dalsins út? Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Halldór Hauksson, Hrólfur Eiríksson, Jón Björn Hákonarson, Njáll Kristjánsson og Finnur Yngvi Kristinsson. Einnig eru flutt brot úr eldri viðtölum við Tryggva Emilsson og Lilju Karlsdóttur. Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.
4. Sölvadalur - 4. þáttur
38:10||Season 1, Ep. 4Aftakaveður gekk yfir landið í byrjun desember 2019. Það hafði miklar afleiðingar og sérstaklega inni í Sölvadal. Miðvikudagskvöldið 11. desember barst útkall vegna slyss við Eyvindarstaðavirkjun. Björgunarsveitir víðsvegar að af landinu tóku þátt í leitinni, meðal annars félagar í hjálparsveitinni Dalbjörg í Eyjafirði.Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir og Óskar Pétur Friðriksson.Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
3. Sölvadalur - 3. þáttur
39:53||Season 1, Ep. 3Við horfum enn til baka og fáum loks að vita hvaða menn á Akureyri keyptu á sínum tíma vatnsréttindin í Núpánni. En fyrst heyrum við í einu af síðustu börnunum sem ólust upp í Sölvadal.Viðmælendur: Gyða Sjöfn Njálsdóttir, Valgerður H. Bjarnadóttir og Njáll Kristjánsson. Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
2. Sölvadalur - 2. þáttur
40:20||Season 1, Ep. 2Tvær heimavirkjanir sáu bæjunum í Sölvadal fyrir rafmagni. Í lok júní 1995 urðu náttúruhamfarir sem höfðu mikil áhrif á líf fólksins í dalnum. Þjónustuleysi og lélegar samgöngur héldu áfram að einkenna búsetuna.Viðmælendur: Egill Þórólfsson, Petrea Lára Hallmannsdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir, Hrólfur Eiríksson og Njáll Kristjánsson.Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
1. Sölvadalur - 1. þáttur
41:43||Season 1, Ep. 1Í Sölvadal í Eyjafirði hefur lengst verið búið á Eyvindarstöðum, Draflastöðum og Þormóðsstöðum. Við kynnumst nánar sögu dalsins og fólksins sem þar bjó. Hvernig kom það til að heimavirkjanir voru reistar í stað þess að rafmagn frá samveitunni væri lagt í dalinn? Viðmælendur: Ingibjörg Eiríksdóttir, Hrólfur Eiríksson og Njáll Kristjánsson.Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir - Rás 1Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir.
loading...