Share

Sögur úr raunveruleikanum
Vítahringur Margrétar Löf - 2. þáttur
•
Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar.
Í þessum þætti segir hálfbróðir Margrétar Löf frá sinni upplifun af fjölskyldulífinu. Rætt er við lögmann Margrétar, Sigurð G. Guðjónsson, lögfræðiprófessorinn Hafstein Dan og hestamanninn Sigurbjörn Bárðarson.
Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Tæknimaður: Markús Hjaltason
More episodes
View all episodes

Krossfest: Föstudagurinn langi
51:20|Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman undir skugga mangótrjáa, innan um Maríulíkneski og krossinn sjálfan. Við ferðumst saman á staðinn, heyrum af upplifun þeirra sem voru á staðnum og reynum að fá svar við spurningunni, af hverju? Viðmælendur: Ruben Enaje Prófessor Xiao Chua Pétur Guðmann GuðmannssonHugo GoodsonMichael Magee Lestur: Ruben Enaje: Björn Þór SigbjörnssonXiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonHugo Goodson: Jóhannes ÓlafssonMichael Magee: Atli Már SteinarssonDagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal
Krossfest: Skírdagur
49:01|Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa. Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum. Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu. Viðmælendur: Prófessor Xiao Chua Marj EinarssonRuben Enaje Lestur: Xiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonMarj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal
Eftir að allt varð svart
44:18|Þrír létust þegar lítil flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi sumarið 2023. Um borð í vélinni voru náttúruvísindamennirnir Skarphéðinn Þórisson og Fríða Jóhannesdóttir auk flugmannsins Kristjáns Orra Magnússonar.Í þættinum er athyglinni beint að þeirri einstöku þekkingu á hreindýrum og náttúru sem fórst með flugvélinni. Þóra Tómasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir ræddu við samferðafólk vísindamannanna ári eftir flugslysið.Tónlist: Johan Söderqvist og Shingeru UmbayashiDagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir
Vítahringur Margrétar Löf - 1. þáttur
56:26|Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar. Í þáttunum er rætt við Margréti, samferðafólk hennar og verjanda. Umsjón: Þóra TómasdóttirTæknimaður: Mark Eldred
Kveikur: Börnin í Bakkakoti
54:08|Samhliða umfjöllun Kveiks um bæinn Bakkakot fyrir tveimur vikum síðan, stigu níu menn fram sem kröfðust rannsóknar á ofbeldi sem þeir segjast hafa verið beittir þar sem börn. Í dag hefur tala þeirra meira en tvöfaldast.Í aðdraganda annars þáttar Kveiks um málið heyrum við viðbrögð eins viðmælanda þeirra við umfjölluninni, heyrum sögu manns sem var sóttur í Bakkakot af móður sinni eftir skamma en yfirþyrmandi dvöl, og ræðum við Jóhann Bjarna Kolbeinsson, fréttamann Kveiks, um dagskrárgerðina.Dagskrárgerð: Anna Marsibil ClausenTæknimaður: Jón Þór Helgason
Ráðgátan um horfna fiðluleikarann
42:37|Írski fiðluleikarinn Sean Bradley hvarf sporlaust frá Íslandi 2018. Leit að honum hefur enn engan árangur borið. Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og grunsemdir lögreglunnar á Suðurlandi. Þátturinn var upprunalega sendur út í nokkrum köflum í hlaðvarpinu Þetta helst. Umsjón: Þóra TómasdóttirTónlist: Philip Glass