Share

cover art for Vítahringur Margrétar Löf - 1. þáttur

Sögur úr raunveruleikanum

Vítahringur Margrétar Löf - 1. þáttur

Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar. Í þáttunum er rætt við Margréti, samferðafólk hennar og verjanda. 


Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Tæknimaður: Mark Eldred

More episodes

View all episodes

  • Krossfest: Föstudagurinn langi

    51:20|
    Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman undir skugga mangótrjáa, innan um Maríulíkneski og krossinn sjálfan. Við ferðumst saman á staðinn, heyrum af upplifun þeirra sem voru á staðnum og reynum að fá svar við spurningunni, af hverju? Viðmælendur: Ruben Enaje Prófessor Xiao Chua Pétur Guðmann GuðmannssonHugo GoodsonMichael Magee Lestur: Ruben Enaje: Björn Þór SigbjörnssonXiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonHugo Goodson: Jóhannes ÓlafssonMichael Magee: Atli Már SteinarssonDagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal
  • Krossfest: Skírdagur

    49:01|
    Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa. Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum. Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu. Viðmælendur: Prófessor Xiao Chua Marj EinarssonRuben Enaje Lestur: Xiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonMarj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal 
  • Eftir að allt varð svart

    44:18|
    Þrír létust þegar lítil flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi sumarið 2023. Um borð í vélinni voru náttúruvísindamennirnir Skarphéðinn Þórisson og Fríða Jóhannesdóttir auk flugmannsins Kristjáns Orra Magnússonar.Í þættinum er athyglinni beint að þeirri einstöku þekkingu á hreindýrum og náttúru sem fórst með flugvélinni. Þóra Tómasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir ræddu við samferðafólk vísindamannanna ári eftir flugslysið.Tónlist: Johan Söderqvist og Shingeru UmbayashiDagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir
  • Vítahringur Margrétar Löf - 2. þáttur

    47:45|
    Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar.Í þessum þætti segir hálfbróðir Margrétar Löf frá sinni upplifun af fjölskyldulífinu. Rætt er við lögmann Margrétar, Sigurð G. Guðjónsson, lögfræðiprófessorinn Hafstein Dan og hestamanninn Sigurbjörn Bárðarson. Umsjón: Þóra TómasdóttirTæknimaður: Markús Hjaltason
  • Kveikur: Börnin í Bakkakoti

    54:08|
    Samhliða umfjöllun Kveiks um bæinn Bakkakot fyrir tveimur vikum síðan, stigu níu menn fram sem kröfðust rannsóknar á ofbeldi sem þeir segjast hafa verið beittir þar sem börn. Í dag hefur tala þeirra meira en tvöfaldast.Í aðdraganda annars þáttar Kveiks um málið heyrum við viðbrögð eins viðmælanda þeirra við umfjölluninni, heyrum sögu manns sem var sóttur í Bakkakot af móður sinni eftir skamma en yfirþyrmandi dvöl, og ræðum við Jóhann Bjarna Kolbeinsson, fréttamann Kveiks, um dagskrárgerðina.Dagskrárgerð: Anna Marsibil ClausenTæknimaður: Jón Þór Helgason
  • Ráðgátan um horfna fiðluleikarann

    42:37|
    Írski fiðluleikarinn Sean Bradley hvarf sporlaust frá Íslandi 2018. Leit að honum hefur enn engan árangur borið. Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og grunsemdir lögreglunnar á Suðurlandi. Þátturinn var upprunalega sendur út í nokkrum köflum í hlaðvarpinu Þetta helst. Umsjón: Þóra TómasdóttirTónlist: Philip Glass