Share

cover art for Eftir að allt varð svart

Sögur úr raunveruleikanum

Eftir að allt varð svart

Þrír létust þegar lítil flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi sumarið 2023. Um borð í vélinni voru náttúruvísindamennirnir Skarphéðinn Þórisson og Fríða Jóhannesdóttir auk flugmannsins Kristjáns Orra Magnússonar.

Í þættinum er athyglinni beint að þeirri einstöku þekkingu á hreindýrum og náttúru sem fórst með flugvélinni. Þóra Tómasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir ræddu við samferðafólk vísindamannanna ári eftir flugslysið.


Tónlist: Johan Söderqvist og Shingeru Umbayashi

Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir

More episodes

View all episodes

  • Hilmar Veigar um Elon Musk og Demis Hassibis

    52:01|
    Þegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda leiksins. Þegar Hilmar var loks tilbúinn í viðtal kom hann með allt aðra og óvænta sögu. Í þessum þætti segir Hilmar Veigar frá því sem gerðist bak við tjöldin áður en fyrirtækið sem hann stýrir var selt fyrir 15 milljarða króna. Hann segir frá óvenjulegum samskiptum sínum við Elon Musk, en líka við aðra og ekki síður lítríka einstaklinga úr hópi fremstu tæknifrömuða heims. Meðal annars, nóbelsverðlaunahafa í efnafræði, Demis Hassabis. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.
  • Kveikur: „Plain“ konur eins og ég

    28:09|
    Í dag heyrum við frásögn konu sem tók þá afdrifaríku en sjálfstæðu ákvörðun að selja aðgang að líkama sínum. Um 20 ár eru liðin. Þó tími hennar í vændi hafi aðeins varað um sex mánaða skeið hefur hann markað líf hennar allar götur síðan.
  • Fjölskyldan á Edition-hótelinu

    37:07|
    Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi.Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar.
  • Að deyja í einsemd

    41:27|
    Þegar fólk deyr í heimahúsi eða bara einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi þá er tæknideild lögreglunnar kölluð á vettvang. Tæknideildin kannar hvort andlátið hafi borið að með náttúrulegum hætti. Einstaka sinnum gerist það að tæknideildin mætir á vettvang þar sem lík hefur legið lengi. Slíkt gerist sem betur fer sjaldan en árið 2025 fannst lögreglumönnum eins og það væri einhver breyting þar á. Þeir töldu sig koma að fleiri einstæðingum en áður. Rætt er við lögreglumennina Guðmund Þ. Tómasson og Ragnar Jónsson. Við heimsækjum Ingvar Stefánsson og Helenu Björk Magnúsdóttur hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur og Emilíu Jónsdóttur félagsráðgjafa hjá Útfararstofu kirkjugarðanna. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
  • Krossfest: Föstudagurinn langi

    51:20|
    Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman undir skugga mangótrjáa, innan um Maríulíkneski og krossinn sjálfan. Við ferðumst saman á staðinn, heyrum af upplifun þeirra sem voru á staðnum og reynum að fá svar við spurningunni, af hverju? Viðmælendur: Ruben Enaje Prófessor Xiao Chua Pétur Guðmann GuðmannssonHugo GoodsonMichael Magee Lestur: Ruben Enaje: Björn Þór SigbjörnssonXiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonHugo Goodson: Jóhannes ÓlafssonMichael Magee: Atli Már SteinarssonDagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal
  • Krossfest: Skírdagur

    49:01|
    Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa. Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum. Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu. Viðmælendur: Prófessor Xiao Chua Marj EinarssonRuben Enaje Lestur: Xiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonMarj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal 
  • Vítahringur Margrétar Löf - 2. þáttur

    47:45|
    Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar.Í þessum þætti segir hálfbróðir Margrétar Löf frá sinni upplifun af fjölskyldulífinu. Rætt er við lögmann Margrétar, Sigurð G. Guðjónsson, lögfræðiprófessorinn Hafstein Dan og hestamanninn Sigurbjörn Bárðarson. Umsjón: Þóra TómasdóttirTæknimaður: Markús Hjaltason
  • Vítahringur Margrétar Löf - 1. þáttur

    56:26|
    Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar. Í þáttunum er rætt við Margréti, samferðafólk hennar og verjanda. Umsjón: Þóra TómasdóttirTæknimaður: Mark Eldred