Share

cover art for 10. Sæðisgjafinn Elon Musk

Konungssinnar í Kísildal

10. Sæðisgjafinn Elon Musk

Ep. 10

Elon Musk hefur lýst yfir mikilli vanþóknun á nýju frumvarpi Bandaríkjaforseta, Big, Beautiful Bill, því það mun auka ríkisútgjöld og vinna gegn þeirri miklu niðurskurðarvinnu sem Musk og liðsmenn hans í DOGE, hagræðingahópnum, hafa staðið í síðastliðna 130 daga. Hvort þetta þýði að áhrif Musks fari minnkanndi í Hvíta Húsinu á eftir að koma í ljós. En fyrir hvað stendur hann, fyrir hverju berst hann og á hvað trúir hann? Hvernig tengist nýlenda á Mars börnunum 14?


Efni sem var notað við gerð þáttarins:


Ævisagan Elon Musk eftir Walter Isaacson (2023)


Viðtöl við Elon Musk og fleira:


Elon Musk: War, AI, Aliens, Politics, Physics, Video Games, and Humanity | Lex Fridman Podcast #400 

https://www.youtube.com/watch?v=JN3KPFbWCy8


Elon Musk at Qatar Economic Forum

https://www.youtube.com/watch?v=76nZJbiSTqQ


Joe Rogan Experience #2281 - Elon Musk 

https://www.youtube.com/watch?v=sSOxPJD-VNo


Elon Musk delivers SpaceX update on Starship, Mars goals and more at Starbase

https://www.youtube.com/watch?v=0nMfW7T3rx4


Í ljósi sögunnar: 


Ættir og ævi Elon Musk

https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sch 


Elon Musk í Norður-Ameríku

https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sci


Annað efni:


We Went To The Town Elon Musk Took Hostage 

https://www.youtube.com/watch?v=5cZEZoa8rW0


The Tactics Elon Musk Uses to Manage His ‘Legion’ of Babies—and Their Mothers

https://www.wsj.com/politics/elon-musk-children-mothers-ashley-st-clair-grimes-dc7ba05c


On the Campaign Trail, Elon Musk Juggled Drugs and Family Drama

https://www.nytimes.com/2025/05/30/us/elon-musk-drugs-children-trump.html


Longtermism

https://www.williammacaskill.com/longtermism


Áhrifarík umhyggja - umfjöllun í Lestinni

https://www.ruv.is/utvarp/spila/lestin/23619/b72p37/georg-ludviksson-um-effective-altruism 


More episodes

View all episodes

  • 9. 9. Guðfræðingurinn J.D. Vance

    57:09||Ep. 9
    Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist til kaþólskrar trúar og segir það móta mjög sýn sína á pólitík. Áður en J.D. Vance hélt inn á hið pólitíska svið var hann metsöluhöfundur. Árið 2016 gaf hann út Hillbilly Elegy, þar sem hann lýsir uppvexti sínum í Ohio og Kentucky, þar sem hann bjó við óöruggar heimilisaðstæður en með hjálp ömmu sinnar og afa rættist úr honum. Það rættist ansi vel úr honum, eftir fjögur ár í hernum og tvö í háskóla hlaut Vance inngöngu í laganám hins virta Yale-skóla. Þar kynntist hann örlagavaldi í sínu lífi, fjárfestinum Peter Thiel. Vance á marga vini í Kísildalnum og það mætti segja að hann tengi saman tæknigeirann og þjóðernispopúlistana sem fylkja sér á bak við Trump. Efni sem var notað við gerð þáttarins:Sjálfævisagan Hillbilly Elegy eftir J.D. Vance (2016)Aðrir textar og viðtöl við J.D. Vance:How I joined the resistance -https://thelampmagazine.com/blog/how-i-joined-the-resistanceJD Vance speaks at private Teneo Network Event, Sept 21 https://www.youtube.com/watch?v=XU7n4id7uSMJD Vance on his faith and Trumps most controversial policieshttps://www.nytimes.com/2025/05/21/opinion/jd-vance-pope-trump-immigration.htmlRegime Change and the Future of Liberalism | Patrick Deneen, JD Vance Kevin Roberts & Christine Embahttps://www.youtube.com/watch?v=2ZbsiKEhy-8&t=2943sRæða á American dynamism-conferencehttps://www.presidency.ucsb.edu/documents/remarks-the-vice-president-the-american-dynamism-summitGreinar um J.D. Vance og hugmyndir hans:How (and why) J.D. Vance does ithttps://www.economist.com/united-states/2025/04/03/how-and-why-jd-vance-does-itWhat is postliberalism? How a Catholic intellectual movement influenced JD Vance’s political viewshttps://www.pbs.org/newshour/politics/what-is-postliberalism-how-a-catholic-intellectual-movement-influenced-jd-vances-political-viewsPope Francis and JD Vance clash over “ordo amoris”https://www.ncregister.com/cna/pope-francis-vance-clash-over-ordo-amorisThe rise of pronatalismhttps://www.theguardian.com/us-news/2025/mar/11/what-is-pronatalism-right-wing-republicanThe talented J.D. Vancehttps://www.theatlantic.com/magazine/archive/2025/07/jd-vance-reinvention-power/682828/J.D. Vance's short career in venture capitalhttps://www.axios.com/2024/07/16/jd-vance-venture-capital-career
  • 8. 8. Þeir ætla að lifa að eilífu

    51:54||Ep. 8
    Í áttunda þættinum sökkvum við okkur ofan í baráttuna gegn dauðanum sem er háð þessa dagana í Kísildalnum og mögulega í heilbrigðisráðuneyti Donalds Trump. Peter Thiel, Jeff Bezos, Sam Altman og fleiri tækniforstjórar moka peningum í rannsóknir á langlífi. Þeir ætla að lifa að eilífu. Andlit þessarar hugmyndafræði er Bryan Johnson, undir formerkjunum Don’t Die, ekki deyja. Við skoðum tengsl Trans-húmanisma við MAHA-hreyfinguna svokölluðu, Make America Healthy Again.
  • 7. 7. Hannes Hólmsteinn og bandaríska hægrið

    54:08||Ep. 7
    Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði og hefur sérhæft sig í frjálshyggju. Hann þekkir til í Silicon Valley, hefur hitt Peter Thiel og einnig marga helstu hugsuði frjálshyggjunnar. Hann hefur rætt við Thatcher og Hayek og Milton Friedman. Fáir þekkja hægristefnuna jafn vel og hafa barist jafn mikið fyrir sjónarmiðum frjálshyggjunnar hér á landi, í ræðu og riti. Við ræðum Trump-stjórnina, ólíkar stefnur innan bandaríska hægrisins, muninn á frjálshyggju og liberalisma (sem er víst það sama) og Kísildalinn.
  • 6. 6. Crypto-keisarinn David Sacks

    52:05||Ep. 6
    Á dögunum var David Sacks útnefndur gervigreindar og rafmynta-keisara hvíta hússins, semsagt helsti ráðgjafi Trump í þessum málefnum. Sacks er gamall skólafélagi Peter Thiel og JD Vance hefur sagt hann sinn nánasta félaga í Kísildalnum. Sacks eignaðist umtalsverða peninga eftir að hann tók þátt í að koma Paypal á koppinn, og hefur æ síðan verið áhugasamur um rafmyntir. Í þessum þætti sökkvum við okkur ofan í heim rafmynta og þá hugmyndafræði sem liggur honum til grundvallar - trúna á að tími ríkisvalds og skattheimtu sé að líða undir lok. Þessar hugmyndir koma meðal annars fram í forvitnilegri bók frá 1997 Sovereign Individual eftir þá William Rees-Mogg og James Dale Davidson.Við fáum stutt innlegg frá Eiríki Inga Magnússyni áhugamanni um Bitcoin og Gylfa Magnússyni hagfræðiprófessor.
  • 5. 5. Starfsneminn Marc Andreessen

    54:49||Ep. 5
    Í þætti dagsins kynnum við okkur hugmyndir fjárfestisins Marc Andreessen. Marc hefur þangað til nýlega verið yfirlýstur demókrati en nú styður hann Trump. Hann tók þátt í því að hjálpa Trump að velja inn starfsfólk í nýju Trump-stjórnina og kallar sig ólaunaðan lærling hjá D.O.G.E. Hvað gerðist? Hverjar eru skoðanir Marc Andreessen, sem hefur stundum verið kallaður hugmyndafræðingur Kísildalsins?
  • 4. 4. Libbar og amerískt lýðræði

    01:07:58||Ep. 4
    Fjórði þátturinn er með óvenjulegu sniði. Við fáum til okkar viðmælendur sem hjálpa okkur að skilja stofnun bandaríska lýðveldisins og frjálslyndisstefnuna, liberalismann, sem Peter Thiel og fleiri álíta að sé komin á endastöð.Viðmælendur: Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Páll Rafnar Þorsteinsson heimspekingur.
  • 3. 3. Borgarskipulagsfræðingurinn Balaji Srinivasan

    55:17||Ep. 3
    Við fjöllum um útópískar hugmyndir Kísildalsins, meðal annars Netríkið, Network State, sem Balaji Srinivasan hefur talað fyrir. Við ræðum meðal annars GAZA Inc, Prospera og tilraunir Praxis til að kaupa Grænland.
  • 2. 2. Bloggarinn Curtis Yarvin

    53:17||Ep. 2
    Curtis Yarvin er tölvunarfræðingur og bloggari. Hann er líka maður myrku upplýsingarinnar, eða Dark Enlightenment og hann hefur lengi talað fyrir því að Bandaríkin þurfi að taka upp konungsveldi. Við kynnum okkur hugmyndir Curtis Yarvin eða Mencious Moldbug, eins og hann kallaði sig áður, og tengsl hans við Hvíta húsið.