Share

cover art for Kiss Army Iceland Podcast

Kiss Army Iceland Podcast

Besta podcast Íslands


Latest episode

  • 96. 096 - The Broken Crack (1979 - seinni hluti)

    03:30:41||Season 1, Ep. 96
    Við höldum hér yfirferð okkar áfram um sögu KISS þar sem við skellum henni að venju í takt við tíðaranda þess tíma sem fjallað er um hverju sinni. Þegar Dessarinn og Kramerinn trufluðu okkur vorum við rétt búnir að klára fyrri part ársins 1979. Eins og við komum inn á í þeim þætti (og við vissum reyndar fyrir) þá var þetta ár okkar mönnum afar erfitt. Það kemur þó eiginlega alltaf betur og betur í ljós þegar við förum hér yfir síðari hluta þessa annars frábæra árs hversu svakalega erfitt þetta hefur verið fyrir þá, og reyndar sérstaklega fyrir þá Gene og Paul. Í þættinum kemur ýmislegt fyrir, bæði fróðlegt og alls ekki bara. Sem dæmi má nefna "double bridd", hinn fræga Amsterdam vinsældarlista, Karnabæ vs. Kjarnabæ, kjarnorkusprengjur og hvar Davíð keypti ölið. Já og svo auðvitað skoðum við KISSTORY í bland við þetta allt og fleira til. Við kíkjum sérstaklega á gengi "I Was Made For Lovin´ You" ásamt því að skoða hvernig restin af túrnum "The Return Of KISS" fór fram. Þáttastjórnendur voru þó sammála um í lokin að um hálfgerða magalendingu var að ræða hjá meðlimum KISS árið 1979, eftir hátt flug þeirra síðustu ára. En víst er að allt sem fer upp kemur niður á ný. Góða skemmtun........vonandi.

More episodes

View all episodes

  • 95. 095 - Eddie "Fokking" Kramer

    01:24:53||Season 1, Ep. 95
    Eddie Kramer er nafn sem allir KISS aðdáendur þekkja, og reyndar mun fleiri til enda á hann alveg ótrúlegan feril að baki. Burt séð frá störfum hans með Led Zeppelin, The Beatles, Jimi Hendrix og þeirri staðreynd að hann var sá sem hljóðritaði Woodstock hátíðina árið 1969 þá gerði þessi maður meira en margur fyrir okkar menn í KISS. Hann tók upp fyrstu demoin í Electric Lady Studios, hann tók upp ALIVE!, ALIVE II, ALIVE III, Rock And Roll Over og Love Gun með okkar mönnum og fleiru til með Ace (s.s Ace solo album 1978). Hér er Eddie "Fokking" Kramer í einkaviðtali við KISS ARMY ICELAND PODCAST. Ótrúlega skemmtilegt viðtal við þennan áhrifamann af blaðsíðu eitt í rokksögu heimsins. Það snerti okkur afar djúpt að fá að tala við þennan mæta og merka mann, njótið vel.
  • 94. 094 - Desmond Child / Christmas Special

    02:14:59||Season 1, Ep. 94
    Jóla-Special í ár er ansi stór biti krakkar mínir. Einkaviðtal við sjálfan Desmond Child. Allir KISS aðdáendur þekkja þetta nafn. Hann samdi "I was made for loving you" með Paul, hann samdi "Heaven´s on fire" með Paul og sirka 14 lög í viðbót. Svo auðvitað samdi hann "Poison" með Alice Cooper og reyndar stjórnaði hann upptökum á plötunni hans "Trash" líka og samdi fleiri lög á einmitt þeirri plötu. En þetta er ekki allt. Hann samdi líka "You give love a bad name" og "Livin´ on a prayer" ásamt fleirum til með Jon Bon Jovi og svo auðvitað "Livin la vida loca" fyrir Ricky Martin, sælla minninga. En svo bara svo miklu, miklu meira, enda er hann í Songwriters Hall Of Fame sem og Grammy verðlaunahafi. Hér er Desmond Child fyrir hlustendur KISS ARMY ICELAND PODCAST, ásamt svo óvæntum glaðningi frá tæknimanninum og reyndar miklu meira stöffi. Gleðileg jól !
  • 93. 093 - Norður-Amerískar Mýrarkanínur (1979 - fyrri hluti)

    03:42:07||Season 1, Ep. 93
    Árið 1978 mokaði KISS samsteypan inn seðlum eins og enginn væri morgundagurinn. Það var því nóg til þegar árið 1979 gekk loks í garð. En þegar hér er komið sögu var farið að hrikta verulega í stoðunum og samstarfið gekk ekkert frábærlega hjá okkar mönnum. Frægð og frami hafði verið draumurinn sem nú hafði raungerst en samt kom mönnum ekki nægilega vel saman. 1978 hafði líka verið nokkuð skrítið ár og engin KISS plata kom út það árið fyrir utan auðvitað safnplötuna góðu, Double Platinum. Í viðbót við það voru sólóplöturnar fjórar það sem fyrra ár gaf af sér ásamt auðvitað sjónvarpsmyndinni frægu. Nú varð að leggja allt í þetta og koma með alvöru plötu. Ákveðið var að tjalda öllu til og færa aðdáendum nýtt og ferskt efni sem myndi gefa þeim ástæðu til að láta sjá sig á tónleikum á ný, en þær voru einmitt farnar að þynnast hressilega áhorfendatölurnar, engum af okkar mönnum til ánægju. En í bland við þetta allt þurfti að halda bandinu saman og vélinni gangandi, sem var hægara sagt en gert. Ace var farinn að finna fyrir leiða og enginn gat hamið Peter svo gott væri. Þrátt fyrir það leit þó SUPER KISS dagsins ljós þetta frábæra ár og túrinn "The Return Of KISS" varð að veruleika auk plötunnar DYNASTY. Við förum yfir þessi mál ásamt sögustund frá bæði Forsetanum og StarPower þar sem mjög víða er komið við líkt og vanalega.
  • 92. 092 - "Rað í punginn"

    02:55:17||Season 1, Ep. 92
    Loks var komið að því óumflýjanlega. Við vissum að þessi dagur kæmi. Þetta var erfitt á marga vegu en við teljum okkur hafa komist nokkuð vel frá þessu, annað en herra Stanley reyndar. Það þurfti nánast að draga forsetann okkar inn í Stúdíó Sannleikans fyrir þessar upptökur. En þegar hann loks mætti þá var hann í sínu fínasta pússi og með plötuna "Now And Then" undir arminum, en það er einmitt platan sem við tökum fyrir að þessu sinni. Paul Stanley notaði COVID stoppið til að skríða inn í hljóðverið ásamt öllum og ömmu þeirra til að hljóðrita þessa plötu undir nafninu "Paul Stanley´s Soul Station". Platan er s.s ekki alslæm, en þáttastjórnendur voru sammála um að hún kemst þó ansi nálægt því. Paul vildi heiðra tónlistarlegar rætur sínar með því að gefa út þessa 14 laga plötu sem inniheldur 5 ný frumsamin lög og 9 gömul tökulög. Kannski var þetta þetta bara eitthvað sem hann varð að koma úr systeminu sínu? Vonum að hann sé búinn að tappa vel af því systemi og að hann geti haldið upp og áfram með þetta að baki sér. Við greinum þessa plötu í þessum þætti sem er númer 92 í röðinni. Góða skemmtun??
  • 91. 091 - Rúllustigar (1978 - seinni hluti)

    03:20:22||Season 1, Ep. 91
    Hér tökum við fyrir seinni hluta ársins 1978. Þetta var ekki fjörugasta árið í KISSögunni, en þó gerðist nú nokkuð hjá okkar mönnum. Sólóplöturnar fjórar litu dagsins ljós ásamt auðvitað sjónvarpsmyndinni KISS: Meets The Phantom Of The Park sem frumsýnd var á NBC sjónvarpsstöðinni þar sem nánast öll Ameríka poppaði, kom sér fyrir í sófanum og horfði. Okkar menn fengu frekar furðulegar Platinum plötur eftir smá fiff hjá hæstvirtum Neil Bogart og glanstímaritin elskuðu að birta myndir og fjalla um nýja ofurparið, Gene & Cher. Við kíkjum einnig örlítið út í geim að vanda með hjálp StarPower, en einnig fer hann yfir málin í páfagarði þess tíma ásamt miklu fleiru fróðlegu stöffi. Forsetinn segir okkur frá skemmtiferð fjölskyldunnar nú í sumar en kynnir líka fyrir okkur hvað annað var að gerast í tónlistinni í heiminum árið 1978 og kemur pönkið nokk mikið við sögu. Þetta allt, en bara svo miklu, miklu meira til.
  • 90. 090 - Soja Salúýt (1978 - fyrri hluti)

    03:29:14||Season 1, Ep. 90
    Við erum komnir að árinu 1978. Í þessum þætti tökum við fyrir fyrri hluta þessa ágæta árs í KISSSögunni sem við svo berum auðvitað saman við hina almennu sögu. Á þessu ári var lítið um túralíf hjá okkar mönnum svona miðað við fyrri ár hið minnsta, en aðeins var um leyfar af ALIVE II túrnum að ræða. En okkar menn gáfu út sína fyrstu safnplötu á þessum fyrri helmingi ársins 1978 ásamt því að hefja tökur á bæði bíómynd og auðvtað sólóplötunum fjórum fræknu. Þetta var þungur þáttur í undirbúningi en léttari í upptökum sem þó slaga áleiðis upp í 4 klst.