Beðmál í borginni og aldamótadætur
All Episodes

4. 4. þáttur - Vinátta
36:49||Ep. 4Vinkonurnar fjórar Carrie, Samantha, Miranda og Charlotte segjast vera sálufélagar. En vináttan er ekki alltaf draumur í dós; þær fara alveg í fýlu, dæma hver aðra og rífast. Þær koma samt alltaf á endanum saman á kaffihúsinu góða í New York. Er vinátta þeirra raunsæ eða er hún frekar dæmi um fantasíu sjónvarpsþátta? Gæti hún verið fyrirmynd raunverulegrar vináttu? Nanna Hlín og Sunna Kristín velta þessum spurningum fyrir sér ásamt valinkunnum aðdáendum þáttanna.Viðmælendur: Alda Björk Valdimarsdóttir, Ásta Kristín Björnsson, Birna Ósk Harðardóttir, Edda Guðmundsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Helgi Ómarsson, Hildur Kristín Þorbjörnsdóttir og Lilja Reykdal Snorradóttir.Umsjón og dagskrárgerð: Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Nanna Hlín Halldórsdóttir.Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir - Rás 1 RÚV
3. 3. þáttur - Neysluhyggja
36:50||Ep. 3Tíska og hátískumerki eru gegnumgangandi í hinum byltingarkenndu sjónvarpsþáttum Sex and the City og mörgum aðdáendum þáttanna þykir gaman að fylgjast með nýju og nýju „lúkki“ hjá þeim vinkonum. Þættirnir hafa hins vegar einnig verið gagnrýndir fyrir neysluhyggju og að birta frekar einsleita mynd af efri stétt New York búa. Í þessum þriðja þætti skoða Sunna Kristín og Nanna Hlín ásamt viðmælendum sínum neysluhyggjuna og hvað fólki finnst gaman að fallegum hlutum.Viðmælendur: Alda Björk Valdimarsdóttir, Ásta Kristín Björnsson, Edda Guðmundsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Hildur Kristín Þorbjörnsdóttir. Umsjón og dagskrárgerð: Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Nanna Hlín Halldórsdóttir
2. 2. þáttur - Kvenleiki
37:50||Ep. 2Einhleypa konan í stórborginni, sem getur valið sér elskhuga, drukkið kokteila og keypt sér dýra skó, er ímynd konunnar í Beðmálum í borginni. Undir glansyfirborði þáttanna er líka tekist á við ýmis mál sem varða kvenleika, eins og ungdómsdýrkun, samstöðu og samstöðuleysi kvenna, kvensjúkdóma, móðurhlutverkið og makaleit. Nanna Hlín og Sunna Kristín kryfja þessi mál ásamt einlægum aðdáendum þáttanna.Viðmælendur: Alda Björk Valdimarsdóttir, Birna Ósk Harðardóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Helgi Ómarsson, Hildur Kristín Þorbjörnsdóttir, Lilja Reykdal Snorradóttir.Umsjón og dagskrárgerð: Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir.
1. 1. þáttur - Kynlífið
37:32||Ep. 1Aldamótaþættirnir Beðmál í borginni eða Sex and the City mörkuðu ákveðin tímamót í poppmenningu vegna þess hvernig þeir fjölluðu um kynlíf kvenna. Í þessum fyrsta þætti fjalla þær Sunna Kristín og Nanna Hlín ásamt viðmælendum sínum um kynlífið í þáttunum. Kómískar kynlífssenur, hvað virkar í kynlífi og hvað ekki? Og er hægt að ræða það allt við vinkonur sínar?Viðmælendur: Alda Björk Valdimarsdóttir, Ásta Kristín Björnsson, Birna Ósk Harðardóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Helgi Ómarsson, Hildur Kristín Þorbjörnsdóttir og Lilja Reykdal Snorradóttir.Umsjón og dagskrárgerð: Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir.
loading...