{"version":"1.0","type":"rich","provider_name":"Acast","provider_url":"https://acast.com","height":250,"width":700,"html":"<iframe src=\"https://embed.acast.com/$/69808fdc2c62bf72e5232a6c/6afae926abfa3ac131f4fad0?\" frameBorder=\"0\" width=\"700\" height=\"250\">","title":"1849","thumbnail_width":200,"thumbnail_height":200,"thumbnail_url":"https://open-images.acast.com/shows/69808fdc2c62bf72e5232a6c/1794828570702-ba5b3a92-768e-45c1-a4cf-a95558ed148e.jpeg?height=200","description":"
Ráfað er á milli þess gamla og nýja með hjálp gamalla hljóðbrota úr safnkistu Ríkisútvarpsins. Rætt er við samtímafólk þegar hægt er eða einhvern sem tengist upptökunum með einum eða öðrum hætti.
Í þættinum hlýðum við á viðtal við Runólf Runólfsson, bónda og vinnumann í Skaftárhreppi, á tíræðisafmæli hans árið 1949. Við heyrum því rödd manns sem fæddist árið 1849. Í viðtalinu lítur Runólfur yfir farinn veg, fer með vísur, líkræður og kvæði og segir frá hinu og þessu úr fortíðinni. Hann segir meðal annars frá mannskaðanum mikla árið 1871. Hann var einn sjómannanna sem komust lífs af þann örlagaríka dag þegar 26 menn drukknuðu. 
Við höfum upp á langafabarni Runólfs, Sigrúnu Guðmundsdóttur, og Kristínu Þorsteinsdóttur sem ólst upp á Eystri-Sólheimum, heimilinu þar sem Runólfur vann og bjó síðustu 25 ár ævi sinnar. „Ég lenti í partýi með manni sem var fæddur fyrir miðja þarsíðustu öld,“ segir hún en þau Runólfur áttu sama afmælisdag. Þegar Kristín varð árs gömul, varð hann hundrað ára. Í gamla viðtalinu heyrist í Kristínu sem ungu barni í bakgrunninum orga og kvaka. Við hlustum á upptökuna og ræðum tímann.
","author_name":"RÚV Hlaðvörp"}