Frá siðaskiptum hafa fjórar íslenskar konur gerst kaþólskar nunnur. „Fleiri íslenskar stúlkur íhuguðu klausturlífið en höfðu ekki þá trúarlegu hugsjón eða köllun sem klausturvistin krefst,“ segir í endurminningum Sigurveigar Guðmundsdóttur sem hugsaði um að gerast nunna en hætti við vegna heilsubrests. Í þættinum er sagt frá Steinunni Björnsdóttur (Systur Mary Hildu), Halldóru Marteinsdóttur (Systur Jóhönnu af Krossi), Guðrúnu Unu Sigurveigu Gísladóttur (Systur Stanislaus) og Svanlaugu Guðmundsdóttur (Systur Clementiu yngri).
Ættfræðigrúsk, Guðrún Ósvífursdóttir, Hildur nunna á Hólum í Hjaltadal á 12. öld, ískyggilegar minningargreinar, eftirminnilegt Volkswagen rúgbrauð, rúlluskautar,  grallarahegðun og ýmislegt fleira kemur við sögu í fyrri þættinum af tveimur um líf þeirra íslensku kvenna sem hafa gengið í klaustur frá því að kaþólskt trúboð hófst á ný hérlendis.
Rætt er við skyldmenni systur Clementiu yngri. Sigríður (Sirrý) Sigurðardóttir og Zíta Benediktsdóttir eru bræðradætur hennar, rætt er við þær í þætti dagsins ásamt Hilmari Hjartarsyni eiginmanni Sirrýjar. Guðfinna Ragnarsdóttir ættfræðingur segir einnig frá.
","author_name":"RÚV Hlaðvörp"}