{"version":"1.0","type":"rich","provider_name":"Acast","provider_url":"https://acast.com","height":250,"width":700,"html":"<iframe src=\"https://embed.acast.com/$/69808fdc2c62bf72e5232a6c/69dcc442715b7d1039c4388e?\" frameBorder=\"0\" width=\"700\" height=\"250\"></iframe>","title":"Jósefssystur ","description":"<p>Árið 1896 komu til landsins fjórar nunnur úr reglu St. Jósefs. „Þetta eru neyðarsveitir, svipað og ýmsar Rauða kross eða hjálparsveitir sem eru sendar til þróunarlanda í dag,“ eins og Ólafur H. Torfason orðaði það. Hann skráði á sínum tíma hundrað ára sögu systranna á Íslandi.</p><p>Í þættinum heyrum við úr dagbókum Systur Clementiu eldri sem var í hópi þeirra fyrstu sem komu til landsins. St. Jósefssystur eru þekktar fyrir ýmis brautryðjendastörf í Reykjavík. Þær reistu m.a. fyrsta sjúkrahúsið með nútímasniði, gerðu fyrsta holræsið í borginni og veittu sjúklingum sínum hreint vatn úr brunni sem þær létu grafa. Í þættinum skoðum við tíma Jósefssystra hér á landi út frá áðurnefndri dagbók og viðtalsbrotum úr safni RÚV. Við sögu koma jarðskjálftar, bagalegar aðstæður Íslendinga fyrir og um aldamótin 1900, hnignun kaþólskra nunna á heimsvísu undanfarna hálfa öld og kynferðislegt ofbeldi presta á nunnum. Á síðustu tveimur áratugum hafa nunnur víðast hvar í heiminum stigið fram og greint frá kynferðislegu ofbeldi og misnotkun kaþólskra presta. Frásagnir þeirra varpa ljósi á vandamál sem enn er lítið rætt opinberlega.</p>","author_name":"RÚV Hlaðvörp"}