{"version":"1.0","type":"rich","provider_name":"Acast","provider_url":"https://acast.com","height":250,"width":700,"html":"<iframe src=\"https://embed.acast.com/$/69808fdc2c62bf72e5232a6c/69a579fd16315a936f2775a1?\" frameBorder=\"0\" width=\"700\" height=\"250\"></iframe>","title":"Dauðasynd","description":"<p>Sumir mega eta blóð og hold Krists, sameinast honum, öðlast eilíft líf. Aðrir ekki. Í þessum þætti er leitast við að skilja hverjir það eru sem mega meðtaka altarissakramentið og hverjir ekki. Flókinn syndalisti kaþólsku kirkjunnar er skoðaður, sér í lagi tvö brot á trúarritningunni sem teljast til alvarlegra synda, annars vegar samkynhneigðir sem lifa „virku hinsegin lífi“ og hins vegar fráskildir sem komnir eru í ný sambönd. </p><p>Kaþólska kirkjan, á Íslandi sem og annars staðar, gerir sérstakan greinarmun á þeim sem hneigjast til samkynhneigðar og þeirra sem iðka hana. Samkynhneigðir mega sum sé meðtaka altarissakramentið, svo lengi sem þeir eiga sér ekki samkynja ástarlíf. </p><p>Jakob Rolland, prestur, kanslari og fjölmiðlafulltrúi kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, útskýrir málið nánar. Hann segir að kirkjan sömuleiðis vonist til að samkynhneigðir breyti sér með tímanum og bætir við að hún veiti þeim aðstoð.</p>","author_name":"RÚV Hlaðvörp"}