{"version":"1.0","type":"rich","provider_name":"Acast","provider_url":"https://acast.com","height":250,"width":700,"html":"<iframe src=\"https://embed.acast.com/$/69808fdc2c62bf72e5232a6c/6993110ad85aecd27a411323?\" frameBorder=\"0\" width=\"700\" height=\"250\"></iframe>","title":"Altarissakramentið","description":"<p>,,Altarissakramentið er líkami og blóð Jesú Krists,’’ segir kanslari kaþólsku kirkjunnar. Þáttastjórnandi er engu nær. Kirkjunnar fólk segir altarissakramentið aðal sakramentið í kaþólskri trú þar sem sókn sameinast Jesú Kristi. Þetta er bæði mikið kraftaverk og mikil ráðgáta, segir á vef kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Leitast er eftir að skilja fyrirbærið til hlítar í þætti dagsins. Vangaveltur um notkun og magn brauðs og víns koma við sögu en kaþólska kirkjan verslar ekki vín sitt í áfengisverslunum hér á landi eins og við flest. Einnig koma við sögu dæmisögur úr Biblíunni, guðslíkamahús, fermingarbörn í Hafnarfirði og ýmislegt fleira. Ferðalagið er drifið áfram af sögu Carlos Acutis, nýslegins dýrlings sem gjarnan er kallaður verndari internetsins enda fyrsti þúsaldardýrlingurinn sem þekktur er fyrir forritun á gagnagrunni um kraftaverk tengd altarissakramentinu. Við heimsækjum systur Pentecostés, nunnu í St. Jósefskirkju. Hún er nýkomin heim úr pílagrímsferð til Ítalíu með íslenskum unglingum. Þangað fóru þeir meðal annars til að vitja helgs dóms Acutis.</p>","author_name":"RÚV Hlaðvörp"}