Í fyrstu þáttum Meiningar eru hinar ýmsu hliðar Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi skoðaðar. Við byrjum á trúarsöfnuði kaþólskra á Selfossi þar sem nú er verið að byggja nýja kirkju.
„Núna er komið að því að þetta er ekki lengur mögulegt vegna þess að það eru svo margir. Á Selfossi og í kringum Selfoss eru fleiri en þúsund kaþólskir,“ segir David B. Tencer, biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Við heimsækjum hann í þættinum og fræðumst fræðast nánar um málið.
Nýja guðshúsið ber heitið Kirkja hins heilaga kross og er tileinkað kirkjunni í Kaldaðarnesi sem á sínum tíma var einnig helguð heilögum krossi Jesú Krists. Við kirkjuna í Kaldaðarnesi stóð kross einn sem mikill átrúnaður hvíldi á. Að gefnu tilefni kynnum við okkur krossinn í Kaldaðarnesi með Dr. Margaret Cormack, miðaldafræðingi sem stúderað hefur íslenska dýrlinga og helgisögur. Sömuleiðis skoðum við aldagamla sögu krossmarksins með hjálp þáttar úr safni RÚV frá 1969 í umsjón Séra Lárusar Halldórssonar og Sigurðar Helga Guðmundssonar.
Við byrjuðum á því að skoða aukna trúrækni ungs fólks á síðasta ári og höldum þeirri rannsókn áfram við og við í þessari þáttaröð.
„Það eru alltaf ný andlit í hverri einustu sunnudagsmessu,“’ segir Rúnar Gerard Ragnarsson, ungur sjúkraliði og félagi í nýstofnuðu Bræðralagi kaþólsku kirkjunnar. Hann segir okkur m.a. frá uppvaxtarárum sínum á Selfossi, söfnuðinum þar og trú sinni almennt.
","author_name":"RÚV Hlaðvörp"}