Þættir úr sögu nútímans: Jóhann Páll Árnason
All Episodes

5. Aukaefni: Pallborðsumræður um innrásina í Tékkóslóvakíu 1968
33:01||Ep. 5Þátturinn Daglegt líf sem var útvarpað 31. ágúst 1968. Í þættinum er rætt um innrásina í Tékkóslóvakíu og áhrif hennar á samband kommúnistaflokka Vestur-Evrópu og Sovétríkjanna. Rætt við Kára Valsson prest, Styrmi Gunnarsson lögfræðing og blaðamann á Morgunblaðinu, Jóhann Pál Árnason menntaskólakennara, og Ásmund Sigurjónsson blaðamann á Þjóðviljanum. Umsjón: Árni Gunnarsson
4. Siðmenningarkrísa
53:48||Ep. 4Í lokahlutanum ræðir Jóhann Páll Árnason ástandið í heimsmálunum í dag, ræðir af hverju Kína mun ekki taka fram úr Bandaríkjunum sem stærsta efnahagsveldi heims, spjallar um Donald Trump og MAGA-hreyfinguna, vandræði Evrópusambandsins og ýmislegt fleira.
3. Sovét-módelið
55:02||Ep. 3Í síðasta viðtali byrjuðum við að ræða hugtakið nútími sem má segja að hafi verið helsta viðfangsefni Jóhanns Páls Árnasonar undanfarna áratugi. Jóhann hefur rannsakað hvernig mismunandi menningarheimar hafa farið ólíkar leiðir í nútímavæðingu sinni. Hann hefur skoðað leið Japans til nútímans, þá ríkismyndun sem átti sér stað þar, en í dag einbeitum við okkur að Rússlandi og ræðum bolsévísku byltinguna og sovésku leiðina til nútímans.
2. Margbreytilegur nútími
56:09||Ep. 2Í öðru viðtalinu ætlum við að sökkva okkur dýpra í fræðasvið Jóhanns Páls Árnasonar og aðferðafræði, heyra um þá sögulegu félagsfræði sem hann stundar, Við munum ræða hvernig hægt er að stunda samanburð siðmenningarheima og í því samhengi ræðum við bæði ríkismyndun í Japan og þjóðveldisöldina á Íslandi.
1. Austur fyrir tjald
49:20||Ep. 1Í fyrsta hluta viðtalsins förum við yfir æviferil félagsfræðingsins og heimspekingsins Jóhanns Páls Árnasonar. Við ræðum æskuárin á Dalvík á fimmta og sjötta áratugnum, mótunarárin þegar hann fór sem ungur róttæklingur austur til Tékkóslóvakíu á tímum lýðræðislegra umbótatilrauna sem kallaðar voru Vorið í Prag. Við ræðum námið við hinn þekkta Frankfúrt-skóla þar sem Jóhann skrifaði doktorsverkefni hjá þýska heimspekingnum Jürgen Habermas og svo vegferð hans til Ástralíu þar sem hann starfaði sem prófessor í rúma þrjá áratugi.
loading...